Fimmtudagur, 7. desember 2023
Kveikur í graut
Sérkennilegur þáttur um peningamál var sýndur á sjónvarpsstöð sem kallar sig RÚV og margir kannast við. Þátturinn ber nafnið Kveikur og var sýndur 5. desember síðastliðinn.
Í þættinum er margoft endurtekið að sum fyrirtæki á Íslandi geri upp í erlendri mynt, en slíkt standi heimilum ekki til boða. Ekki er ljóst hvers konar uppgjör er vísað í, því eins og flestir vita skila hvorki einstaklingar né einkaheimili bókhaldi, hvað þá ársreikningum. Það er hinn bóginn ljóst að mönnum er frjálst að semja um launagreiðslur í nánast hverju sem er, þar með talið evrum, dölum, salti eða gulli. Eins geta menn keypt útlenda peninga fyrir öll launin sín og geymt þá undir koddanum eða annars staðar þar sem hentar.
Þá má af sjónvarpinu skilja að með því að gera ekki upp krónum, heldur dölum eða evrum sé hægt að láta bókhald fyrirtækja líta svo vel út að það verði auðveldara að fá lán og að lánið verði jafnvel ódýrara en ef gert er upp í krónum. Allt er það sérkennilegt og virðist byggjast á því að hægt sé að stunda bókhaldssjónhverfingar sem bankar sjái ekki í gegnum þegar þeir skoða rekstur og eignir fyrirtækja sem vilja fá lán. Hvað skyldu bankamenn segja um það?
Ótalmargt fleira sem ástæða væri til að ræða frekar var kynnt í fyrrnefndum þætti, en eitt af því undarlegasta var þegar viðmælandi sagði undir lok 9. mínútu þáttarins að raunvextir á íbúðalánum á Íslandi væru rúmlega 10%. Eins og flestir vita er það ekki rétt. Raunvextir á íbúðalánum í stærsta banka Íslands eru rúmlega 3%. Öllum getur orðið á og í beinni útsendingu verða mismæli ekki löguð eftir á. Hér er á hinn bóginn ekki bein útsending, heldur þáttur þar sem klippt er út og suður og allt hægt að laga og leiðrétta. Það er samt ekki gert. Þáttastjórnandi leiðréttir viðmælandann ekki og tökumaður slekkur ekki og byrjar upp á nýtt eins og venjan er þegar viðmælandi ruglast í ríminu. Ekkert er heldur lagað í vinnslu þáttarins. Það vekur óneitanlega upp spurningar um hversu vel þeir sem að verkinu standa skilja það sem fjallað er um. Eru áhorfendur kannski að horfa inn í einhvers konar hliðarveruleika þar sem allt er í graut og óljós tengsl við raunveruleikann?
Sunnudagur, 3. desember 2023
Bragarbót
Heimssýnarbloggið mætti að mati sumra færa fram fullveldisrökin í bundnu máli. Það er vandalaust, því flest skáld eru vitaskuld fullveldissinnar.
Guðjón Bragi Benediktsson ríður á vaðið. Við tökum við fleiri kvæðum til birtingar og ævarandi varðveislu.
Skattajól
Ísalands landráða fól
á Alþingi eiga sér skjól
Þar stimpla þeir evrópsk skjöl
Í pokanum óhreint mjöl
Þeir skattleggja flug og frakt
sem forríkra eykur makt
En láglaunamaðurinn blæðir
því vöruverð stígur í hæðir
Loftslags landráðfól
losunarheimildir skerða
sultaról almúgans herða
Ísafoldar eykst nú böl
Í lífskjarafangelsið vantar þjöl
Ísalands Quislinga hjörð
Svipa köld og hörð
á eigin þjóð -hve dapurt það ljóð
Í þriðju þingmeðferð haninn gól
Svikastjórn býður gleðileg jól
Guðjón Bragi Benediktsson
Evrópumál | Breytt 5.12.2023 kl. 17:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 2. desember 2023
Grafið undan lýðræði
Valdaframsal til Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar er áhygguefni. Arnar Þór Jónsson hefur tekið saman minnisblað um málið sem vísað hefur verið til hér og finna má á Moggabloggi Arnars Þórs. Í nýlegri færslu tekur hann saman nokkra punkta sem ástæða er til að endurtaka hér. Þeir eru:
- WHO yrði veitt sjálfdæmi þegar kemur að því að lýsa yfir alþjóðlegri heilbrigðisvá (e. PHEIC) og leyft að víkka skilgreiningu á hættuástandi þannig að það nái til loftslagsbreytinga og umhverfisvanda. Þetta vald er hvergi temprað og hvergi gert ráð fyrir möguleika aðildarríkja / borgara til að leita endurskoðunar eða aftra því að WHO framlengi slíka yfirlýsingu um hættuástand með endurteknum hætti.
- Tilmæli sem áður bundu ekki aðildarríki eiga nú að verða bindandi gagnvart þeim, auk þess sem bætt er við ákvæðum um eftirlit af hálfu WHO og jafnvel refsiaðgerðir gagnvart ríkjum.
- WHO yrðu veittar heimildir til að stýra upplýsingaflæði og beita ritskoðunarvaldi þegar kemur að gagnrýni og almennri umræðu. Þetta yrði gert undir því yfirskini að nauðsynlegt sé að berjast gegn röngum upplýsingum og upplýsingaóreiðu. Þessar áætlanir fela í sér aðför að lýðræðinu, því engin valdastofnun má fá einkaleyfi / skilgreiningarvald yfir sannleikanum.
- Nýju IHR reglurnar gera ekki ráð fyrir að valdinu sé dreift á fleiri hendur til að verja menn gegn valdníðslu og ofríki valdhafa. Þetta brýtur auðsjáanlega í bága við stjórnskipulegar undirstöður Íslands eins og annarra vestrænna ríkja.
- IHR reglurnar gera ekki ráð fyrir að handhafar valdsins hjá WHO beri neina ábyrgð gagnvart almenningi. Engin þjóð sem þekkir réttarsöguna kallar slíkt vald yfir sig án umræðu, því valdhafar sem bera enga ábyrgð munu fyrr eða síðar misnota það vald.
- IHR reglurnar ógna grundvallarmannréttindum og mannlegri reisn. Sú hætta telst raunveruleg í ljósi reynslu síðustu ára, því ef dómstólar veita ekki viðnám og kjósa jafnvel að líta fram hjá stjórnarskrárákvæðum eins og gert var hér á Íslandi í kófinu þá er almenningur í reynd varnarlaus fyrir ofríki stjórnvalda. Fórnir fyrri kynslóða til að verja borgarana fyrir ofríki stjórnvalda með skýrum stjórnarskrárákvæðum mega ekki verða gengisfelldar með því að fólki sé gert að hlýða fyrirskipunum valdhafa og þóknast þeim í hvívetna.
Þótt helmingurinn af þessu væri oftúlkun, sem allt bendir til að sé ekki, væri málið mikið áhyggjuefni. Alþingismenn komast ekki hjá því að taka á málinu næstu vikur og mánuði.
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296947/
Föstudagur, 1. desember 2023
Ísland fullvalda í 105 ár
Í dag höldum við upp á 105 ára afmæli fullveldis Íslands. Segja má að fullveldið sé gjöfulasta auðlind Íslendinga, því án þess væri óvíst með nýtingu annarra auðlinda og allt eins líklegt að flest væri í doða og dáðleysi á Íslandi.
Fjölmargir Íslendingar taka reglulega til máls um mikilvægi fullveldis, og eftir því sem meira er sótt að fullveldinu, því fleiri verða raddirnar sem koma því til varnar. Hjörtur J. Guðmundsson er einn þeirra manna sem ekki hefur setið þegjandi. Sómi er af skrifum hans á vefinn fullveldi.is. Hjörtur ritar fullvediskveðju á Fasbókarsíðu sína og gerum við hana að kveðju okkar til landsmanna:
Evrópumál | Breytt 2.12.2023 kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. nóvember 2023
Valdaránskennslubókin
Af greinargerð Arnars Þórs Jónssonar verður varla annað séð en að fyrir dyrum sé stórfellt framsal á stjórnvaldi frá íslenskum stjörnvöldum til erlendrar stofnunar sem rekin að að stórum hluta af alþjóðlegum stórfyrirtækjum.
Þetta gæti reynst Íslendingum dýrkeypt nái það fram að ganga!
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296834/
Og við minnum á fullveldisfagnað á morgun. Jakob Frímann mun mæla vel valin orð.
Fullveldisfagnaður 1. desember 2023
Heimssýn fagnar afmæli fullveldis Íslands kl. 19:00 föstudaginn 1. desember næstkomandi. Fundað verður við Álfabakka 14a í Mjódd.
Jakob Frímann Magnússon, Arnar Þór Jónsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Birgir Steingrímsson og Haraldur Ólafsson flytja stutt ávörp
Léttar veitingar
Allir velkomnir
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 30. nóvember 2023
Hver á að ráða heilbrigðismálum? - Skýrsla að lenda
Furðu lítil umræða hefur verið um samninga og samskipti við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO) sem sækist eftir auknu valdi yfir þegnum jarðar. Þar er ýmislegt að varast og ekki er laust við að margir bíði óþreyjufullir eftir að fá að lesa það sem Arnar Þór Jónsson, fv. dómari hefur tekið saman um málið.
Arnar Þór segir þetta m.a.í Morgunblaðinu:
Á þessum vettvangi þurfa menn að standa vaktina og verja fullveldið, ellegar vera reiðubúnir að hafna breyttum reglum með beinni yfirlýsingu þar að lútandi. Vakandi hagsmunagæsla fellur undir starfshlutverk kjörinna fulltrúa. Fullveldisréttur þjóða er fjöregg þeirra og forsenda virks lýðræðis. Umræðu um þau mál á ekki að drepa á dreif eða reyna að jaðarsetja með órökstuddum fullyrðingum og óígrunduðum staðhæfingum. Ég skora á alþingismenn að kynna sér minnisblað sem ég hef unnið um þessi mál og sent verður þeim öllum síðar í dag. Þeirri hvatningu er sérstaklega beint til heilbrigðisráðherra og mun ég afhenda honum minnisblaðið í eigin persónu á fundi okkar í dag.
Hér verður skýrslan sem fengið hefur hið hógværa heiti "minnisblað" birt í dag, 30. nóvember 2023:
https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296861/
Þriðjudagur, 28. nóvember 2023
Fullveldisfagnaður 1. desember 2023
Fullveldisfagnaður 1. desember 2023
Heimssýn fagnar afmæli fullveldis Íslands kl. 19:00 föstudaginn 1. desember næstkomandi. Fundað verður við Álfabakka 14a í Mjódd.
Arnar Þór Jónsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Birgir Steingrímsson og Haraldur Ólafsson flytja stutt ávörp
Léttar veitingar
Allir velkomnir
Það vantar líka fleiri áskrifendur á Fasbókina: https://www.facebook.com/groups/heimssyn
Mánudagur, 27. nóvember 2023
Samtalið sem lak
Það lekur meira en Landsréttur. Þetta meinta samtal milli embættismanna á Íslandi og í Evrópusambandinu gengur manna á milli. Það skýrir kannski hvers vegna ekkert heyrist frá útlendu sérfræðingunum sem komu til að leiðbeina við rýmingu og að spá eldgosi.
E: Við fréttum að allt væri í hers höndum hjá ykkur á Íslandi
Í: Ætli þetta reddist ekki.
E: Það skiptir ekki máli. Nú þarf að sýna samstöðuna. Samstöðuna, maður! Má ég segja að þið hafið beðið um aðstoð og senda svo Alessandró og Eeví til þín?
Í: Við höfum nú ágæt tök á þessu og það sér örugglega einhver í gegnum það, ef við förum að biðja ykkur um aðstoð.
E: Hvaða vitleysa, það sér aldrei neinn í gegnum neitt. Mundu svo að ef þú biður okkur að koma bjóðum við þér á næsta fund. Og þarnæsta líka. Og þann sem kemur á eftir, eins langt og augað eygir.
Í: Jæja þá. Eins og ykkur sýnist.
Nýjustu færslur
- Horft í gegnum þokuna í bókunarmálinu
- Landráð?
- Öskrandi stríðsvagn fyrir Íslendinga
- Hann þrengir að öndunarveginum
- Það er ekki smæðin
- Bréfið
- Einföld útskýring Jóns Steinars - og upprifjun Jóns Bjarnason...
- Fátt um svör
- Undarleg rök þingmanna
- 7 aðalatriði
- Stjórnarskrá í ruslið?
- Vill embættismaður komast í feitt?
- Það sem breyttist - 8 atriði
- Safnast þegar saman kemur
- Ekki spurðir
Eldri færslur
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 119
- Sl. sólarhring: 319
- Sl. viku: 2015
- Frá upphafi: 1229497
Annað
- Innlit í dag: 109
- Innlit sl. viku: 1811
- Gestir í dag: 107
- IP-tölur í dag: 107
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar