Leita í fréttum mbl.is

Hardtalk: Töpuð ár evrunnar

Einn af virtustu hagfræðingum Þjóðverja, Peter Bofinger, segir evrusvæðið enn í mikilli og viðvarandi kreppu. Forystumönnum hafi ekki tekist að leysa þann vanda sem veldur stöðnun og miklu atvinnuleysi á svæðinu.
 
 
Á Peter, sem er í ráði efnahagssérfræðinga í Þýskalandi, var að skilja að langt væri í að evrusvæðið hefði sig upp úr vandanum.
 
Merkilegt að ennþá séu þeir til hér á landi sem telja að aðild að ESB og upptaka evru muni bæta hag landsmanna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

eigum við ekki heldur að tala um töpuð ár krónunnar eða 100 eða svo...Evran er einn sterkast gjaldmiðill í heimnum hvað sem ykkar rugl reynir að koma fram.

þorsteinn Halldórsson (IP-tala skráð) 17.9.2014 kl. 12:22

2 Smámynd:   Heimssýn

Á þeim tíma sem Íslendingar hafa notað krónuna hafa lífskjör á Íslandi farið úr því að vera með þeim lökustu í Evrópu í það að vera með þeim bestu.

Á þeim tíma sem evrulöndin hafa notað hafa lífskjör í þeim löndum staðið almennt í stað en hrapað alveg hrikalega í sumum löndum á síðustu árum. Atvinnuleysið er um 12% í evrulöndunum og hefur verið það síðustu misseri - það er upp undir 50% á vissum svæðum og meðal ungs fólks í sumum löndum. Hagvöxtur lætur á sér standa. Meira að segja í Finnlandi er áhrifa evrukreppunnar farið að gæta með illyrmislegum hætti með illviðráðanlegu atvinnuleysi.

Það er einmitt peningapólitík evrópska seðlabankans og styrkur Þýskalands sem á þátt í þessum erfiðleikum - sem m.a. halda genginu á evrunni óeðlilega háu svo að útflutningur flestra landa líður fyrir.

Ég held það væri betra fyrir þá sem vilja að Ísland gangi í ESB og taki upp evru að hlusta aðeins á það sem færustu sérfræðingar í Þýskalandi eru að segja.

Heimssýn, 17.9.2014 kl. 16:13

3 Smámynd:   Heimssýn

Á þeim tíma sem evrulöndun hafa notað evru ..... á að standa (vantar orðið evru).

Heimssýn, 17.9.2014 kl. 16:14

4 identicon

Í ESB eru 28 lönd og er meirihluti þeirra með evru. Þegar Heimssýn talar um ESB og evrusvæðið er alltaf talað um ástandið í Grikklandi auk atvinnuástandsins á Spáni.

Sannleikurinn er hins vegar sá að ástandið í flestum hinna er harla gott. Í flestum Norður- og Vesturevrópulöndunum er það miklu betra en á Íslandi.

Laun eru þar miklu hærri, vextir miklu lægri, skuldir ríkisins miklu lægri og víða er atvinnuástandið mjög gott.

Ísland hefur dregist aftur úr þeim löndum sem það hefur borið sig saman við og er nú meira í ætt við Miðjarðarhafslöndin.

Hagvöxtur er mjög takmarkaður mælikvarði á velmegun eins og sést best á því að hagvöxtur eru mestur í ýmsum vanþróuðum ríkjum.

Suðursúdan er með mestan hagvöxt í heiminum. Í næstu sætum eru Sierra Leone og Turkmenistan.

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_real_GDP_growth_rate 

Ásmundur (IP-tala skráð) 17.9.2014 kl. 20:56

5 Smámynd:   Heimssýn

Atvinnuleysi er frá 4,9% og upp í 27,2% í Evrópusambandinu. Það er 3,3% hér á landi samkvæmt Hagstofunni. Meðaltalið er 10,2% í ESB og um 12% ef evrulöndin eru bara tekin með. Atvinnuþátttaka er auk þess fremur lítil í mörgum Evrópulöndum, eða allt niður fyrir 50%. Atvinnuþátttakan er líklega hvergi hærri en á Íslandi. Það er t.d. eftirtektarvert hversu atvinnuþátttaka kvenna er há á Íslandi. Vinnumarkaður í ESB-löndunum er ekki til fyrirmyndar.

Heimssýn, 18.9.2014 kl. 12:43

6 identicon

Meðaltöl skipta engu máli í þessu sambandi. Ísland hefur aldrei verið borið saman við lönd eins og Búlgaríu og Rúmeníu svo að dæmi séu tekin.

Samanburðarlönd Íslands hafa undanfarin ár oft verið með minna atvinnuleysi en Ísland og enn er það hóflegt í þessum löndum þó að Ísland hafi farið niður fyrir þau.

Þrátt fyrir að atvinnuleysi í ESB sé minnst í nokkrum evrulöndum er atvinnuleysið að meðaltali þar nokkru meira en í ESB almennt. Ástæðan er að þau tvö lönd þar sem atvinnuleysið er langmest eru bæði með evru.

Lágt atvinnuleysi á Íslandi skýrist helst af lágum launum og gjaldeyrishöftum.

Ásmundur (IP-tala skráð) 18.9.2014 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 71
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 896
  • Frá upphafi: 1117788

Annað

  • Innlit í dag: 66
  • Innlit sl. viku: 793
  • Gestir í dag: 65
  • IP-tölur í dag: 65

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband