Miðvikudagur, 23. mars 2022
Samningaviðræðufarsinn hafinn á ný
Upp er komin umræða um atkvæðagreiðslu um undirbúning að innlimun Íslands í Evrópusambandið.
Hugmyndin er að greiða atkvæði um fela Alþingi að ræða málið við Evrópusambandið. Svo vill til að stór meirihluti á Alþingi hefur engan áhuga á að ganga Evrópusambandinu á hönd.
Hvernig skyldi þetta fólk sjá fyrir sér viðræður Alþingis og sambandsins við slíkar aðstæður?
Sunnudagur, 13. mars 2022
Mannfórnir í Evrópu og þroskastig stóru Evrópuríkjanna
Nú standa yfir ótrúlegar og dapurlegar mannfórnir í Austur-Evrópu.
Að því kemur að stríði lýkur og einhvers konar niðurstaða kemur í það sem deilt var um. Spyr þá einhver hvort ekki hefði mátt fá þá niðurstöðu án mannfórna. Óvíst er að nokkur verði til svars.
Pólitískar mannfórnir hafa löngum verið þáttur í menningu stóru Evrópuríkjanna. Í meginatriðum er óhætt að segja að Íslendingar hafi komist á annað þroskastig fyrir um 700 árum. Því ber að halda til haga.
Á Íslandi er lítill hópur stjórnmálamanna sem reynir að nýta sér styrjöldina til að suða um að nú þurfi Evrópusambandið að fá völdin á Íslandi.
Ætli þessu fólki sé sjálfrátt?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 28. febrúar 2022
Evrópusambandið og fallbyssufóðrið
Flestum er í fersku minni þegar umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu var samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009. Þar voru í fararbroddi stjórnmálahreyfingar sem hafa löngum talið sér skylt að veita friðar- og afvopnunarmálum brautargengi. Ekki vildu allir á þeim bæjum horfast í augu við hið hernaðarlega eðli Evrópusambandins og mösuðu þess í stað í sífellu um að þeir hefðu oft komið til Evrópu og aldrei séð Evrópusambandshermann.
Nú, rúmum áratug síðar stingur Evrópusambandið sér á bólakaf í blóðuga styrjöld í Evrópu. Sambandið kaupir og afhendir vopnin. Ekki er þörf á að kaupa menn til að bera þau, því einn styrjaldaraðila útvegar þá með því að afnema ferðafrelsi og þvinga menn nauðuga í veg fyrir byssukjaftana. Það er gamall evrópskur siður sem Evrópusambandið kippir sér lítið upp við, og kannski ekki heldur vinir þess á Íslandi.
https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/statement_22_1441
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 25. febrúar 2022
Evrópumenning er ýmislegt
Það fór þá svo að ógæfan sem menn óttuðust helltist yfir í Austur-Evrópu. Það er dapurlegt, en kemur því miður ekki á óvart.
Stjórnendur ríkis telja sér ógnað af öðru ríki og reyna að skipta þar um stjórn með hólkum og púðri. Þeir sem fyrir sitja á fleti bregðast við eins og venja hefur verið í flestum löndum Evrópu í aldaraðir, með því að loka hálfa þjóðina inni og þvinga hana í veg fyrir fallstykkin. Mörg ríki Evrópu telja sér skylt að útvega þessu fólki púður og blý sem ljóst er að hefur þann tilgang helstan að auka blóðstreymið og fylla kjötkvarnirnar. Allt er þetta ríkur þáttur í menningu mjög margra, ef ekki flestra Evrópuríkja.
Hlutur Íslendinga í þessum leik er að reyna að tala um fyrir mönnum þar sem því verður við komið og umfram allt að gæta þess eins og framast er unnt að ekkert þeirra ríkja og engin þeirra þjóða sem þarna eiga hlut að máli á fái nein völd á Íslandi.
Fimmtudagur, 27. janúar 2022
Arnar og Ögmundur
Á sínum tíma óskuðu íslensk stjórnvöld eftir innlimun Íslands í Evrópusambandið. Fór sú áætlun út um þúfur eins og við mátti búast, enda var allt það upphlaup við annarlegar aðstæður sem gengu hratt yfir. Líklegt verður að telja að kynslóðir framtíðar munu líta á þessa ósk íslenskra stjórnvalda eins og afglöp ölóðs manns og að bankahrunið 2008 hafi verið ölið.
Í ölæði umsóknarinnar náðu smámál á borð við gengisskráningu, fjármögnun skóla og smásöluverð á áleggi stundum að fljóta upp í umræðu sem að öllu eðlilegu hefði átt að eiga sér stað um grunngildi samfélagsins og stjórnskipun. Líkur á innlimun Íslands í Evrópusambandið eru nánast að engu orðnar, en engu að síður er ástæða til að fagna umræðu um fullveldismál. Að öðrum ólöstuðum hafa þeir Arnar Þór Jónsson og Ögmundur Jónasson lagt drjúgt til í þeim málum. Það er óhætt að mæla með samtali þeirra um lýðræði, fullveldi, ábyrgð og fleira á Útvarpi sögu 18. janúar sl.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 8. janúar 2022
Við vissum það reyndar
Það er ekkert launungarmál að Þjóðverjar og Frakkar ráða í Evrópusambandinu. Hinir dingla með. Í þessum tveimur löndum er það heldur ekki feimnismál, þótt víða annars staðar sé það svo. Það er því eðlilegt að í sáttmála þýsku ríkisstjórnarinnar sé tekið á því hvernig fara skuli með Evrópusambandið, enda er það gert. Í Evrópukaflanum er fjallað um að stefnt skuli að öflugu sambandsríki Evrópu. Færa skuli Evrópuþinginu meiri völd en það hefur nú og opna á fjölþjóðleg framboð til þingsetu. Ljóst er að það mun leiða til þverrandi áhrifa smáríkja sem nú hafa fyrirfram ákveðinn fjölda þingsæta. Annað væri ólýðræðislegt og það sér þýska ríkisstjórnin auðvitað.
Við vissum þetta reyndar allt saman, en það er ágætt að fá það staðfest eina ferðina enn, í þetta sinn frá æðsta ráði höfuðbólsins.
Hjörtur á fullveldi.is gefur gott yfirlit um sitthvað tengt ríkisstjórnarsáttmálanum.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 31. desember 2021
Áramót
Við áramót er viðeigandi að staldra við, líta yfir farinn veg og horfa fram á við.
Það er ljúft og skylt að viðurkenna að staða fullveldismála er nú betri en hún hefur stundum áður verið. Fáir tala fyrir innlimun Íslands í Evrópusambandið og þeir sem á það hlusta virðast ekki vera mikið fleiri. Ástæða er til að gleðjast yfir því. Þrátt fyrir allt hefur upplýst umræða um gildi lýðræðis og fullveldis þjóðarinnar skilað árangri. Þau fáu rök sem sumum tókst að finna fyrir því að best væri að farga fullveldinu til að geta verið með í að styrkja völd gömlu evrópsku nýlenduveldanna á taflborði heimsins hafa gufað upp eins og dögg á heiðríkum morgni. Flestir vita nú orðið að Evrópusöngvakeppnin er ekki hluti af skemmtidagskrá Evrópusambandsins og að Mannréttindadómstóll Evrópu er ekki útibú frá Evrópusambandinu, hvaða skoðun sem menn kunna annars að hafa á þessum stofnunum.
En hvað gerir þjófur sem kemur að læstum dyrum? Reynir hann ekki við bakdyrnar? Sú hefur því miður verið raunin að Evrópusambandið, sem hefur komið að læstum aðaldyrum í Noregi og á Íslandi, hefur laumast að bakdyrunum og smám saman tekið til sín aukið vald í einum málaflokki í einu í gegnum samninginn um evrópska efnahagssvæðið. Sú sérkennilega skoðun er nefnilega nokkuð algeng að erfitt væri að draga fram lífið á Íslandi án þessa samnings og þess vegna sé rétt að gera nánast hvað sem er til að minnka líkurnar á því að hann líði undir lok. Í skugga ótta af þessu tagi samþykkti meirihluti Alþingis að framselja vald í orkumálum á Íslandi til Evrópusambandsins. Fleiri málaflokkar hafa lent í hliðstæðu valdaframsali og er ekki séð fyrir endann á slíku. Það verður viðfangsefni komandi árs og ára að stöðva hið hálf-sjálfvirka valdaframsal stjórnvalds í gegnum EES-samninginn og að hefjast handa við að endurheimta vald sem tapast hefur.
Að svo mæltu óskar Heimssýn landsmönnum öllum og öðrum íbúum jarðarinnar gleðilegs nýs árs.
Sunnudagur, 26. desember 2021
Arnar Þór á það skilið
Óhætt er að segja að í brjóstum flestra landsmanna búi fullveldissinni. Þeir hafa hver sitt göngulag eins og háttar í mannlífinu. Sumir fara hljóðlega, en aðrir ríða röftum. Flestir láta duga að ræða málin við vini og vandamenn, en aðrir ávarpa þjóðina. Einn þeirra síðarnefndu er Arnar Þór Jónsson, fyrrverandi dómari. Ávörp Arnars Þórs hafa vakið verðskuldaða athygli vegna þess hversu rökföst þau eru og vel ígrunduð. Arnar Þór er hugsjónamaður og lóð hans í fullveldisumræðunni er þungt sem blý.
Sjaldnast fá menn þakkir fyrir framlag sitt í opinberri umræðu, stundum bara skítkast. Núna gefst fullveldissinnum tækifæri til að þakka Arnari Þór með því að kjósa hann manneskju ársins hjá ruv.is
https://www.ruv.is/frett/2021/12/26/hver-er-manneskja-arsins-2021
Nýjustu færslur
- Þjóðaratkvæði um draugaviðræður með texta frá Brussel
- Milljarðar fyrir verri kjör og nú á að ganga alla leið?
- Halda áfram - en við hvað nákvæmlega?
- Evrópuher, tollheimta Evrópusambands o.fl. á Útvarpi sögu
- Fyrirspurnir og fyrirgreiðsla næsta skref í forskriftinni?
- Forskirftinni fylgt!
- Ekki eitt einasta skref í átt að inngöngu - Bylgjan í dag
- Gegn stjórnarskrá og enn til umræðu - erindi til forseta árét...
- Norðmaður fær vinnu hjá okkur
- Regluverk ESB hentar hvorki Íslandi né ESB!
- Hitt stóra málið
- Stóru breytingarnar
- Misvægi og misskipting í Evrópusambandinu
- Lítil vinna fyrir ungdóminn á evrusvæðinu
- Aðeins meira um veikleika Evrópusambandsins
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.7.): 14
- Sl. sólarhring: 202
- Sl. viku: 1525
- Frá upphafi: 1234996
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 1286
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar