Leita í fréttum mbl.is

Innan múra Evrópusambandsins - og EES

Friðrik Daníelsson fjallar í grein um óbeinar og tæknilegar viðskiptahindranir og vandamálin við EES.  Af einhverjum ástæðum er lítið um slíkt fjallað í fjölmiðlum á Íslandi.  Grein Friðriks minnir okkur á að farsælast er hverri þjóð að ráða sínum málum sjálf og gott er a rifja það upp öðru hvoru.   

 

Friðrik segir m.a.:

Ísland er að lokast meir og meir inni í viðskiptamúravirki ESB. Ísland er með fríverslunarsamninga við mörg lönd og þar á meðal ESB samkvæmt eldri samningi en EES. Sá samningur er enn í fullu gildi þó farið sé með það sem leyndarmál. Og Ísland er einnig með viðskiptasamninga við mörg lönd bæði á eigin vegum og með EFTA. Þeir fríverslunarsamningar koma að vísu ekki að fullu gagni meðan EES-höftin gilda hér. Viðskipti við gömlu stóru viðskiptalöndin verður væntanlega auðvelt að endurlífga þegar höft ESB verða afnumin. EES er í vaxnadi mæli að einangra Ísland frá alþjóðaviðskiptum.

https://www.frjalstland.is/2019/07/10/ees-samningurinn-er-ad-einangra-island/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007:

"Evrópusambandið hefur í dag stærsta net viðskiptasamninga í heiminum og nýtur þess í sínum samningum að vera ekki aðeins stærsti einstaki viðskipaaðili heims, heldur einnig sá aðili sem hefur stærstan innri markað og sá aðili sem veitir meira en helming allrar þróunaraðstoðar í heiminum." cool

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 18:43

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Aukin samskipti EFTA við lönd utan Evrópusambandsins (stundum kölluð "þriðju lönd") hófust í raun þegar í lok kalda stríðsins árið 1989 þegar ESB hóf að gera svonefnda Evrópusamninga við Austur- og Mið-Evrópulöndin." cool

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 18:44

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

18.12.2012:

"
Ég trúi því að það þjóni bæði hagsmunum Íslands og Evrópusambandsins að ljúka þessum samningaviðræðum,"segir Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, um aðildarviðræður Íslands að sambandinu.

"Við munum taka mið af ýmsum sérhagsmunum Íslands
... og vonandi felast næstu skref í því að við fáum tækifæri til að kynna endanlegan samning fyrir íslensku þjóðinni, þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun." cool

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 18:49

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

8.4.2013:

"Stefan Füle stækkunarstjóri Evrópusambandsins kveðst hafa fullan skilning á sérstöðu Íslands um bann við innflutningi á lifandi dýrum og sagði að fullur vilji væri til að taka tillit til hinna sérstöku aðstæðna sem ríktu á Íslandi um dýra- og plöntuheilbrigði." cool

"Á fundinum lýsti stækkunarstjórinn yfir að Evrópusambandið væri nú reiðubúið að hefja viðræður við Íslendinga um kaflann um matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði á grundvelli samningsafstöðu Íslendinga.

Stækkunarstjórinn sagði að Íslendingum hefði tekist vel að koma sérstöðu sinni á framfæri." cool

"Í samningsafstöðu Íslendinga eru settar fram skýrar kröfur um að við myndum viðhalda banni á innflutningi á lifandi dýrum."

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 18:50

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Skýrsla Evrópunefndar lögð fram af Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, í mars 2007, sjá bls. 77-79:

"Varanlegar undanþágur og sérlausnir:" cool


"Komi upp vandamál vegna ákveðinnar sérstöðu eða sérstakra aðstæðna í ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu er reynt að leysa málið með því að semja um tilteknar afmarkaðar sérlausnir.

Eitt þekktasta dæmið um slíka sérlausn er að finna í aðildarsamningi Danmerkur árið 1973 en samkvæmt henni mega Danir viðhalda löggjöf sinni um kaup á sumarhúsum í Danmörku.

Í þeirri löggjöf felst meðal annars að aðeins þeir sem búsettir hafa verið í Danmörku í að minnsta kosti fimm ár mega kaupa sumarhús í Danmörku en þó er hægt að sækja um undanþágu frá því skilyrði til dómsmálaráðherra Danmerkur."

"Ekki er hins vegar um að ræða undanþágu eða frávik frá banni við mismunum á grundvelli þjóðernis og íbúar annarra aðildarríkja sem uppfylla skilyrði um fimm ára búsetu geta því keypt sumarhús í Danmörku."

Í þessu tilviki "er í raun um að ræða frávik frá 56. grein stofnsáttmála Evrópusambandsins, sem bannar takmarkanir á frjálsu flæði fjármagns." cool

"Mikilvægt er að hafa í huga að aðildarsamningar að Evrópusambandinu hafa sömu stöðu og stofnsáttmálar sambandsins og því er ekki hægt að breyta ákvæðum þeirra, þar á meðal undanþágum eða sérákvæðum, sem þar er kveðið á um, nema með samþykki allra aðildarríkjanna [í þessu tilviki einnig Danmerkur]." cool

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 19:00

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Með aðild að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eru Ísland og Noregur de facto í Evrópusambandinu en hafa ekki atkvæðisrétt í sambandinu. cool

Loðna hefur gengið
á milli lögsagna Íslands og Noregs við Jan Mayen. Norsk skip hafa því fengið að veiða loðnu í íslenskri lögsögu og íslensk skip loðnu í norskri lögsögu.

Skip frá ríkjum Evrópusambandsins hafa hins vegar lítið veitt á Íslandsmiðum síðastliðna áratugi og fá því engan aflakvóta á Íslandsmiðum með aðild Íslands að Evrópusambandinu, nema þá að íslensk fiskiskip fengju jafn verðmætan aflakvóta í staðinn.

Í aðildarsamningi Noregs og Evrópusambandsins fengu skip frá Evrópusambandsríkjunum að veiða í norskri lögsögu, enda er um sameiginlega fiskveiðiauðlind margra ríkja að ræða í Norðursjó, svo og Eystrasalti og Miðjarðarhafinu, þar sem margar fisktegundir ganga úr einni lögsögu í aðra.

Aðildarsamningi Íslands við Evrópusambandið yrði ekki hægt að breyta nema með samþykki okkar Íslendinga og raunar allra aðildarríkjanna. cool

Evrópusambandsríkin eru langstærsti markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir.

Og með aðild Íslands að Evrópusambandinu falla niður allir tollar á íslenskum sjávarafurðum og landbúnaðarafurðum í Evrópusambandsríkjunum, til að mynda skyri og lambakjöti, sem stóreykur fullvinnslu á bæði sjávarafurðum og landbúnaðarafurðum hér á Íslandi. cool


Við Íslendingar yrðum stærsta fiskveiðiþjóðin í Evrópusambandinu, hefðum þar yfirburði í útgerð og fiskvinnslu, og Norðmenn eru okkar helstu keppinautar í sölu á sjávarafurðum.

Afli íslenskra skipa og skipa frá Evrópusambandsríkjunum

Þorsteinn Briem, 11.9.2020 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 34
  • Sl. viku: 826
  • Frá upphafi: 1117718

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 728
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband