Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011

ESB-sinnar binda vonir við Steingrím J.

Jón Bjarnason stóð vörð um hagsmuni Íslands og fylgdi samþykktum alþingis þegar hann neitaði að taka þátt í aðlögunarferli samfylkingarhluta ríkisvaldsins að Evrópusambandinu. Að kröfu Samfylkingar var Jóni ýtt út úr stjórnarráðinu.

Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs tók að sér í verktöku fyrir Samfylkinguna að fórna Jóni, sem var sá ráðherra flokksins er komst næst því að fylgja stefnu Vinstri grænna um að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan þess.

ESB-sinnar á Íslandi líta vonaraugum til Steingríms J. Sigfússonar um að hann sem nýr ráðherra landbúnaðar og sjávarútvegs auk annarra atvinnugreina standi fyrir aðlögun að Evrópusambandinu.


mbl.is Látinn víkja vegna ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ragnar Arnalds spyr um siðferðisþrek þingflokks VG

Ætlar forysta og þingflokkur Vinstri grænna að láta það yfir sig ganga að Jón Bjarnason sé flæmdur úr embætti vegna afstöðu sinnar til Evrópusambandsins? Þannig spyr Ragnar Arnalds á Vinstrivaktinni í dag.

Skammt er síðan forystulið ESB lét sig ekki muna um að koma háttsettum fyrrum embættismönnum úr starfsliði sínu í Brussel í stóla forsætisráðherra í tveimur aðildarríkjum, þ.e. á Grikklandi og Ítalíu. Þessu yfirþjóðlega liði finnst því sjálfsagt ekki til of mikils mælst að hér norður á Íslandi sé svo sem eins og einum landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra kippt úr umferð, svo að hann sé ekki að þvælast lengur fyrir áformum ESB.

 

Þingflokkur Vinstri grænna ræður ráðherrum flokksins.


mbl.is „Ekki sami maður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18% atvinnuleysi í Grikklandi

Neyðarástand er í Grikklandi þar sem atvinnulífið er botnfrosið vegna evrunnar sem tekur ekki mið af eymdarástandinu í jaðarríkjum heldur er verðlögð samkvæmt þörfum Frakklands og Þýskalands. Atvinnuleysi er 18 prósent og horfur versandi.

Eftir eitt ár á atvinnuleysisbótum missa Grikkir réttinn til bóta. Samkvæmt Die Welteru 500 þúsund Grikkir í fjölskyldum þar sem hvorugt foreldra er með vinnu. Áætlanir eru um að fá peninga frá Evrópusambandinu til að búa til störf fyrir 150 þúsund manns.

Samdráttur upp 5,5% varð í gríska efnahagskerfinu á þessu ári og áfram verður samdráttur á næsta ári. Innviðið grísks samfélags eru veikir og skattheimtan í skötulíki.

Skuldakreppan á evrusvæðinu mun áfram geisa á komandi ári.


Írland illa statt með evruna - auglýst eftir krónulausn

Hagfræðingurinn og dálkahöfundurinn David McWilliams segir Íra dæmda í langvarandi kreppu haldi þeir áfram að tilheyra evru-svæðinu. Hann bendir á íslensku leiðina úr kreppunni þar sem sjálfstæður gjaldmiðill er látinn falla svo að efnahagskerfið verið samkeppnisfært á ný.

Í pistlinum rekur McWilliams handónýta stöðu Írlands. Um 1000 Írar flýja eyjuna grænu vikulega og atvinnuleysið er um 15 prósent, meira en tvöfalt hærra en á Íslandi.

Í evru-samstarfinu er gengið fast, getur ekki fallið. Til að bæta tapaða samkeppnisstöðu þarf að skrúfa niður nafnlaunin, en það bara gerist ekki. Í staðinn segja atvinnurekendur upp fólki.

Með reynslu Íra í huga ættum við snarlega að leggja á hilluna öll áform um að farga krónunni.

(Tekið héðan.)


mbl.is Evran skelfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsla í Evrópu

Evrópskir bankar taka lán frá Seðlabanka Evrópu með 1 prósent vöxtum en þora ekki að endurlána peningana heldur geyma þá á innlánsreikningi Seðlabankans á 0,25 prósent vöxtum. Breska ríkisstjórnin er með viðbragðsáætlanir í tilfelli að evru-svæðið leysist upp.

Í meginatriðum blasa tveir kostir við evrusvæðinu. Hröð og óskipulögð óreiða á meðan gjaldmiðlasamstarfið liðast í sundur annars vegar og hins vegar langvinn óvissa þar sem einum neyðarfundi evru-leiðtoga er vart lokið þegar annar er boðaður.

Þriðji kosturinn, þar sem evrusamstarfið er tekið í sundur á yfirvegaðan hátt, er ekki lengur fyrir hendi.


mbl.is Litlar breytingar í evrópskum kauphöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Embættismenn Össurar umboðslausir í ESB-ferli

Evrópusambandið er klofið þar sem Bretar ákváðu 9. desember að taka ekki þátt í björgunaraðgerðum evru-samstarfsins. Forsendubrestur umsóknar Íslands frá 16. júlí 2009 er alger. Hvað gera embættismenn Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra? Jú, þeir skrifa grein þar sem þetta gullkorn er að finna

Ákvarðanir ESB um að takast á við skulda- og fjármálakreppuna kunna að sönnu að hafa áhrif á framtíðarsamstarfið innan vébanda Evrópusambandsins. Samninganefndin mun fylgjast með þeirri þróun og leggja mat á hana út frá hagsmunum Íslands í yfirstandandi viðræðum

Hér fer saman aulaháttur og drýldni. ,,Samninganefndin mun fylgjast með..." rétt eins og þessir pólitísku embættismenn hafi þá sérstöðu meðal Íslendinga að geta fylgst með upplausn evru-svæðisins. Hrokinn í orðunum ,,að leggja mat á hana út frá hagsmunum Íslands," undirstrikar hversu langt út í móa embættismenn Össurar eru komnir.

Þegar búið er að skipta um stjórnvöld hér á landi þarf að moka út úr utanríkisráðuneytinu pólitískum embættismönnum sem halda að þeir hafi umboð almennings til að framselja fullveldi þjóðarinnar til ríkjasambands í upplausn.

 


mbl.is Bretar mjög á móti evrunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

Heimssýnarbloggið óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

ESB getur ekki bjargað sjálfu sér

Evrópusambandið getur ekki bjargað evrunni og heldur ekki Evrópski seðlabankinn. Lánveitandi skuldsettra evru-ríkja til þrautavara verður Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn. Skortur á fjárhagslegu bolmagni er ekki ástæðan fyrir því að leitað er til Alþjóðlega gjaldeyrissjóðsins.

Ástæðan er pólitísk lömunarveiki sem birtist í því að Evrópusambandið getur ekki umbreyst í varanlegt ríkisvald, Stór-Evrópu, sem er forsenda fyrir sameiginlegum gjaldmiðli.

Næsti neyðarfundur Evrópusambandsins er boðaður í janúar 2012 og sá síðasti var 17. desember 2011. Allir nema skarpskyggni utanríkisráðherra Íslands vita um tilvistarkreppu ESB.

 


mbl.is Ósáttur við aðkomu AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stalínistar éta ekki gulrætur

Jón Bjarnason sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra er andstæðingur aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er líka andstæðingur aðildar. Ögmundur skrifar gagnmerkt blogg þar sem hann varar við blekkingum um undanþágur frá miðstýringu Brussel.

Hinir miklu „sigrar" við samningaborð í aðildarviðræðum hafa oftar en ekki reynst vera sjónhverfingar einar. Innganga í Evrópusambandið jafngildir að gangast enn lengra undir miðstýringu og regluverk ESB sem virðist engin takmörk þekkja fyrir forræðishyggju sinni.

Ögmundur skrifar bloggið í framhaldi af gulrótartilboði utanríkisráðherra.


mbl.is Sakaður um stalínisma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave: aðgöngumiðinn í ESB

Ríkisstjórnin tók að sér í verktöku fyrir Breta og Hollendinga að láta íslenskan almenning ábyrgjast skuldir einkabanka. Þjóðin fyrir milligöngu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta hafnaði í tvígang tilraunum ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. að bregða Icesave-klafanum á óbornar kynslóðir Íslendinga.

Ótækt er að ríkisstjórnin sem í tvígang var gerð afturreka með Icesave-samninga skuli eiga að gæta hagsmuna Íslands fyrir EFTA-dómstólnum vegna kæru eftirlitsstofnunar EFTA.

Ríkisstjórnin er rúin trausti í öllum málefnum er lúta að Icesave og Evrópusambandinu.


mbl.is Ósannfærandi fyrir dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.12.): 40
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 2003
  • Frá upphafi: 1176857

Annað

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 1825
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 37

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband