Leita í fréttum mbl.is

Sjálfstæðismenn eru algjörlega á móti orkupakka ESB

virkjunAf gefnu tilefni, um leið og við minnum á fund sjálfstæðismanna um málið á eftir, endurflytjum við þessa frétt frá því í maí í ár: 

Íslendingar eru á móti því valdaframsali í orkumálum sem nýjar tilskipanir ESB fela í sér. Þetta er niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar sem Heimssýn hefur fengið fyrirtækið Maskínu til að gera. Spurt var: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur) því að aukið vald yfir orkumálum á Íslandi verði fært ti l evrópskra stofnana? Sam­tals eru 80,5% þjóðarinnar and­víg því að færa vald yfir ís­lensk­um orku­mál­um til evr­ópskra stofn­ana. Þar af eru 57,4% mjög and­víg og 23% frek­ar and­víg. Hins veg­ar eru 8,3% hlynnt því.

Sjá hér áréttingu Heimssýnar í tilefni af áformum um upptöku þriðja orkupakka ESB i EES-samninginn.

Mbl.is greinir svo frá könnuninni:

Til­efni könn­un­ar­inn­ar er umræða á und­an­förn­um mánuðum um fyr­ir­hugaða þátt­töku Íslands í svo­nefnd­um þriðja orkupakka Evr­ópu­sam­bands­ins og Orku­stofn­un sam­bands­ins í gegn­um Eft­ir­lits­stofn­un EFTA (ESA) vegna aðild­ar lands­ins að EES-samn­ingn­um.

 

Meiri­hluti kjós­enda allra flokka and­víg­ur

Meiri­hluti stuðnings­manna allra stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi er and­víg­ur því að færa vald yfir orku­mál­um á Íslandi til evr­ópskra stofn­ana. Mest andstaðan er á meðal stuðnings­manna Sjálf­stæðis­flokks­ins þar sem 91,6% eru and­víg og 2,8% hlynnt.

Þar á eft­ir koma stuðnings­menn Flokks fólks­ins með 64,1% and­víg og 6,3% hlynnt, Sam­fylk­ing­ar­inn­ar með 63,8% and­víg og 18,6% hlynnt og loks stuðnings­menn Pírata með 60,8% and­víg og 18,7% hlynnt. Aðrir stuðnings­menn flokk­anna eru í meðallagi and­víg­ir/​fylgj­andi.

Þeir sem búa utan Reykja­vík­ur and­víg­ari

Þegar kem­ur að kynj­um eru 83,8% kvenna and­víg því að vald yfir stjórn ís­lenskra orku­mála sé fært til evr­ópskra stofn­ana og 5,5% fylgj­andi á meðan 77,7% karla eru and­víg og 10,4% hlynnt. Andstaðan eykst eft­ir því sem fólk er eldra og meiri andstaða er utan Reykja­vík­ur.

Hvað mennt­un varðar eru þeir sem eru með fram­halds­skóla­próf/​iðnmennt­un mest and­víg­ir eða 85,6% þeirra en 5% hlynnt. Þá koma þeir sem eru með grunn­skóla­próf (79,2% and­víg og 8,2% hlynnt) og þeir sem hafa há­skóla­próf (77,8% and­víg og 9,7% hlynnt).

Þegar kem­ur að tekj­um er andstaðan við slíka færslu á valdi úr landi mest á meðal þeirra sem eru með 800-999 þúsund krón­ur í mánaðarlaun (88,5% and­víg og 3,5% hlynnt) og næst mest hjá þeim sem eru með 400-549 þúsund krón­ur (84,4% hlynnt og 5,7% hlynnt).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað. Gott hjá þeim. Mér finnst líka, að forsetinn eigi að setja þetta í þjóðaratkvæði. Kemur ekki annað til greina. Þegar það orkar tvímælis, hvort þessi orkupakki stangast á við stjórnarskrána eða ekki, þá á þjóðin að fá að segja sitt um þennan samning. Svo einfalt er það mál.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 30.8.2018 kl. 23:00

2 Smámynd: Guðjón Bragi Benediktsson

Ef svo ólíklega vill til að þingið fremji landráð í þessu máli og gangi gegn vilja þjóðarinnar mun forsetinn vísa málinu í þjóðaratkvæði, ekki spurning. Hann Guðni er nú ekki fæddur í gær og hann er engin gufa. En við þurfum að biðja fyrir forsetanum og þinginu. Þrýstingurinn er gríðarlegur  og hann er ekki síst andlegur -að láta undan og gefa eftir fyrir demónum Stórríkisins ESB. Heitar bænir fyrir landi og þjóð megna mikils. 

Guðjón Bragi Benediktsson, 31.8.2018 kl. 00:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 49
  • Sl. sólarhring: 120
  • Sl. viku: 2161
  • Frá upphafi: 1112203

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 1940
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband