Miðvikudagur, 3. október 2007
Hver yrðu áhrif Íslands innan ESB?
Því er gjarnan haldið fram af þeim sem vilja ganga í Evrópusambandið að aðild sé nauðsynleg til þess að við getum haft áhrif innan sambandsins. Látið er eins og þessi áhrif yrðu mikil og jafnvel ýjað að því að við myndum ráða öllu þar á bæ sem við vildum. Minna er hins vegar farið út í það nákvæmlega hversu mikil þessi áhrif kynnu að verða. Í ítarlegri og fróðlegri skýrslu Evrópunefndar forsætisráðherra, sem nefndin sendi frá sér í marz sl., er þessu gerð skil á bls. 83-85.
Formleg áhrif aðildarríkja Evrópusambandsins innan þess miðast fyrst og fremst við íbúafjölda þeirra sem verður að teljast afar óhagstæður mælikvarði fyrir okkur Íslendinga. Gera má því ráð fyrir að áhrif okkar innan sambandsins yrðu hliðstæð og Möltu en þar bjuggu um 400 þúsund manns í lok síðasta árs. Ísland yrði ásamt Möltu fámennasta aðildarríkið og þar með með minnstu áhrifin.
Ísland fengi einn fulltrúa í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Í Nice-sáttamálanum er gert ráð fyrir að þegar aðildarríkin eru orðin 27 (sem þau urðu um síðustu áramót) verði fulltrúarnir í framkvæmdastjórninni færri en aðildarríkin sem kemur væntanlega til framkvæmda við skipun næstu framkvæmdastjórnar árið 2009 að óbreyttu. Í fyrirhugaðri stjórnaraskrá sambandsins er hins vegar gert ráð fyrir að hvert aðildarríki eigi aðeins fulltrúa í framkvæmdastjórninni annað hvert kjörtímabil en kjörtímabilið er 5 ár.
Þess ber þó að geta að fulltrúarnir í framkvæmdastjórninni eru í raun einungis fulltrúar aðildarríkjanna að því leyti að ríkisstjórnir þeirra tilnefna þá. Þess utan er þeim óheimilt að draga taum heimalanda sinna og ber einungis að líta til heildarhagsmuna Evrópusambandsins.
Í leiðtogaráðinu sitja leiðtogar aðildarríkjanna og forsætisráðherra Íslands myndi sitja þar sem fulltrúi landsins. Í ráðherraráðinu myndi Ísland væntanlega fá þrjú atkvæði af 345. Á Evrópusambandsþinginu fengjum við 5 þingmenn af 785, 6 af 750 ef fyrirhuguð stjórnarskrá Evrópusambandsins verður samþykkt. M.ö.o. vel innan við 1% vægi í báðum tilfellum.
Í efnahags- og félagsmálanefnd sambandsins, sem og héraðanefnd þess, myndi Ísland væntanlega líkt og Malta fá fimm fulltrúa en alls eru 344 fulltrúar í þessum nefndum í dag.
Ísland myndi tilnefna einn dómara í dómstól Evrópusambandsins en hann væri, líkt og fulltrúann í framkvæmdastjórninn, ekki fulltrúi íslenzkra hagsmuna.
Aðildarríkin skiptast á að vera í forsæti ráðherraráðsins í sex mánuði í senn. Miðað við 28 aðildarríki færi Ísland með forsætið á 14 ára fresti. Ef stjórnarskráin verður samþykkt verður þetta kerfi afnumið og í staðinn kemur sérstakur kjörinn forseti ráðsins.
Að öðru leyti myndi í raun ekkert breytast við aðild hvað varðar áhrif okkar innan Evrópusambandsins. Aðaláhrif Íslands innan sambandsins myndu áfram byggjast á "lobbyisma", rétt eins og raunin er í dag. Á móti myndum við gefa eftir yfirráð okkar yfir flestum okkar málum en lítið sem ekkert hafa um þau að segja eftir það.
Hjörtur J. Guðmundsson
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Kosturinn við aðild afhjúpaður
- Húsnæðiskostnaður lægri á Íslandi en víða í Evrópu
- Skondin mótsögn
- Heimssýn á Samstöðinni
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 177
- Sl. sólarhring: 337
- Sl. viku: 2586
- Frá upphafi: 1165960
Annað
- Innlit í dag: 140
- Innlit sl. viku: 2231
- Gestir í dag: 135
- IP-tölur í dag: 135
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er þrennt sem maður getur svarað við útfærslur þínar:
- Það eralltef betra að ver með þar sem ákvarðanir verða teknir í stað þess að sitja fyrir utan og þurfa að finna einhvern sem er 'með' til að sinna hagsmunum.
- Það er rétt hjá þér að töluleg áhrif litillar þjóðar eins og Íslands er litil, en þó hlutfallslega meir en hverar stórar þjóðar sem þú nefndir. Bara það dæmi sem þú nefnir að eftir breytingum að 'stjórnarskránni' fwengi Ísland 6 af 750 í stað 5 af 785 nú sýnir að stöðu smærra þjóða mun batna hlutfallslega. En taktu bara staða eins og hún væri núna. Ísland fengi sem sagt 6/785 en Þýskaland sem stærsta stakt land innan ESB er með 99/785. En hvernig er það miðað við íbúafjölda:
Ísland 6/310.000 = 1 á hverja tæp 52.000 Íslendinga á móti 99/80.000.000 = 1 á hverja 800.000 Þjóðverja. Vægi atkvæðis hvers Íslendings væri u.þ.b. 16-fald meira en hvers Þjóðverja. Hver fær þá hlutfallslega betri stöðu?
- miðað við þau rökin þín ættu þar af leiðandi Vestfirðingar að skilja frá íslandi þótt þeir fengi áfram hlutfallslega betri stöðu á alþingi heldur en Reykvíkingur þótt kjördæmi hans er með fæst þingsæti. Vestfirðingur ætti því að segja: ég kýs engan til þingsins því það borgar sig hvort sem er ekki.
Jens Ruminy, 3.10.2007 kl. 13:56
Þú ert s.s. þeirrar skoðunar að Evrópusambandið sé ríki og því sambærilegt að uppbyggingu og íslenzka ríkið? Það sé því hrein og klár ósannindi þegar ófáir Evrópusambandssinnar reyna að telja fólki trú um að Evrópusambandið feli í sér "frjálsa samvinnu fullvalda ríkja"? Ég gæti ekki verið meira sammála þér þar!
Hjörtur J. Guðmundsson, 3.10.2007 kl. 21:53
Það skal líka á það minnt að forseti ESB yrði ekki kosinn af íbúum sambandsins, heldur innan "apparatsins". ESB kontóristar hafa nefnilega voða litla trú á svona lýðræðisfídusum eins og kosningum. Þær eru nefnilega svo hindrandi á hagsmunapot.
1918 urðum við Íslendingar frjáls og fullvalda þjóð og tókum öll okkar mál í eigin hendur á næstu árum eftir það. Ég hef nefnt það áður, að við inngöngu í ESB værum við að kasta á haugana baráttu þeirra sem stóðu að þeim áfanga sem náðist 1918.
Það er ekki auðvelt að vera frjáls og fullvalda þjóð. Því fylgir að sjálfsögðu ákveðnar kvaðir og höft. Þetta er því svipað með þjóðina og einstaklinginn. Við viljum öll vera frjáls og okkar eigin gæfu smiðir. Ef einstaklingur yrði spurður hvort hann vildi láta taka af sér fjárræðið og sviptur sjálfræði (dytti aftur fyrir 18 árið), þá tel ég að hann myndi ekki einu sinni hafa fyrir því að svara, svo fáránleg þætti honum beiðinin. Afhverju er þetta eitthvað öðruvísi þegar kemur að okkur sem heild. Við höfum sýnt það að við getum þetta og höfum gert nú í nær 90 ár, það er engin ástæða til að ætla að þetta komi ekki til með að halda áfram.
Krafan um inngöngu í ESB og upptöku Krónunnar er byggð á eiginhagsmunum sem ekki hafa með hag fólksins í landinu að gera. Hvers vegna hefur verið svona ódýrt að flytja inn hina ýmsu hluti frá útlöndum, nokkuð sem hefur verið mikil kjarabót fyrir almenning. Það er gengi Krónunnar.
Eins og staða Krónunnar er í dag, þá er það klárlega almenningi í hag að halda henni.
Jón Lárusson, 4.10.2007 kl. 21:42
Auðvitað er alltaf vitleysur að finna og þar sem ekki er hægt að leiðrétta áður sendar athugasemdir, þá leiðréttist hér villan í næst síðustu málsgrein. Hún á að sjálfsögðu að hljóða svo: Krafan um inngöngu í ESB og upptöku Euro ...
Leiðréttist hér með.
Jón Lárusson, 4.10.2007 kl. 21:44
Góðir punktar.
Og "euro" er rétta orðið, enda er það svo að ef við gengjum í Evrópusambandið og tækjum upp evru væri lögskylt að kalla hana "euro" hér á landi eins og annars staðar á evrusvæðinu. Þetta er vissulega ekki stærstu rökin gegn því að ganga í Evrópusambandið og taka upp evru en sýnir afskaplega vel oftar en ekki fáránlega og um leið ótrúlega miðstýringaráráttu sambandsins.
Hjörtur J. Guðmundsson, 4.10.2007 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.