Leita í fréttum mbl.is

Sæti við borðið þar sem ákvarðanir eru tilkynntar

 

heimssyn-Repas_medieval.jpg

Smáþjóðir sem þó eru margfalt stærri en Íslendingar og hafa aðsetur í Evrópusambandinu fá sumar sæti við margumrætt borð.  Þar eru stjórnvaldsákvarðanir tilkynntar og sagt er að borðsgestir fái ríkulegar veitingar.  Það er því eftir nokkru að slægjast fyrir þá einstaklinga sem komast að borðinu. 

Sumir hafa fullyrt að við borðið séu teknar ákvarðanir og að smáþjóðir ráði þar einhverju.  Það er vitaskuld misskilningur, eins og Hjörtur J. Guðmundsson útskýrir skilmerkilega í grein í Vísi í dag.

 

https://www.visir.is/g/20222241934d/vaegi-rikja-esb-fer-eftir-ibuafjolda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Eiríkur Bergmann Einarsson forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst:

"Til að mynda er Svíþjóð aðeins gert að innleiða hluta af heildar reglugerðaverki Evrópusambandsins.

Og ... okkur Íslendingum er nú þegar gert að innleiða ríflega 80% af öllum þeim lagareglum Evrópusambandsins sem Svíum er gert að innleiða." cool

Það er nú allt "fullveldið".

Og enginn stjórnmálaflokkur, sem á sæti á Alþingi, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn. cool

"EES-réttur öðlast ekki bein réttaráhrif með sama hætti og bandalagsréttur.

Hins vegar er skylt að taka hann í landslög í þeim mæli sem nægir til þess að hann geti öðlast sambærileg áhrif að þessu leyti og bandalagsréttur." cool

Stefán Már Stefánsson lagaprófessor, Evrópusambandið og Evrópska efnahagsvæðið, bls. 168.

"Schengenríki sem ekki eru í Evrópusambandinu (Noregur, Ísland, Sviss og Liechtenstein) hafa engin formleg völd þegar ákvarðanir eru teknar sem varða samstarfið og hafa í raun aðeins kost á því að taka upp þær reglubreytingar sem því fylgja eða segja sig úr því ella." cool

Schengen-samstarfið

 

Þorsteinn Briem, 30.3.2022 kl. 09:52

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Útlendingar, til að mynda Kínverjar, geta nú þegar átt helminginn af öllum aflakvóta íslenskra fiskiskipa en útlendingar hafa mjög lítið fjárfest í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. cool

23.11.2010:

"Friðrik J. Arngrímsson, [nú fyrrverandi] framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að lögin hafi alltaf verið skýr varðandi erlent eignarhald í sjávarútvegi.

"Erlendir aðilar mega eiga allt að 49,99% óbeint, þó ekki ráðandi hlut, og svona hafa lögin verið lengi," segir Friðrik." cool

"Nefnd um erlenda fjárfestingu hefur að undanförnu fjallað um málefni sjávarútvegsfyrirtækisins Storms Seafood sem er að hluta til í eigu kínversks fyrirtækis, Nautilius Fisheries.

Eignarhlutur Kínverjanna er um 44%, beint og óbeint.

Og niðurstaða nefndarinnar er að það sé löglegt." cool

Þorsteinn Briem, 30.3.2022 kl. 10:01

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Fjórfrelsið gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu (EES) en það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað. cool

Að auki kveður samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið á um samvinnu ríkjanna á svæðinu í til dæmis félagsmálum, jafnréttismálum, neytendamálum, umhverfismálum, menntamálum og vísinda- og tæknimálum."

"Þeir alþjóðasamningar sem Ísland hefur undirgengist, til dæmis samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES), aðildarsamningur Íslands að Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD) og áttunda grein stofnsáttmála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, heimila [hins vegar] tímabundin og afmörkuð höft á fjármagnshreyfingar þegar lönd lenda í gjaldeyris- og greiðslujafnaðarkreppu." cool

Seðlabanki Íslands - Peningamál í maí 2010, bls. 16-17

Þorsteinn Briem, 30.3.2022 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 29
  • Sl. sólarhring: 195
  • Sl. viku: 526
  • Frá upphafi: 1116628

Annað

  • Innlit í dag: 28
  • Innlit sl. viku: 461
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband