Leita í fréttum mbl.is

Um mikilvægi dreifingar skónúmera

Á dögum umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu heyrðist stundum að Ísland væri svo líkt löndunum á meginlandi Evrópu að það væri í góðu lagi að þau fengju að stjórna Íslandi. Ekki fylgdi af hverju gömlu nýlenduveldin væru betur til þess fallin en lýðræðislega kjörin stjórnvöld á Íslandi, enda mjög erfitt að útskýra það.

En er Ísland eins og hver annar hreppur í Þýskalandi? 

Líklegt að á báðum stöðum sé dreifing skónúmera svipuð, margir á báðum stöðum hlusti á Beethoven og finnist Einstein og Rembrandt hafa verið býsna lunknir náungar.  Í báðum löndum sjúga menn í sig hveitilengjur með sósu, sparka bolta eða syngja hástöfum og finnst það ágætt.   Þau líkindi skipta bara engu máli í því samhengi sem hér um ræðir.   Það eru ólíkindin sem leiða til þess að heppilegt er að Íslendingar stjórni sér sjálfir, en að þeim sé ekki stjórnað af umboðsmönnum gömlu evrópsku nýlenduveldanna.

Atvinnulíf á Íslandi er mjög ólíkt iðnvæddum héruðum Evrópu og gjaldeyrisöflun er með öðrum hætti en annars staðar í álfunni.  Stærð og lega Íslands, sem og veðurfar, þéttbýli og síðast en ekki síst mannfjöldi, gera að verkum að samgöngur, samskipti og fleira í gangverki samfélagsins er með öðrum hætti en annars staðar í Evrópu.  Þá er menningarlegur munur töluverður.  Á Íslandi er nefnilega töluð örtunga sem á í vök að verjast.  Og hvað sem mönnum kann að finnast um yfirstandandi stríð í A-Evrópu er það staðreynd að stórfelld iðnvædd manndráp í pólitísku skyni eru óþekkt á Íslandi en inngróinn þáttur í menningu flestra annarra ríkja í Evrópu.

Lög og reglur Evrópusambandsins taka mið af aðstæðum og hagsmunum á meginlandi Evrópu, ekki á Íslandi og skiptir þá auðvitað engu máli hvort Ísland er innanborðs eða ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er öldungis rétt. Ég held það sé kominn tími til þess, að menn fari að rifja upp nýlendutímann hérna, þ.e. það tímabil, sem við vorum undir Dani seld, og hvers konar skilyrði við bjuggum við á þeim tímum, þar sem Danir létu sig hafa það að heimta hvað sem var af okkur, og rifja líka oftar upp, hvers vegna Jón Sigurðsson, sómi landsins, sverð og skjöldur, sagði "Við mótmælum allir". Það getur verið, að unga fólkið í dag eigi erfitt með að trúa þessarri sagnfræði og sögum af því, hvað Íslendingar þurftu að þola af hálfu Dana, og segja tímana aðra í dag. Ég efast um það. Að vísu er fljótara fyrir boð að berast milli landa í dag á tímum flugsamgangna og tölvupósts, en það er og verður aldrei það sama að vera með fjarlæg stjórnvöld í öðru landi, heldur en stjórnvöld í landinu sjálfu. Við sjáum líka, hvernig Grænlendingum og Færeyingum líður í ríkjasambandinu við Dani, og þrá að vera í sömu stöðu og við. Fólk ætti líka að líta til Brexit, og spyrja, hvers vegna Bretar vildu út úr ESB. Ég skil ekki, hvað menn eru að hugsa. Mér finnst líka kominn tími til að fara að endurskoða þennan EES-samning, eins og hann er að verða. Þegar Jón Baldvin Hannibalsson er líka farinn að krítisera hann og segja þetta vera allt annað, en hann samdi um á sinni tíð, þá held ég, að menn megi fara að hugsa sinn gang og það fyrr en síðar. Þetta gengur ekki lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 20.8.2023 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 124
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband