Leita í fréttum mbl.is

Efla þarf hagsmunagæslu á vettvangi evrópska efnahagssvæðisins

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir að efla þurfi hagsmunagæslu Íslendinga erlendis á grunni þeirra samninga sem Íslendingar hafa gert. Ætla má að fyrrverandi utanríkisráðherra hafi ekki sinnt þeirri hagsmunagæslu nægilega vel vegna áherslunnar á aðlögunarviðræðurnar sem þó skiluðu ekki mög miklu á fjórum árum og runnu út í sandinn áður en síðasta kjörtímabili lauk.

Visir.is segir svo frá:

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra segir ekki tímabært að ræða framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið fyrr en skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu viðræðnanna og þróun sambandsins hafi verið lögð fram. En í umræðum á Alþingi í gær greindi hann frá því að hann hefði óskað eftir því að stofnunin gerði slíka skýrslu.

Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, gagnrýndi Gunnar Braga harðlega fyrir að hafa leyst upp samninganefnd og viðræðuhópa Íslands vegna viðræðnanna og sagði hann þar með fara á svig við vilja Alþingis og fyrsta skrefið væri stigið til að slíta viðræðunum.

Utanríkisráðherra sagði ríkisstjórnina vera með jákvæða og metnaðarfulla sýn í Evrópumálum, með öflugu samstarfi við Evrópusambandið. Samskiptin við sambandið stæðu á traustum fótum og bæri EES-samstarfið þar hæst.

„Ég vil að við stundum sterka og sýnilega hagsmunagæslu innan EES og annarra samninga sem við höfum gert við Evrópusambandið,“ sagði utanríkisráðherra. Sem kallaði á mannafla og viðveru í Brussel. Tillögur í þessa veru væru á hans teikniborði og hann legði áherslu á tvíhliða samninga við sambandið.

Gunnar Bragi segir að ákvörðun um umsókn að ESB hafi verið tekin án þeirrar sannfæringar og samstöðu sem hefði þurft að vera til staðar. Fólk geti treyst því að viðræðurnar verði ekki teknar upp aftur fyrr en að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Össur Skarphéðinsson segir ráðherra hafa slegið Íslandsmet í ræðu sinni á Alþingi í gær.
„Því honum tókst í einni ræðu bæði að fara gegn eigin yfirlýsingum, storka fullveldi Alþingis og líka fara gegn stefnu ríkisstjórnarinnar,“ sagði Össur. En formenn stjórnarflokkanna hefðu báðir lýst því yfir að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna færi fram á þessu kjörtímabili. Almenningur byggist því réttilega við að staðið yrði við þau fyrirheit.

Skiptar skoðanir eru um Evrópumálin innan Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður flokksins, viðurkennir að hann sé í minnihluta innan flokksins. Hann telji rétt að Alþingi hefði átt að taka þá ákvörðun að gera hlé á aðildarviðræðunum þar sem ríkisstjórnin sæti í skjóli þingsins og hefði ekki sjálfstætt vald. Alþingi hefði ákveðið árið 2009 að farið yrði í viðræðurnar og Ísland hefði t.d. gerst aðili að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Alþjóðabankanum, EFTA, NATO og fleiri stofnunum með þingsályktunartillögum.

Til að vera sjálfstæð þjóð þurfi stundum að taka ákvörðun um fullveldisafsal til að vera með öðrum þjóðum. „Það er engin uppgjöf. Fullkomið sjálfstæði í samskiptum við aðrar þjóðir er ekki til lengur,“ sagði Vilhjálmur.


Gunnar Bragi Sveinsson er búinn að skemma aðlögunarferlið að ESB

Gunnar BragiGunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra kann tökin á þessu. Hann er búinn að skemma aðlögunarferlið að ESB að mati forystumanna ESB-aðildarsinna. Gunnar Bragi fór að vilja þjóðar, þings og stjórnarflokkanna og stöðvaði aðlögunarferlið. Það kosningaloforð er því í höfn.

Hið grátlega er þó að forystumenn ESB-aðildarsinna skilja ekki um hvað málið snýst. Þeir skilja ekki að flokkarnir samþykktu á æðstu samkundum sínum að stöðva viðræðurnar. Þeir skilja ekki að þjóðin vill ekki vera hluti af Evrópusambandinu - og þeir skilja ekki að evrusamvinnan hefur grafið undan hag Evrópuþjóðanna. Þeir skilja ekki að það þjónar ekki heildarhagsmunum íslensku þjóðarinnar að ganga í Evrópusambandið - jafnvel þótt það geti þjónað einhverjum þröngum hagsmunum.

Visir.is segir svo frá: 

Formaður Já-Ísland segir utanríkisráðherra skemma fyrir framhaldi evrópuumræðunnar með stefnu sinni og hann sniðgangi Alþingi í málinu. Farsælast væri að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um framhald viðræðna samhliða sveitarstjórnarkosningum næsta vor.

Samtökin Já-Ísland lýsa miklum vonbrigðum með ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra að leysa upp samninganefnd Ísland um aðild að Evrópusambandinu á meðan svo kallað hlé stendur yfir á viðræðunum. Jón Steindór Valdimarsson formaður Já-Ísland segir þessa ákvörðun ráðherrans sérkennilega.

„Okkur finnst þetta vera óvönduð vinnubrögð. Okkur finnst að ráðherrann sé þarna að lítilsvirða hvortveggja vilja Alþingis, hann snýr við vilja Alþingis án þess að bera það undir þingið,“ segir Jón Steindór. Og einnig liggi fyrir að meirihluti þjóðarinnar vilji leiða þetta mál til lykta og greiða atkvæði um framhaldið. Þetta hafi marg sinnis komið fram en samt kjósi ráðherrann að fara aðra leið.

Það séu vonbrigði að svo virðist að ekki eigi að standa við loforð um að þjóðin verði spurð um framhald viðræðna. En á Alþingi í gær sagði utanríkisráðherra þetta um málið:

„Engar skemmdir hafa verið unnar á einu né neinu. Aðildarumsókn hefur ekki verið afturkölluð. Engu hefur verið slitið. Þannig höfum við staðið að öllu þessu máli í góðri sátt við gagnaðila okkar. Enda bera viðbrögð Evrópusambandsins ekki merki annars en sambandið hafi fullan skilning á ákvörðun okkar um hlé á aðildarferlinu,“ sagði Gunnar Bragi.

Jón Steindór segir ráðherra sé þvert á móti að skemma fyrir ferli málsins með framgöngu sinni.

Já, það er verið að því. Það er sama hvað hver segir að þá er það nú einu sinni þannig í svona samskiptum að það er til eitthvað sem menn kalla stofnanaminni. Í stofnunum er bara fólk og það fennir mjög fljótt yfir svona hluti,“ segir Jón Steindór.

Bæði Evrópusambandið og íslenskt samfélag séu lifandi og því geti hlutirnir breyst hratt.

„Þannig að það er algerlega ótvírætt í mínum huga að þarna er verið að skemma fyrir. Hver vika sem líður án þess að þráðurinn sé tekinn upp, skemmir fyrir,“ Það eigi ótvírætt að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um framhaldið eins og formenn stjórnarflokkanna hafi lofað.

„Ég tel að það væri hið eina rétta í stöðunni. Og sennilega væri skynsamlegast í stöðunni að reyna að ná því með næstu sveitarstjórnarkosningum. Það er útgjaldaminnst og tiltölulega stuttur tími þangað til. En í öllu falli verður að útkljá þetta mál á þessu kjörtímabili og því fyrr því betra,“ segir formaður Já-Ísland.


Stefán segir aðlögunarferlinu lokið

Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, er búinn að átta sig á því að hann kemst ekki lengra með Ísland. Því sættir hann sig við að búið er að leysa upp þær samninganefndir sem tóku þátt í aðlögunarviðræðunum.

Mbl.is segir svo frá:

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undrast ekki þá ákvörðun ríkisstjórnar Íslands að leysa samninganefnd Íslands vegna viðræðna um inngöngu landsins í sambandið frá störfum. Framkvæmdastjórnin hefur sjálf ákveðið að leggja niður sérstaka Íslandsdeild á vegum stækkunarstjóra Evrópusambandsins sem sett var á laggirnar á sínum tíma vegna umsóknar Íslands og fengið starfsmönnum hennar önnur verkefni.

Þetta kemur fram í svar sem fréttavefurinn Eyjan.is fékk frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins þar sem leitað var eftir viðbrögðum hennar við þeirri ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra, að leysa formlega upp samninganefnd Íslands. „Þetta kemur framkvæmdastjórninni ekki á óvart, enda hefur ríkisstjórn Íslands ítrekað undirstrikað að hún ætli ekki að halda aðildarviðræðum áfram,“ segir í svari frá framkvæmdastjórninni.

Hins vegar undirskrikar framkvæmdastjórnin að hún sé eftir sem áður reiðubúin að hefja viðræður á ný án fyrirvara ef íslensk stjórnvöld óska þess. Sérfræðiþekking sem aflað hafi verið í tengslum við viðræðurnar til þessa glatist ekki þó starfsmenn séu settir í önnur verkefni.


mbl.is ESB undrast ekki ákvörðun Gunnars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OECD varar við stöðunni á evrusvæðinu

Bankar á evrusvæðinu þurfa nauðsynlega á aukinni fjármögnun að halda ef takast á að koma á stöðugleika á svæðinu að mati Efnahags- og framfarastofnun Evrópu (OECD).

Mbl.is skýrir svo frá: 

Fram kemur í skýrslu frá stofnuninni sem gefin var út síðastliðinn þriðjudag að nauðsynlegt sé að grípa til ráðstafana til þess að stuðla að trúverðugleika eignasafns bankanna fyrir álagspróf næsta árs og tryggja aðgengi þeirrar að fjármagni minnki eiginfjárhlutfall þeirra.

Aðalhagfræðingur OECD, Jorgen Elmeskov, varaði við því á blaðamannafundi að þó evrusvæðið væri ekki lengur í niðursveiflu þá væri svæðið enn viðkvæmt fyrir frekari spennu á mörkuðum og vegna skuldastöðu fjármálastofnana og ríkja.


mbl.is Evrubankar þurfa aukna fjármögnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendir miðlar hafa eftir Sigurði Inga að hótanir skili ekki árangri í makríldeilunni

SigurðurIngiFréttamiðillinn SeefoodSource.com hefur eftir Sigurði Inga Jóhannssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að samningalipurð en ekki hótanir muni skila árangri í makríldeilunni.

Frásögnina er hægt að finna hér.

Samningafundur um skiptingu makrílsstofnsins hófst í Reykjavík í gær, en fundinum lýkur í dag. Fundinn sitja fulltrúar Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins. Norðmenn og ESB krefjast þess að Íslendingar og Færeyingar dragi úr veiðum og hefur Framkvæmdastjórn ESB hótað að leggja löndunarbann á fiskafurðir frá Íslandi og Færeyjum vegna veiða þeirra á makríl.

,,Við vonumst til þess að hótunum um refsiaðgerðir verði vikið til hliðar og að samningaaðilar muni mæta til þessara viðræðna með opnum huga," hefur miðillinn eftir Sigurði Inga Jóhannssyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hann segist sannfærður um að makríldeilan verði leyst með samræðu og samningum en ekki hótunum.

Í dag klukkan 14 verður yfirgangi ESB í deilunni mótmælt á Ingólfstorgi. Um leið verður hægt að smakka á vel matreiddum makríl, auk þess sem boðið verður upp á harmonikkutónlist við hæfi.

 


Sigurgeir Þorgeirsson er vonsvikinn með ESB

SigurgeirFormaður samninganefndar Íslands í deilunni við ESB um makrílveiðar er vonsvikinn með hótanir ESB í garð Íslendinga. Á morgun klukkan 14 verður yfirgangi ESB í deilunni mótmælt á Ingólfstorgi. Um leið verður hægt að smakka á vel matreiddum makríl, auk þess sem boðið verður upp á harmonikkutónlist við hæfi.

Svo segir mbl.is frá:  

Samningafundur um skiptingu makrílsstofnsins hófst í Reykjavík í morgun. Sigurgeir Þorgeirsson, formaður samninganefndar Íslands, segist vona að allir komi til fundarins með það að markmiði að ná árangri.

Fundurinn stendur í dag og á morgun. Fundinn sitja fulltrúar Íslands, Færeyja, Noregs og Evrópusambandsins. Norðmenn og ESB krefjast þess að Íslendingar og Færeyingar dragi úr veiðum og hefur Framkvæmdastjórn ESB hótað að leggja löndunarbann á fiskafurðir frá Íslandi og Færeyjum vegna veiða þeirra á makríl.

„Við vonum að allir komi til fundarins með því hugarfari að ná árangri og hótanir liggi ekki í loftinu,“ sagði Sigurgeir í samtali við Morgunblaðið fyrir fundinn. Hann sagði hótanir ESB um refsiaðgerðir gegn Íslandi í aðdraganda fundarins vissulega valda vonbrigðum.

„Það segir sig sjálft að það eru ákveðin vonbrigði að eftir að þessi fundur var boðaður, og eftir að allir aðilar höfðu þegið fundarboð, skuli því enn hafa verið veifað að refsiaðgerðir ESB gegn Íslandi væru í undirbúningi. Við göngum engu að síður bjartsýnir til fundarins. Við erum með góðan málstað, og við ætlumst til að aðrir, ekki síður en við, komi með uppbyggilegar tillögur,“ sagði Sigurgeir.

Fimm ára gömul deila

Forsaga deilunnar er sú að makríll fór að ganga inn í lögsögu Íslands í miklu magni upp úr miðjum síðasta áratug og veiðar Íslendinga jukust mikið 2007 til 2010. Allt frá því að farið var að stjórna nýtingu makríls á vettvangi Norður-Atlantshafsfiskveiðiráðsins 1999 sóttist Ísland eftir að verða viðurkennt strandríki en var ekki samþykkt fyrr en 2010.

Deilan um skiptingu stofnsins hefur staðið síðan 2008.


mbl.is Fundur í makríldeilunni hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makrílhátíð fyrir almenning á sunnudag

makrillHeimssýn ætlar að bjóða gestum og gangandi upp á grillaðan makríl á Ingólfstorgi á sunnudaginn á milli klukkan 14 og 17 í tilefni af því að fulltrúar Íslands, Noregs, Færeyja og ESB hittast í Reykjavík um helgina til að ræða um þennan góða matfisk. Með þessu vill Heimssýn undirstrika mótmæli sín gegn framgöngu ESB í makrílmálinu.

Boðið verður upp á tónlist við hæfi, en hinir feykigóðu harmonikkubræður munu flytja nokkur frábær harmonikkulög á meðan á samkomunni stendur.

Þá hefur Heimssýn sent frá sér ályktun þar sem fram kemur að hún harmar framgöngu ESB í makríldeilu sambandsins við Íslendinga, auk þess sem hótanir um að beita Íslendinga viðskiptaþvingunum eru harmaðar.

Hér er ágæt uppskrift fyrir matreiðslu á makríl:

Makríll í hvítlauki

2 miðstærðar makríl
5 hvítlauksrif, pressuð
100g smjör
salt
pipar
1 eða 2 sítrónur

Forhitið grillið að miðlungs hita og berið olíu á rimlana.

Bræðið smjör í lítinn pott og bætið hvítlauknum við.

Skerið þrjár rifur á báðum hliðum fisksins. Kryddið vel með salti og pipar. Setjið fiskinn á grillið í 4-5 mínútur. Snúið fiskinum við og látið liggja í 4-5 mínútur. Takið fiskinn af grillinu og setjið brædda hvítlaukssmjörið yfir (um það bil 2-3 matskeiðar).

Kreistið sítrónu yfir fiskinn og berið fram strax.

Namminamm!


mbl.is Heimssýn heldur makrílhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leki hjá framkvæmdastjórn ESB

Upplýsingar um áframhaldandi samdrátt á evrusvæðinu eru svo viðkvæmar að þær komast ekki fyrir augu og eyru íbúa Evrópusambandsins nema þeim sé lekið. Í það minnsta þurfti leka til þess að frétt birtist í fjölmiðlum um að kýpverska hagkerfið dragist saman um 13 prósent á þessu ári og næsta og að samdráttur verði til ársins 2015.

Ekki fylgir fréttinni hver lak henni eða hvernig, né hvaða augum menn líta lekann. Hins vegar kemur fréttin fæstum á óvart sem fylgst hafa með málefnum Kýpur að undanförnu.


mbl.is Spáð 13% samdrætti á Kýpur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Sept. 2013
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 830
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 744
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband