Leita í fréttum mbl.is

Stćrsta ESB-gođsögnin

daniel_hannanFlestir hafa sjálfsagt heyrt minnst á frćga stađlaáráttu Evrópusambandsins; ferhyrnd jarđarber, bogna banana, sjómenn međ hárnet - uppistađan í fyrirsögnum breskra ćsifréttablađa. Evrópusambandssinnar eru ćvareiđir yfir slíkum fréttaflutningi. Skrifstofa Evrópusambandsins í London gefur t.a.m. reglulega út samantekt yfir ţađ sem hún kallar ESB-gođsagnir ("Euro-myths") og stór hluti af heimasíđu samtaka breskra Evrópusambandssinna, "Britain in Europe", fer í umfjöllun um ţćr.

Ţađ er auđvitađ rétt upp ađ vissu marki ađ dagblöđ eiga ţađ til ađ ýkja hlutina. En ţađ sérkennilegasta viđ ţessar svokölluđu ESB-gođsagnir er eigi ađ síđur hversu oft ţćr reynast sannar viđ nánari skođun.

Ţetta kom t.a.m. skýrt fram ekki alls fyrir löngu ţegar nokkrir breskir embćttismenn fóru fyrir dómstóla og kröfđust ţess ađ réttur ţeirra til ađ sćkja til saka ađila sem hefđu á bođstólum banana međ rangri lögun vćri stađfestur. Já, ţađ er raunverulega til reglugerđ hjá Evrópusambandinu um lögun banana. Ég hef lesiđ hana sjálfur. Ţađ er reglugerđ nr. 2257/94. Ţar er skilgreind nákvćmlega leyfileg lengd og ţvermál fyrsta flokks banana og auk ţess tekiđ fram ađ ţeir megi ekki vera of bognir. Sem betur fer fyrir breska réttarkerfiđ var kröfu embćttismannanna hafnađ af hćstarétti Bretlands.

Sama er ađ segja um agúrkur. Ég hafđi margoft heyrt fullyrt ađ allar sögurnar um bognar agúrkur hefđu einfaldlega veriđ samdar af ćsifréttablöđunum svo ég ákvađ ađ kanna máliđ sjálfur. Og viti menn! Ég rakst á reglugerđ 1677/88 sem kveđur á um leyfilegan heildarboga á agúrkum og nákvćmt mál er ennfremur tekiđ fram, 10 mm bogi fyrir hverja 10 cm í lengd.

Stađreyndin er nefnilega sú ađ stćrsta gođsögnin af ţeim öllum er ţegar ţví er haldiđ fram ađ sögur sem ţessar séu gođsagnir. Nánast hverri einustu frétt um ţessi mál er algerlega hafnađ af forystu Evrópusambandsins. Fyrir nokkrum árum ritađi ég grein í The Daily Telegraph ţar sem ég benti á ţá stađreynd ađ samkvćmt hinum nýju metrakerfisreglum Evrópusambandsins vćri ekki lengur löglegt ađ selja hálfpott af bjór. Svar viđ greininni kom frá skrifstofu sambandsins í London, án sjáanlegrar kaldhćđni, ţess efnis ađ ţađ vćri fullkomlega löglegt - ađ ţví tilskildu ađ menn notuđu ekki orđiđ "hálfpottur".

Ţađ skal annars vel viđurkennast ađ beinir bananar munu ólíklega ţýđa alger endalok bresks fullveldis. Í samanburđi viđ t.a.m. tortímingu bresks sjávarútvegs, eyđingu hinna bresku hefđa um grundvallarlög og hina sameiginlegu landbúnađarstefnu er máliđ varđandi bananana einungis smávćgilegt atriđi. En ţađ er hins vegar meira en lítiđ áhugavert ađ fylgjast međ ţví hvernig kerfiskallar Evrópusambandsins reyna ávallt ađ fela ţađ sem ţeir eru raunverulega ađ gera. Ef ţeir eru svona viđsjárverđir varđandi ómerkilegt atriđi eins og banana, getum viđ ţá virkilega treyst ţeim t.d. varđandi evruna?

Daniel Hannan,
ţingmađur breska Íhaldsflokksins á Evrópusambandsţinginu


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 136
  • Sl. sólarhring: 173
  • Sl. viku: 1071
  • Frá upphafi: 1117670

Annađ

  • Innlit í dag: 128
  • Innlit sl. viku: 945
  • Gestir í dag: 124
  • IP-tölur í dag: 124

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband