Þriðjudagur, 22. ágúst 2023
Að deyja ekki ráðalaus
Eftir Brexit má segja að líkurnar á því að hægt væri að koma Noregi og Íslandi í Evrópusambandið væru komnar nálægt núlli. Hvaða ráð eiga þá gömlu nýlenduveldin og fylgiríki þeira? Jú, stunda skapandi túlkun á EES og koma Noregi og Íslandi inn í ótal mörgum örsmáum bútum. Það verður seint sagt að þetta fólk deyi ráðalaust.
https://www.facebook.com/groups/heimssyn
Mánudagur, 21. ágúst 2023
Honum fatast ekki flugið
Umræða um fánýti fullveldis og mikilvægi framsals valds til vandalausra í útlöndum á það til að renna út í sand vangaveltna um styrki, gengi gjaldmiðla og þokukenndan orðaflaum um alþjóðlegt samstarf. Jafnan er fljótgert að kveða svoleiðis tal í kútinn, en alltaf er hætta á að umræðan fari að snúast um verðið á snákaolíu og að hún virki ekki. Arnar Þór Jónsson hefur lag á að halda hæð í umræðu og hann er óhræddur við að ígrunda grundvallaratriði í samfélaginu og stjórnskipun þess.
Í ágætum pistli á Moggabloggi 17. ágúst sl. fjallar Arnar Þór um þessi mál og segir meðal annars:
Þegar lagareglur streyma í síauknum mæli utanfrá, frá ESB og SÞ, þá tekur stjórnarfarið að líkjast harðstjórn. Þegar fólk á ekki lengur hlutdeild í lögunum sem það á að búa við verða lögin ekki lengur sameign okkar heldur fyrirskipanir annarra. Undir slíku kúgunarvaldi dofnar smám saman tilfinning almennings fyrir því að þau séu bundin af lögum. Slíkt ástand leyðir til upplausnar, stjórnleysis og ofbeldis, þar sem hnefarétturinn ræður, en lögin eyðast.
Í þessum orðum felast mikil sannindi, sem og í pistlinum öllum sem er hér:
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2293156/
Sunnudagur, 20. ágúst 2023
Um mikilvægi dreifingar skónúmera
Á dögum umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu heyrðist stundum að Ísland væri svo líkt löndunum á meginlandi Evrópu að það væri í góðu lagi að þau fengju að stjórna Íslandi. Ekki fylgdi af hverju gömlu nýlenduveldin væru betur til þess fallin en lýðræðislega kjörin stjórnvöld á Íslandi, enda mjög erfitt að útskýra það.
En er Ísland eins og hver annar hreppur í Þýskalandi?
Líklegt að á báðum stöðum sé dreifing skónúmera svipuð, margir á báðum stöðum hlusti á Beethoven og finnist Einstein og Rembrandt hafa verið býsna lunknir náungar. Í báðum löndum sjúga menn í sig hveitilengjur með sósu, sparka bolta eða syngja hástöfum og finnst það ágætt. Þau líkindi skipta bara engu máli í því samhengi sem hér um ræðir. Það eru ólíkindin sem leiða til þess að heppilegt er að Íslendingar stjórni sér sjálfir, en að þeim sé ekki stjórnað af umboðsmönnum gömlu evrópsku nýlenduveldanna.
Atvinnulíf á Íslandi er mjög ólíkt iðnvæddum héruðum Evrópu og gjaldeyrisöflun er með öðrum hætti en annars staðar í álfunni. Stærð og lega Íslands, sem og veðurfar, þéttbýli og síðast en ekki síst mannfjöldi, gera að verkum að samgöngur, samskipti og fleira í gangverki samfélagsins er með öðrum hætti en annars staðar í Evrópu. Þá er menningarlegur munur töluverður. Á Íslandi er nefnilega töluð örtunga sem á í vök að verjast. Og hvað sem mönnum kann að finnast um yfirstandandi stríð í A-Evrópu er það staðreynd að stórfelld iðnvædd manndráp í pólitísku skyni eru óþekkt á Íslandi en inngróinn þáttur í menningu flestra annarra ríkja í Evrópu.
Lög og reglur Evrópusambandsins taka mið af aðstæðum og hagsmunum á meginlandi Evrópu, ekki á Íslandi og skiptir þá auðvitað engu máli hvort Ísland er innanborðs eða ekki.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 19. ágúst 2023
Andspyrnan
Eins og komið hefur fram á þessum vettvangi hefur furðu mikil og óskýrð stöðnun ríkt í efnahagsmálum í Svíþjóð síðustu áratugi. Svíar gerðust þegnar í Evrópusambandinu fyrir um 30 árum síðan og bundu margir miklar vonir við að það mundi leiða af sér blóm í haga og yfirfulla maga. Þeir voru reyndar ekki færri sem sáu tækifæri til að kenna öðrum Evrópubúum hvernig best væri að fara að, því það vissu Svíar vel.
Svíar hafa vel í sig og á, en sá blómagarður, sem sumir gerðu sér vonir um, er ekki enn sprunginn út. Gróska er þó í félagsmálum, því félagið Nej till EU dafnar. Það gefur út tímaritið Kritiska EU-fakta þar sem fjallað er um vandamálin við Evrópusambandið og aðildina að því.
Í hjálögðu hefti af Kritiska EU-fakta er fjallað um ýmis mál. Meðal annars er sagt frá því að svokallað bankasamband Evrópusambandsins hlaði undir stóra banka og sagt er að það auðveldi bönkum að ganga í opinbera sjóði. Þá er sagt frá því að í undirbúningi sé að veita yfirvöldum í Evrópusambandinu mjög víðtækar heimildir til að afla upplýsinga um einstaklinga og eins að fyrirhuguð séu lög sem veiti yfirvöldum tæki til að hafa víðtæka stjórn á flæði upplýsinga. Þá er sagt frá fiskveiðum Evrópumanna á Indlandshafi og átökum þeirra við heimamenn.
Óhætt er að mæla með tímaritinu Kritiska EU-fakta sem er ókeypis á netinu, þótt greinarnar skilji iðulega eftir fleiri spurningar en svör, eins og gefur að skilja þegar um stutt yfirlit er að ræða.
https://nejtilleu.se/wp-content/uploads/2023/06/KEF-170_.pdf
Föstudagur, 18. ágúst 2023
Leiktjöld Evrópusambandsins
Ein af biblíum Evrópusambandsins ber nafnið Kaupmannahafnarviðmiðin og er þar meðal annars fjallað um réttarríkið, mannréttindi, lýðræði og réttindi minnihlutahópa.
Bent hefur verið á að nokkuð hafi vantað upp á réttindi minnihlutahópa í sumum af þeim ríkjum sem gengið hafa í Evrópusambandið á síðari árum. Kannski fannst yfirvöldum viðkomandi landa það bara leiðindalið sem reglurnar ættu ekki að taka til. Það er að minnsta kosti þannig með sumar fréttastofur, en eins og lesendum þessarar bloggsíðu er kunnugt eru sumar rússneskar fréttastofur bannaðar í Evrópusambandinu. Það bann gengur gegn meintum hornsteini bandalagsins sem er lýðæði.
Evrópusambandið uppfyllir með öðrum orðum ekki skilyrðin sem þarf að uppfylla til að ganga í Evrópusambandið.
Fimmtudagur, 17. ágúst 2023
Þegar umhverfisskattur virkar öfugt við það sem honum er ætlað
Svokallaðir mengunarskattar eru m.a. ætlaðir til að breyta neyslumynstri til að draga úr mengun. Kolefnisskattar eru af þeirri gerð, þó svo deilt sé um hvort rétt sé að kalla koltvísýring mengun. Skattarnir virka misvel, ekki síst eftir því hverjir valkostirnir eru á hverjum stað. Fleira getur ruglað dæmið, til dæmis ef nýtt neyslumynstur leiðir til meiri mengunar í fjarlægu landi eða á öðru sviði sem ekki er í bókhaldinu.
Stundum virkar mengunarskattur í gagnstæða átt við það sem honum er ætlað. Lítum til dæmis á ferðalag frá Mílanó til Seattle. Ekki er kostur á beinu flugi, svo það verður að millilenda. Stysta leið liggur yfir suðvestanvert Ísland, svo millilending í Keflavík er ákjósanleg. Leiðin milli Mílanó og Keflavíkur verður skattlögð í botn, svo hún kemur varla til greina. Farþeginn velur því til dæmis að fljúga um Nýju Jórvík, sem er miklu lengri leið, en líklega ódýrari vegna skattfrelsis.
Niðurstaðan verður að skatturinn leiðir til meiri mengunar.
Nokkur íslensk fyrirtæki missa líka spón úr aski sínum, en það er annað mál.
Miðvikudagur, 16. ágúst 2023
Ábending til vinstrimanna og hinna líka
Árið 2009 óskaði Alþingi eftir inngöngu í Evrópusambandið og réði stór hluti þingflokks VG þar úrslitum. Lítill vafi er á að margir héldu á þeim tíma að Evrópusambandið væri eitthvað allt annað en það er. Tímabært er að rifja upp tvennt sem gerst hefur síðastliðin misseri sem ýmsir stuðningsmenn umsóknarinnar hefðu aldrei trúað að gæti gerst.
Í fyrsta lagi heldur Evrópusambandið kjötkvörn í Úkraínu gangandi af fordæmalausu kappi, en hún vinnur að líkindum á tæplega þúsund ungmennum á dag. Sambandið kaupir stríðstól og byssukúlur fyrir himinháar upphæðir og sendir austureftir.
Í öðru lagi bannar Evrópusambandi fréttaveitur sem þeim leiðist og almenningur tekur því þegjandi.
https://www.aljazeera.com/news/2023/7/20/eu-draws-up-plans-for-22bn-ukraine-weapons-fund
https://www.politico.eu/article/russia-rt-sputnik-illegal-europe/
Þriðjudagur, 15. ágúst 2023
Undarleg heimssýn og dögg fyrir sólu
Sú skoðun er furðu algeng að EES-samningurinn sé nánast forsenda fyrir byggð á Íslandi. Á þeim þremur áratugum sem liðnir eru frá því hann var gerður virðist hafa gleymst að fyrir var fríverslunarsamningur, kenndur við EFTA, og að flest samfélagsmál voru í svipuðum farvegi og í nágrannalöndunum.
Engum hefur tekist að benda á neitt sem augljóslega væri í ólestri á Íslandi ef ekki væri EES-samningur. Fylgismönnum EES-samningsins hefur engu að síður tekist að koma því viðhorfi rækilega á framfæri að ef ekki væri EES væri íslenskt samfélag í vanda og viðskipti við flest lönd á meginlandi Evrópu í uppnámi.
Það er undarleg heimssýn, en hún á sér hliðstæðu í Noregi. Morten Harper ræðir það í hjálagðri grein og rifjar upp að meirihluti Norðmanna hefur ekki hugmynd um að í gildi er fríverslunarsamningur með iðnvarning við Evrópusambandið og að sá samningur er óháður EES, enda eldri. Þessi ranghugmynd er líklega forsenda þess stuðnings sem eftir er við EES í Noregi. Sá stuðningur gæti því farið sömu leið og dögg í sólskini.
https://neitileu.no/aktuelt/myten-om-markedet
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Það er ástæða
- Rýrt umboð, eina ferðina enn
- Það er augljóst
- 10 milljarðar eru lika peningar
- Alvöru spilling
- Alvöru sparnaður
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- Að hlusta á þjóðina
- Ósvarað
- Aðalfundur
- Rykbindiefni
- Leiðindasuð
- Breyttur skilningur Samfylkingar á ESB-viðræðum
- Asni klyfjaður gulli
- Gullmolar á nýju ári
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.1.): 9
- Sl. sólarhring: 257
- Sl. viku: 1879
- Frá upphafi: 1184616
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 1608
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar