Leita í fréttum mbl.is

Of mikið, en of lítið

Fyrir tíma netsins var auðveldara en nú er að komast upp með að vera í mótsögn við sjálfan sig.  Nú er það erfitt, ef einhver nennir á annað borð að hlusta eða lesa það sem menn og flokkar hafa að segja. Hjörtur nennti og bendir kurteislega á mótsögnina í því að vilja minnka ríkisbákn og ganga í Evrópusambandið, en hvort tveggja segjast menn vilja í flokki sem nefndur er Viðreisn.  Það er eins og að berjast fyrir meiri þrifnaði með kúk í buxunum. 

https://www.fullveldi.is/?p=21809

KRAUZE-UE-bureaucracy


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Fasistar, vitna í fasista sem vitnar í aðra fasista sem bara skálda hluti upp vegna þess að þeir hafa ekkert viturlegt að segja. Enda ekkert vitrænt að finna þarna.

Fólk eins og það sem er að finna í Heimssýn er að gera Bretland gjaldþrota núna vegna þess að það er ekki nógu snjallt til þess að keyra og reka efnahag landa sem það þyksit geta stjórnað. Enda er allur málflutningur þess byggður á lygum og blekkingum.

Heimssýn er ekkert betri enda ekkert nema raðlygarar sem kunna ekkert og geta ennþá minna og ljúgsa síðan bara til um rest eins og hefur ýtrekað sannast á síðustu áratugum sem þessi samtök ógæfufólks og nasista hafa verið stafrækt á Íslandi undir flaggi fasisma og þjóðernishyggju (sem eyðileggur allt sem hún snertir) og er rekin í skjóli auðmanna sem eru að gera Ísland gjaldþrota.

Fullveldi er rekið af tveimur gömlum fasistum. Ég gáði. Þessir menn skálda og búa bara til það sem hentar þeim, óháð því sem raunveruleikinn er og afneitua hlýnun Jarðar af mannavöldum og almenninum vísindum. Ekkert nema fasistar sem mundu kúga þjóðfélagið á Íslandi ef þeir kæmust upp með það.

Jón Frímann Jónsson, 12.11.2022 kl. 03:42

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Við erum með mikla aukningu á bákninu og á líf­tíma þessarar ríkis­stjórnar hefur opin­berum störfum fjölgað um hátt í tíu þúsund," segir Þor­gerður Katrín Gunnars­dóttir, for­maður Við­reisnar, í Fréttablaðinu síðastliðinn mánudag.

Og Ísland hefur ekki fengið fulla aðild að Evrópusambandinu, þannig að ekki er það ástæðan fyrir þessari fjölgun opinberra starfsmanna.

Hér á Íslandi búa nú um 385 þúsund manns og fljótlega munu búa hér 401 þúsund manns, jafnmargir og bjuggu á Möltu þegar landið fékk aðild að Evrópusambandinu árið 2004.

Íslenska krónan er hins vegar alltof lítill gjaldmiðill og meðal annars vegna þess að margir Íslendingar ferðast nú til útlanda hefur gengi íslensku krónunnar fallið gagnvart evrunni um 8% nú í haust.

Evran kostaði um 138 íslenskar krónur 16. september síðastliðinn en kostar nú rúmlega 149 krónur og þessi gengislækkun veldur hærra vöruverði hér á Íslandi, sem sagt aukinni verðbólgu.

11.11.2022 (í gær):

Táslumyndir frá Tene ein af skýringunum á veikari krónu

Þar að auki hafa stýrivextir Seðlabanka Íslands alltaf verið miklu hærri en stýrivextir Seðlabanka Evrópu, sem ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu.

Stýrivextir Seðlabanka Evrópu eru nú 2% en stýrivextir Seðlabanka Íslands 5,75%.

"Í reglum Evrópusambandsins er tiltekið að velta sambandsins megi ekki vera meiri en 1,27% af þjóðarframleiðslu aðildarríkjanna en hún er nú rúmlega 1%.

Evrópusambandið fer með samanlagt 2,5% af opinberu fé aðildarríkjanna og ríkin sjálf þar af leiðandi 97,5%."

Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðild Íslands að Evrópusambandinu:

"Um 45% af útgjöldum Evrópusambandsins renna til landbúnaðar í aðildarríkjunum og 39% til uppbyggingarsjóða."

Eiríkur Bergmann Einarsson forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst:

"Til að mynda er Svíþjóð aðeins gert að innleiða hluta af heildar reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Og ... okkur Íslendingum er nú þegar gert að innleiða ríflega 80% af öllum þeim lagareglum Evrópusambandsins sem Svíum er gert að innleiða.

Með aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) er landið því de facto í Evrópusambandinu en án atkvæðisréttar í sambandinu.

Og enginn stjórnmálaflokkur á Alþingi vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn.

Það er einfaldlega stefna Samfylkingarinnar, Pírata, Vinstri grænna og Viðreisnar að framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, hefur ásamt fleirum flutt um það þingsályktunartillögu á Alþingi.

Og önnur þjóðaratkvæðagreiðsla yrði um aðildarsamninginn.

9.3.2022:

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn

4.10.2018:

"Fleiri landsmenn eru fylgjandi því að taka upp evru eða 46% á móti ríflega 36% sem eru því á móti."

Vaxandi stuðningur við aðild að Evrópusambandinu

Þorsteinn Briem, 12.11.2022 kl. 08:30

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

 Jón Frímann fékk á sig þennan dóm frá Jóhanni Elíassyni sem oft hittir í mark:"

Eins og LANDRÁÐAFYLKINGARMANNA er siður, þá bullar þú bara út í eitt Jón Frímann."

Jón Frímann vill að Sjálfstæðisflokkurinn hverfi af Alþingi eins og Framsókn, og telur hann þá hægri-öfgaflokka. Svoleiðis tal er dæmigert fyrir vinstri-öfgamann. Lesendur Heimssýnar geta spurt sig hvað er að marka vinstri-öfgamann eins og hann.

Jafnaðarfasistar eins og Jón Frímann snúa öllu á hvolf. Það er eins og þeir hafi ekki vitneskju aðra en frá pólitískum andstæðingum sínum sem þeir snúa uppá þá sjálfa. Sannleikann má fá með því að setja öfug forskeyti við allt sem þetta fólk segir.

Evrópusambandið er gjaldþrota, Kína er gjaldþrota, Biden-Bandaríkin líka, örfáir kapítalistar og jafnaðarfasistar sem stjórna þessu, sem segjast styðja alþjóðavæðinguna, andrasismann, fjölmenninguna, ESB og það allt, menn eins og Georg Soros og Bill Gates, menn með óheyrilega mikil völd. Ef Jón Frímann vill sjá einræðisherra nútímans, þessa sem eru sambærilegir við Hitler og Stalín, þá eru það slíkir menn (Gates og Soros), sem Samfylkingin, Viðreisn og þetta jafnaðarfasíska fólk dýrkar af því að það styður mannréttindi og alþjóðahyggju á yfirborðinu.

Það sem er að gera allan heiminn gjaldþrota er alþjóðahyggjan, jafnaðarfasisminn. 

Hvernig ætti Bretland að komast útúr kreppu sinni með femínista eins og Liz Truss við völd eða pro-Euro fólk eins og Ásgrímur Hartmannsson orðaði það undir einni færslu Jóns Frímanns.

Það kæmi mér ekki á óvart ef Jón Frímann er femínisti eins og flest önnur skoðanasystkini hans. 

Hvernig finnst honum konur stjórna í æðstu embættum á Íslandi núna og í öðrum löndum? 

Það sem Jón Frímann kallar ógæfufólk og nasista það er yfirleitt fólkið sem kemur með lausnirnar, björgun útúr því sem jafnaðarmennirnir leiddu aðra útí.

Mennirnir sem eiga heiminn gera alla gjaldþrota sem eru þeim óæðri og fátækari. Þeirra takmark er að hafa heiminn í hendi sér einsog krækiber. Þessa menn styðjur Jón Frímann og kallar aðra ónöfnum. Svo mikil völd hafa safnazt á hendur örfárra manna að þeir ráða hverjir verða ógæfumenn, hvaða þjóðir lenda í kreppum og hvenær. 

Þegar nazistaflokkurinn þýzki fékk völd 1933 var það í kjölfar alheimskreppu. Nú er svo komið að auðmennirnir sem eiga heiminn geta komið í veg fyrir kreppur. Uppganga raunverulegra hægriöfgaflokka hefur verið það eina sem hefur bjargað þjóðunum. Ef það er girt fyrir að þessir flokkar bjargi því sem bjargað verður, þá eru mannkyninu ALLAR BJARGIR BANNAÐAR.

Það er ekki bara klikkun að styðja jafnaðarfasismann, það er fullkomin heimska og ekkert jákvætt við það.

Þessir menn sem Jón Frímann kallar fasista á Íslandi eru ekki ríkir eða voldugir miðað við elítuna sem öllu ræður og hann styður sig við.

Ef "ekkert vitrænt væri að finna þarna" hefði Jón Frímann ekki fyrir því að andmæla neinu sem kæmi fram hjá Heimssýn. Orð Jóns Frímanns um að "ekkert vitrænt sé að finna þarna", og sú staðreynd að hann finnur sig knúinn til að andmæla Heimssýn sannar rökfræðilega að "það er eitthvað að finna þarna (vitrænt)", þveröfugt við það sem hann heldur fram.

Sannleikanum er hver sárreiðastur segir máltæki. Vinstrimenn og jafnaðarmenn sanna þetta í sífellu.

Ef Heimssýn og aðrir "fasistar","nazistar", "hægriöfgamenn" væru að skálda fyndu menn eins og Jón Frímann enga þörf fyrir að mótmæla því. Þögn er sama og samþykki. Aðeins þegar sannleikurinn er nógu ógnvekjandi og trúverðugur fer svona fólk á stjá og notar skítkast sem vopn.

Lengi var búið að halda því fram að refsiaðgerðir dyndu á þeim sem færu úr Evrópusambandinu. Reynslan með Breta sannar þetta.

Getur Jón Frímann með góðri samvizku stutt svona Evrópusamband og aðrir sem eru sammála honum?

Ingólfur Sigurðsson, 12.11.2022 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 28
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 934
  • Frá upphafi: 1117706

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 833
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband