Leita í fréttum mbl.is

Það þjónar ekki hagsmunum Íslendinga að ganga í ESB

Nú hefur frumhlaup þriggja manna innan atvinnugeirans með ASÍ í broddi fylkingar verið staðfest. Þau samtök sem standa fyrir það sem grundvöllur íslenskrar tilveru síðustu áratugi - og enn í dag - byggist að verulegu leyti á, samtök í sjávarútvegi, hafna því alfarið að haldið sé áfram að gæla við aðild að Evrópusambandinu.

Mbl.is skýrir svo frá:

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ.stækka

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ. mbl.is/Ómar Óskarsson

Landsamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) telur ekki rétt að ljúka viðræðum við Evrópusambandið um aðild að sambandinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá LÍÚ.

Samtök atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Viðskiptaráð Íslands sendu forsætisráðherra bréf dagsett 24. september þar sem tilkynnt var að samtökin hafi ákveðið að standa fyrir úttekt á aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þróun ESB og valkostum í efnahagsmálum. Jafnframt kemur fram að samtökin telji öll æskilegt að aðildarviðræðum verði lokið og að besti fáanlegi samningur um aðild verði borinn upp í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Af þessu tilefni vill Landssamband íslenskra útvegsmanna ítreka að afstaða samtakanna til aðildar að ESB hefur ekki breyst. Samtökin hafa lýst því yfir að þau telji að hagsmunir Íslands séu best tryggðir utan ESB. Af því leiðir að Landssamband íslenskra útvegsmanna styður ekki aðildarviðræður við ESB og er því ekki þeirrar skoðunar að æskilegt sé að aðildarviðræðum verði lokið eins og fram kemur í erindi Samtaka Atvinnulífsins, Alþýðusamband Íslands og Viðskiptaráðs Íslands.

mbl.is LÍÚ vill ekki ljúka viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 8
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 663
  • Frá upphafi: 1133183

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 600
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband