Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2024
Fimmtudagur, 29. febrúar 2024
Jón Baldvin í verkið
Sífellt kemur skýrar í ljós að það þarf að endurskoða samskipti Íslands við sambandið sem stjórnað er af gömlu nýlenduveldunum á meginlandi Evrópu.
Íslendingar þurfa í meginatriðum frjálsa verslun, en það er síður brýnt fyrir þá að greiða bandalaginu óbeina og síhækkandi skatta af ýmsu tagi, láta það ákveða hverjir mega fara til Íslands, setja lög um orkumál úti á Íslandi ákveða ótalmargt annað sem best er að heimamenn geri sjálfir.
Það þarf einhvern í að endurskoða EES-samstarfið með ofanritað og sitthvað fleira í huga. Til er maður sem þekkir EES afar vel og reyndar EFTA-samningana líka, af eigin raun. Sá maður hefur ferðast víða um lönd, nú síðast í liðinni viku. Í útlöndum er honum boðið að tala á virðulegustu samkomum og allir hlusta. Hann heitir Jón Baldvin Hannibalsson. Ætli hann eigi ekki lausa stund í svona samningastand?
Miðvikudagur, 28. febrúar 2024
Jón Baldvin og Friðrik 6.
Orð Jóns Baldvins Hannibalssonar Allt fyrir ekkert urðu fleyg. Þar var rætt um EES-samninginn þegar hann var nýfæddur. Þá voru Jón Baldvin og EES alltaf í fréttum.
Fréttir berast nú óreglulega af báðum, Jóni Baldvini og EES. Jón Baldvin átti afmæli um daginn og óskar Heimssýn honum til hamingju. Það gerði líka þjóðþing í útlöndum með heimboði, rauðum dregli og gylltu ræðupúlti fyrir Jón.
Ekki er vitað til þess að íslenskum stjórnmálamanni hafi verið gerður annar eins heiður í útlöndum, enda bárust um þetta fréttir til Íslands strax innan við viku eftir atburðinn. Það gerðist í vefmiðli sem heitir Mannlíf sem endurbirti hugleiðingar sonar Jóns Baldvins. Það er reyndar mikil framför frá þeim tíma þegar Íslendingar þurftu að bíða í nokkra mánuði eftir fréttum af andláti Friðriks konungs 6 sem var burt kvaddur í desember 1839.
EES-samningurinn á það sameiginlegt með Jóni Baldvini að vera ekki oft í fréttum þessa dagana, þótt tilefnin séu ærin. Samningurinn er farvegur fyrir stöðugan straum tilskipana sem kalla á heilmikil útgjöld og aðra armæðu.
Er það ekki einkennilegt?
Þriðjudagur, 27. febrúar 2024
Barn síns tíma
Sífellt fjölgar þeim sem taka til máls með gagnrýnum hætti um EES-samstarfið, sem óneitanlega hefur þróast með undarlegum hætti, þótt ekki sé fastar að orði kveðið. Eggert Sigurbergsson ritar á Fasbókarsíðu Heimssýnar eftirfarandi:
Mér er minnistæð grein ekki fyrir alls löngu þar sem fyrrverandi EES baráttumaður og ráðherra Alþýðuflokksins fór hringveginn. Hann sá ástæðu til að kvarta yfir því að það talaði enginn íslensku í öllum þeim veitingastöðum og sjoppum við þjóðveginn sem hann heimsótti og var að furða sig á hvers vegna. Stutta svarið er að það sem gerðist var EES, félagsleg undirboð (getulaus verkalýðsfélög) og vanvirðing ráðamanna við okkar menningu og tungumál. Í dag eru um helmingur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá með erlent ríkisfang og þúsundir eða jafnvel tugþúsundir eru "týndir" á Ísland, þvílík er óreiðan hjá þjóðskrá. EES er barn síns tíma, þegar tollar voru 10-20% á vörur frá Íslandi, og er fyrir löngu búið að snúast upp í andhverfu sína. Tollar á alþjóðavísu er um 3%, þökk sé WTO, og jafnframt er Ísland með tollfrelsi á frystum fiskafurðum með tvíhliða samningi Íslands og ESB frá 1973 sem er jafnframt rétthærri en EES. Nú eru blikur á lofti að útflutningur á ferskum fiski tilheyri fortíðinni enda á að skattleggja flutning á vöru og þjónustu í flugi til og frá Íslandi í nafni hamfarahlýnunar þar sem ESB hirðir ágóðann. Það er sannarlega kominn tími til að segja upp EES og helst sem fyrst því Norðmenn gætu verið á undan okkur.
Við minnum á Fasbókarsíðu Heimssýnar, sem vantar fleiri áskrifendur
https://www.facebook.com/groups/heimssyn
Mánudagur, 26. febrúar 2024
Heimsendir í nánd!
Eitt helsta einkenni Evróputrúboðsins eru heimsendaspárnar. Aldrei ganga þær eftir, en samt koma þær aftur og aftur. Jafnvel útgefendur kolvitlausra heimsendaspáa fara á kreik aftur, strax að lokinni rangri spá, og byrja að spá á ný.
Þannig var þetta í Icesave-málunum. Íslandi var spáð öllu illu í tvígang. Ekkert gekk eftir, en spámennirnir ganga um bísperrtir og halda áfram að mala eins og ekkert hafi í skorist. Í Bretlandi var spáð efnhagshörmungum ef BREXIT gengi eftir. Ekki urðu þær og nú eru horfur Breta bjartari en stórríkjanna sem enn eru í Evrópusambandinu. Í Noregi er búið að hóta myrkum miðöldum í tvígang, árið 1972 og 1994. Í bæði skiptin afþökkuðu Norðmenn aðild að bandalaginu og heimsendaspárnar fór rakleitt í vaskinn.
Nú eru nokkrar hjáróma raddir, m.a. Evrópuspekúlantsins Róberts Spanó, að reyna að gefa til kynna að illa fari ef Íslendingar samþykki ekki bókun 35, eftir 30 ára umhugsun. Því trúir auðvitað ekki nokkur maður, og líklega ekki einu sinni heimsendaspámennirnir sjálfir.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 03:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. febrúar 2024
Fæstir nenna að hlusta
Sagt er að Róbert Spanó sem skrifaði um bókun 35 í Morgunblaðið 22. febrúar sl. hafi um hríð gist sali embættismanna á meginlandi Evrópu og fengist við að segja Evrópuríkjum til. Alkunna er að í þeim menningarheimi er talið mikið framfaramál að færa sem mest vald í Evrópusalina og skilja sem minnst af því eftir hjá óupplýstum skríl í afkimum Evrópu. Við reynum að taka því fólki af umburðarlyndi, þótt fæstir nenni að hlusta á það lengi í einu.
Það hefði þó verið vert að hlusta ef Róbert hefði útskýrt hvers vegna bókun 35 varð eftir þegar EES var samþykktur fyrir 30 árum síðan. Hann gerði það ekki, svo það er best að við gerum það hér.
- EES hefði að öllum líkindum ekki komist í gegnum Alþingi með bókun 35.
- Meiri samstaða hefði verið með þeirri túlkun að EES gengi gegn stjórnarskrá lýðveldisins.
Hvort um sig hefði dugað til að slátra EES-samningnum á sínum tíma.
Við svona aðstæður bregða Evrópusinnar á gamalkunnugt ráð. Ef bitinn er of stór, þá er bara að skera í smærri bita og koma þeim þannig niður. Fyrst má koma EES strípuðum í gegn, svo getur bókun 35 fylgt þegar meltingarfærin eru tilbúin.
Fimmtudagur, 22. febrúar 2024
Trúmaður vitnar gegn lýðræði
Bókunarmálið tekur á sig sérkennilegar myndir. Róbert nokkur Spanó er mikill trúmaður á gæsku Evrópusambandsins og leynir því ekki. Hann reynir að koma því inn hjá lesendum Morgunblaðsins 22. febrúar að bókun 35 sé mikilvæg fyrir neytendur.
Undirtónninn í greininni er að Alþingi gæti aldrei staðið Evrópusambandinu á sporði við að setja sanngjarnar reglur um neytendarétt. Róbert er með öðrum orðum búinn að gefast upp á lýðræðinu, a.m.k. á þessu sviði og reyndar á flestum öðrum sviðum ef litið er til fyrri skrifa Róberts.
Sú skoðun á sér ýmis nöfn sem þykja misviðeigandi en eiga sameiginlegt að vera andheiti við lýðræði.
Sunnudagur, 18. febrúar 2024
Stimpilangist
Fleira forvitnilegt en hugmyndina um að EES útvegi erlent vinnuafl má heyra í ræðu háttvirts þingmanns Gísla Rafns Ólafssonar þann 13. febrúar sl. þar sem rætt var um bókun 35 og EES. Hann var nefnilega við störf í Evrópusambandinu bæði FYRIR og EFTIR gildistöku EES-samningsins.
Það hlýtur að koma þeim á óvart sem halda að Evrópa hafi verið lokuð Íslendingum fyrir EES.
Það var þó ekki þannig að EES hefði engin áhrif á Gísla Rafn. Stimplun yfirvalda í vegabréf Gísla Rafns breyttist nefnilega. Nú skal ekki gert lítið úr áhuga ungs fólks á stimplum, en er kannski fulllangt gengið að fórna fullveldi landsins fyrir stimpil sem engu breytir öðru en hugarástandi stimpilhafa?
https://www.althingi.is/altext/154/02/l13163820.sgml
Föstudagur, 16. febrúar 2024
Hvað segir furstinn í Katar um það?
Það voru fleiri en Bjarni Jónsson sem stóðu vaktina fyrir fullveldi Íslands á Alþingi 13. febrúar sl. Ingu Sæland, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Berþóri Ólafssyni mæltist vel, eins og menn geta heyrt eða lesið ef smellt er á tengilinn hér að neðan.
Afstaða nokkurra svokallaðra bókunarþingmanna er þeim örugglega erfið vegna þess að þorri kjósenda þeirra hefur ekki áhuga á að afhenda Evrópusambandinu meiri völd á Íslandi en það hefur nú þegar fengið. Þeir ættu að íhuga það og jafnframt skoða betur hvort nokkuð vit sé í því að halda þessu máli til streitu.
Margt skrýtið kemur fram í málflutningi bókunarþingmanna. Eitt af því er hugmynd Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, sem virðist telja að EES sé nauðsynleg forsenda þess að fá útlendinga í vinnu á Íslandi.
Hvernig skyldi ganga að útskýra slíkt fyrir furstanum í Katar þar sem erlendir verkamenn eru fleiri en aðrir íbúar landsins og Katar samt ekki í EES?
https://www.althingi.is/altext/154/02/l13163820.sgml
Evrópumál | Breytt 17.2.2024 kl. 06:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. febrúar 2024
Bjarni stendur vaktina
Það er ánægjulegt að þingmenn standi vaktina. Bjarni Jónsson sneri niður frumvarp um bókun 35 með snyrtilegum hætti. Hann sagði m.a.:
Hversvegna voru slíkar þjóðréttarlegar skuldbindingar ekki upp á borðum þegar fjallað var EES samninginn á sínum tíma og hann samþykktur á Alþingi? Að setja yrði ákvæði inn í íslensk lög til þess að geta tekið evrópskar reglur fram yfir íslenskar lagareglur. Nú tala jafnvel fyrrverandi þingmenn sem þá sátu á þingi og hafa síðan gerst sjálfskipaðir sérfræðingar um EES samninginn og skuldbindingar honum tengdum, um vonum seinni efndir á meintri skuldbindingu sem íslenska ríkið tók á sig við gerð EES-samningsins. Skuldbindingu sem hvorki þeir, eða aðrir sem til þekktu, færðu orð að þegar málið var til umfjöllunar.
Mánudagur, 12. febrúar 2024
Leiðindaskýrsla fyrir Alþingi 13. febrúar
Utanríkisráðherra hefur látið semja skýrslu um EES, Ísland og margrædda bókun 35. Nú vill hann að Alþingi tali um skýrsluna. Því er skemmst frá að segja að skýrslan er löng og leiðinleg.
Sagt er frá ýmsu í sögu EES og minnir sú upptalning helst á frásögn Pútíns af sögu Úkraínu síðasta árþúsund, í nýlegu sjónvarpsviðtali við bandarískan blaðamann.
Í skýrslunni er samsafn trúarjátninga á EES og fullyrðinga um að framsal löggjafarvalds sé eiginlega ekki framsal löggjafarvalds og að það sé auk þess í góðu lagi vegna þess að fundinn hafi verið gullinn meðalvegur með bókun 35.
En fyrst Alþingi fær málið til meðferðar er rétt að minna á eftirfarandi:
- Engar alvöru vísbendingar eru um að lífið á Íslandi væri að neinu leyti verra en það er í dag, ef ekki hefði verið EES-samningur.
- EES-samningurinn kostar Íslendinga mikið, bæði beint og óbeint. Það er tímabært að endurskoða hann með fríverslun í huga.
- Vandséð er annað en að í EES-samningnum felist í framkvæmd framsal löggjafarvalds. Það leyfir stjórnarskráin ekki. Svokölluð bókun 35 hnykkir rækilega á lögleysunni. Nær væri að vinda ofan af þessari furðuflækju löggjafar en að auka á flækjuna sem umlykur íslenskt samfélag.
https://www.althingi.is/altext/pdf/154/s/0948.pdf
Nýjustu færslur
- Rýrt umboð, eina ferðina enn
- Það er augljóst
- 10 milljarðar eru lika peningar
- Alvöru spilling
- Alvöru sparnaður
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- Að hlusta á þjóðina
- Ósvarað
- Aðalfundur
- Rykbindiefni
- Leiðindasuð
- Breyttur skilningur Samfylkingar á ESB-viðræðum
- Asni klyfjaður gulli
- Gullmolar á nýju ári
- Nýtt ár
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 78
- Sl. sólarhring: 310
- Sl. viku: 2013
- Frá upphafi: 1184420
Annað
- Innlit í dag: 71
- Innlit sl. viku: 1734
- Gestir í dag: 71
- IP-tölur í dag: 66
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar