Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015
Fimmtudagur, 31. desember 2015
Landlæknir skammar Kristján Þór og þingmenn fyrir hættulegt frumvarp
Landlæknir telur að svokallað ESB-frelsisfrumvarp í heilbrigðismálum, sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur lagt fram, muni grafa undan heilbrigðisþjónustu hér á landi. Frumvarpinu er ætlað að gefa fólki kost á að sækja sér heilbrigðisþjónustu í útlöndum en landlæknir telur að kostnaður við það muni geta grafið undan þjónustu við sjúklinga hér á landi.
Það hefur áður verið fjallað um hugmyndir í þessa veru, sem eru liður í því að samþætta sem mest ýmsa opinbera starfsemi á svæði ESB og hinu evrópska efnahagssvæði.
Nú hefur sjálfur landlæknir tekið undir sjónarmið bloggara Heimssýnar! Er nokkur von til þess að heilbrigðisráðherra eða þingmenn vakni? Það er eins og menn haldi að heilbrigðiskerfið sé í því standi að það þoli hvaða ágjöf sem er!
Sjá síðari umsögn landlæknisembættisins hér.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30. desember 2015
Thomas Piketty: Aðeins sameinað stórríki í Evrópu getur bjargað evrunni
Franski hagfræðingurinn Thomas Piketty, einn af áhrifamestu hagfræðingum í dag, segir að það eina sem geti bjargað evrunni úr þeim vandræðum sem hún hefur ratað í sé sameiginlegt ríki að baki evrunni, með sameiginlega skattheimtu, sameiginlegum útgjöldum og sameiginlegum ríkisskuldabréfum. Þess vegna verði m.a. að auka vald ESB-þingsins þannig að það hafi forræði á fjármálum aðildarríkjanna.
Þetta kemur fram í nýlegri bók Pikettys, Peut-on sauver L'Eurpoe? sem á íslensku myndi útleggjast Getum við bjargað Evrópu? Bókin kom út í ár.
Piketty er þó þeirrar skoðunar að evrusamstarfið og Seðlabanki Evrópu hafi verið illa hönnuð fyrirbæri. Ekki aðeins vegna þess að evruna skorti nægilega sterkan bakhjarl, heldur einnig vegna þess að evrukerfið auki ójöfnuð og hygli fjármagnseigendum á kostnað almennings. Þannig sé m.a. í evrulöndunum og ESB-löndunum ekki tekið nógu fast á þeim sem komi fé undan í skattaskjól.
Þá óttast Piketty að í stað þess að ESB verði sterkt ríki með góðu lýðræðislegu fyrirkomulagi sem geri þegnunum kleift að takast á við alþjóðavæðingu kapítalismans þá verði ESB að verkfæri í höndunum á fjármálaöflunum sem krefjist þess að ýmsar öryggisreglur verði aflagðar, að samkeppni verði aukin á öllum sviðum og að grafið verði undan ríkisvaldinu og valdið fært í auknum mæli til markaðsafla.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22. desember 2015
Finnar betur settir án evrunnar
Mestu mistök Evrópusambandsins var upptaka evrunnar með þeim hætti sem það var gert. Finnar eru nú að súpa seyðið af því enda telja rúmlega tvöfalt fleiri Finnar að finnskt efnahagslíf væri í betri stöðu án evrunnar en þeir sem telja að það hefði slæm áhrif að segja skilið við hana.
Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar fyrir finnska ríkisútvarpið YLE. Samtals eru 44% Finna á því að efnahagur Finnlands væri í betri málum án evrunnar en 20% telja að finnskt efnahagslíf væri í verri stöðu utan evrusvæðisins. 30% segja að það myndi engu skipta.
Utanríkisráðherra Finnlands segir evruna hafa verið mjög skaðlega fyrir Finnland. Á sama tíma er fyrrverandi utanríkisráðherra að hvetja til þess að haldin verða atkvæðagreiðsla um veru Finnlands í ESB.
Finnar losna hins vegar ekki svo auðveldlega úr spennitreyju evrunnar. Landsmenn gera sér grein fyrir því.
En ferlega sjá margir eftir því að hafa tekið þennan vágest inn fyrir sínar dyr.
Telja Finnland betur sett án evrunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 18. desember 2015
Þingið réð ekki við ESB-málið
Þetta eru athyglisverð ummæli hjá Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra: Þingið réð ekki við ESB-málið. Þess vegna var bréf sent til ESB og þegar forkólfar ESB fengu bréfið hrukku þeir í kút af því þeir höfðu aldrei upplifað að ríki hefði hætt viðræðum. Þetta er athyglisvert.
Þingið ekki tilbúið í ESB-málinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 10. desember 2015
Íslendingar treysta ekki ESB
Íslendingar treysta ekki ESB. Það er niðurstaða könnunar sem MMR gerði á dögunum. Þá minnkaði traustið í garð ESB frá fyrri könnun og fór úr 27 prósentum fyrir ári í 23 prósent nú í haust. Vantrausti í garð ESB eykst að sama skapi. Það fer úr 42 prósentum í 44%.
Miðað við þetta er mætti ætla að Íslendingar hefðu lítinn áhuga á því að vera undir ESB komnir.
Fimmtudagur, 3. desember 2015
Danir hafna reglum ESB
Útgönguspár benda til þess að Danir hafi hafnað því að falla frá undanþágu sinni frá þátttöku í samstarfi ríkja ESB á sviði lögreglu- og dómsmála.
Danir eru ein af fáum þjóðum sem hafa fengið að kjósa reglulega um atriði sem varða ESB og oft hafnað tillögum regluveldisins í Brussel.
Aðrar þjóðir eru ekki jafn heppnar. Þar er það yfirvaldið sem ákveður fyrir þjóð sína.
Á myndinni er Rina Ronja Kari forystumaður Folkebevægelsen mod EU í Danmörku.
Danir segja nei | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 3. desember 2015
Seðlabankinn gefur peninga til að koma efnahagslífinu í gang
Seðlabanki Evrópu gefur peninga til að koma efnahagslífi Evrópu í gang. Stýrivextir voru í dag lækkaðir í mínus 0,3%. Þannig fá þeir bankar sem vilja taka lán í Seðlabanka Evrópu borgað fyrir í stað þess að greiða vexti.
Þetta er enn ein staðfestingin á langvarandi kreppu á evrusvæðinu - sem er fyrst og fremst sjálfu evrusamstarfinu að kenna.
Fimmtudagur, 3. desember 2015
Grikkir reknir að fjórðungi úr ESB
Grikkir ráða ekki við Schengen fyrirkomulagið og þess vegna vill ESB reka þá úr Schengen. Þar með yrðu Grikkir reknir að fjórðungi úr ESB - en ferðafrelsið er jú einn af fjórum hornsteinum ESB.
Það hriktir greinilega vel í stoðum ESB þessa dagana.
Sjá frétt mbl.is:
Evrópusambandið hefur varað Grikki við því að taki þeir ekki almennilega á flóttamannavandanum sem þeir glíma við fyrir miðjan desember standi þeir frammi fyrir því að verða reknir úr Schengen-samstarfinu. Þetta kemur fram í frétt viðskiptablaðsins Financial Times í gær og ennfremur að evrópskir ráðherrar og embættismenn sambandsins sjái hótun um brottrekstur sem örþrifaráð til þess að reyna að ýta á gríska ráðamenn í þessum efnum.
Verði hótunin framkvæmd verður það í fyrsta sinn sem ríki verður rekið úr Schengen-samstarfinu. Hótunin kemur í kjölfar yfirlýsinga forystumanna innan Evrópusambandsins um að herða þurfi eftirlit á ytri mörkum Schengen-svæðisins til þess að reyna að bjarga því. Evrópusambandið hyggst síðar í þessum mánuði leggja fram tillögu um að komið verði á fót sameiginlegri landamæralögreglu sem hefði vald til þess að taka yfir gæslu á ytri mörkum Schengen-svæðisins segir í fréttinni. Jafnvel gegn vilja ríkja á ytri mörkunum eins og Grikklands. Ísland er eitt þeirra Schengen-ríkja sem gætir ytri marka svæðisins.
Evrópusambandið hefur gagnrýnt grísk stjórnvöld harðlega fyrir að hafna aðstoð frá sambandinu við að styrkja gæslu landsins á ytri mörkum Schengen-svæðisins. Innanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda á næsta föstudag og er búist við að málið verði tekið til umræðu. Grikkir hafi ítrekað verið varaðir við brottrekstri í þessari viku. Þar á meðal í heimsókn Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemburg, til Grikklands en landið fer með forsætið innan Evrópusambandsins fram að áramótum.
Verða Grikkir reknir úr Schengen? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 1. desember 2015
ESB stofnar CIA
Leyniþjónustumenn í Brussel munu fylgjast með netumferð á Íslandi ef allar þessar hugmyndir ganga eftir og ESB-sinnar hafa sitt fram. Sjálfsagt yrðum við þá að skila fingraförum okkar og DNA-sýnum í gagnabanka leyniþjónustu ESB. ESB-lögreglan myndi síðan geta sótt grunaða og flutt þá til yfirheyrslu.
ESB ætlar sér að gína yfir öllu. Nema við spornum við fótum í tíma!
Vill evrópska CIA | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 1. desember 2015
Krugman kennir Þorvaldi Gylfasyni undirstöðuatriði í hagfræði
Þorvaldur Gylfason hefur að jafnaði forðast efnhagsleg rök fyrir upptöku evrunnar. Honum hefur, að minnsta kosti innlands, verið tamara að nota pólitísk rök, því hann er jú hagfræðingur sjálfur. Hugsanlega er þetta vegna pólitísks uppeldis hans. Paul Krugman, Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, hefur rekist á skrif Þorvaldar þar sem hann ber m.a. saman reynslu Íra og Íslendinga af fjármálakreppunni. Krugman bendir á að Þorvaldur gleymi eða geri lítið úr einu mikilvægasta atriðinu þegar lönd eru borin saman með þessum hætt, þ.e. atvinnu og atvinnuleysi.
Það er alveg merkilegt með þessa krata, sem í öðru orðinu segjast berjast fyrir hagsmunum hins vinnandi fólks, að það skuli jafnan gera lítið úr því hvernig evran hefur leikið atvinnulíf jaðarsvæða ESB grátt.
Kannski Þorvaldur sjái ljósið fyrst vinur hans, Nóbelsverðlaunahafinn, heldur á því.
Það skal minnt á í þessu samhengi að það er ekki bara verið að tala um að atvinnuleysið er miklu meira á Írlandi en Íslandi heldur fremur um að atvinnuástandið hafi batnað fyrr og betur á Íslandi, þökk sé krónunni (eða síðar og verr á Írlandi vegna evrunnar).
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Kosturinn við aðild afhjúpaður
- Húsnæðiskostnaður lægri á Íslandi en víða í Evrópu
- Skondin mótsögn
- Heimssýn á Samstöðinni
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 185
- Sl. sólarhring: 342
- Sl. viku: 2594
- Frá upphafi: 1165968
Annað
- Innlit í dag: 147
- Innlit sl. viku: 2238
- Gestir í dag: 142
- IP-tölur í dag: 142
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar