Leita í fréttum mbl.is

Sokkar í erfitt verkefni

ukraina

Nú er prjónað á menn sem fást við „erfið verkefni“.

Hin erfiðu verkefni eru að höggva mann og annan og leggjast svo sjálfir á höggstokkinn.   Kannski draga mennirnir síður af sér við verkin ef þeir eru í hlýjum sokkum.  Kannski hættu þeir að drepa og færu heim til sín ef þeir ættu ekki góða sokka.

Ótaldar kynslóðir evrópskra kvenna hafa keppst við að prjóna á menn sem hafa hamast hverjir á öðrum í frostinu.  Svo virðist sem þessi þáttur í evrópskri menningu hafi borist til Íslands.  Það er kannski ekki skrýtið í ljósi þess að nú á Evrópusambandið í stríði, svo vitnað sé í Borrell, utanríkisráðherra sambandsins.   Hans stríð telja sumir sitt stríð.  Það sama fólk mundi eflaust ekki telja eftir sér að prjóna sokka á íslenska drengi við mannfórnir í framtíðarríkinu.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2022/09/18/prjona_fyrir_kalda_faetur_i_ukrainu/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bandamenn áttu sem sagt að semja um frið við Hitler í seinni heimsstyrjöldinni og sleppa því að frelsa til að mynda Frakkland vegna þess að það var ekki breskt eða bandarískt.

Ísland er eitt af stofnríkjum NATO og þegar Svíþjóð og Finnland hafa fengið aðild að þessu varnarbandalagi verða einungis fjögur aðildarríki Evrópusambandsins ekki í NATO, Írland, Austurríki, Malta og Kýpur.

Og samkvæmt skoðanakönnunum styður meirihluti Íslendinga aðild Íslands að NATO og Evrópusambandinu.

9.3.2022:

Um helmingur Íslendinga hlynntur aðild að Evrópusambandinu og einungis þriðjungur mótfallinn

4.3.2022:

Um 99% Íslendinga fordæma innrás Rússlands í Úkraínu - Um 89% styðja harðar efnahagsaðgerðir alþjóðasamfélagsins gegn Rússum

Rússland er eitt af aðildarríkjum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) en hefur ekki virt landamæri Rússlands og Úkraínu, eins og Rússlandi bar að gera, samkvæmt alþjóðalögum og -sáttmálum.

Og Pútín fannst í góðu lagi að Úkraína fengi aðild að Evrópusambandinu 10. desember 2004, eftir að flest Austur-Evrópuríkin höfðu fengið aðild að bæði Evrópusambandinu og NATO.

Þar að auki vita allir að hvorki Úkraína né NATO ætluðu að ráðast á Rússland.

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)

Helsinki yfirlýsingin (Helsinki Declaration):

"In the CSCE terminology, there were four groupings or baskets. In the first basket, the "Declaration on Principles Guiding Relations between Participating States" (also known as "The Decalogue") enumerated the following 10 points:

    • Sovereign equality, respect for the rights inherent in sovereignty

      • Refraining from the threat or use of force

        • Inviolability of frontiers

            • Peaceful settlement of disputes

              • Non-intervention in internal affairs

                    • Co-operation among States

                      • Fulfillment in good faith of obligations under international law"

                      Rússland er einnig eitt af aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.

                      Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna

                      Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna:

                      "I. kafli

                      MARKMIÐ OG GRUNDVALLARREGLUR"

                      "2. gr. ..."

                      "4) Allir meðlimir skulu í milliríkjaskiptum varast hótanir um valdbeitingu eða beitingu valds gegn landamærahelgi eða stjórnmálasjálfstæði nokkurs ríkis eða á neinn annan hátt sem kemur í bága við markmið hinna sameinuðu þjóða."

                      Þorsteinn Briem, 24.10.2022 kl. 07:53

                      2 Smámynd: Þorsteinn Briem

                      17.6.2022:

                      Pútín: Aðild Úkraínu að Evrópusambandinu kemur Rússum ekki við

                      Pútín 10.12.2004 (eftir að flest Austur-Evrópuríkin höfðu fengið aðild að bæði Evrópusambandinu og NATO):

                      "As for enlargement of the Euroepan Union, we have always seen this as a positive process. cool

                      Certainly, enlargement gives rise to various issues that have to be resolved, and sometimes they are easy to resolve, sometimes not, but both sides have always shown a desire to find mutually acceptable solutions and we do find them.

                      If Ukraine wants to join the EU and if the EU accepts Ukraine as a member, Russia, I think, would welcome this because we have a special relationship with Ukraine. cool

                      Our economies are closely linked, including in specific areas of the manufacturing sector where we have a very high level of cooperation, and having this part of indeed our economy become essentially part of the EU would, I hope, have a positive impact on the economy of Russia."

                      "On the other hand, we are building a common economic space with the European Union, and we believe this is in the interests of both Russia and the European Union countries and will harmonise our economic ties with Europe.

                      But these projects are not in contradiction with the possibility of any country joining the European Union, including Ukraine. cool

                      On the contrary, the possibility of new members joining the EU makes our projects only more realistic.

                      But I repeat that the plans of other countries to join the EU are not our direct affair." cool

                      Kremlin: Press Conference Following Talks with Spanish Prime Minister Jose Luis Rodriguez Zapatero

                      Þorsteinn Briem, 24.10.2022 kl. 07:55

                      Bæta við athugasemd

                      Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

                      Heimssýn

                      Heimssýn

                      hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

                       

                      Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


                      Nánar um Heimssýn

                      Vertu með!

                      Frjáls framlög

                      Eldri færslur

                      Apríl 2024
                      S M Þ M F F L
                        1 2 3 4 5 6
                      7 8 9 10 11 12 13
                      14 15 16 17 18 19 20
                      21 22 23 24 25 26 27
                      28 29 30        

                      Heimsóknir

                      Flettingar

                      • Í dag (26.4.): 4
                      • Sl. sólarhring: 27
                      • Sl. viku: 829
                      • Frá upphafi: 1117721

                      Annað

                      • Innlit í dag: 4
                      • Innlit sl. viku: 731
                      • Gestir í dag: 4
                      • IP-tölur í dag: 4

                      Uppfært á 3 mín. fresti.
                      Skýringar

                      Innskráning

                      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

                      Hafðu samband