Leita í fréttum mbl.is

Trúarjátningar sambandssinna

Undanfarna mánuđi hafa blöđin veriđ full af trúarjátningum fólks sem vitnar um ađ ef viđ vćrum í Evrópusambandinu ţá vćru betri lífskjör, engin kreppa og lćgra verđ á vörum.

Í ţessu tali er ađ sjálfsögđu ekki tekiđ fram ađ mörg svćđi innan Sambandsins búa viđ kreppu. Ţađ er heldur ekkert veriđ ađ velta sér upp úr ţví ađ Evrópulönd sem standa utan sambandsins (t.d. Sviss, Noregur og Ísland) bjóđa ţegnum sínum betri kjör en flest lönd innan ţess – enda stílbrot ađ trođa upptalningu á stađreyndum inn í trúarlega texta.

Í öllum ţessum játningabókmenntum fer lítiđ fyrir rökum. Sjaldan er vitnađ í rannsóknir. Hlutlausar upplýsingar eru ósköp litlar.

Hversu sennilegt er ađ viđ sleppum viđ alţjóđlega kreppu međ ţví ađ ganga í sambandiđ? Trúir ţví einhver ađ efnahagsvandi sem hér bćtist viđ kreppuna og stafar af eyđslu umfram tekjur (skuldasöfnun og viđskiptahalla) leysist međ einhverju öđru en ráđdeild og sparsemi? (Já - vandinn stafar ekki af litlu myntsvćđi heldur eyđslusemi sem kemur fólki í koll hvađa mynt sem ţađ notar.)

Ekkert af ţessu er raunar svo mikiđ sem hiđ minnsta líklegt í augum ţeirra sem ađeins hafa jarđlegan skilning. Menn ţurfa ađ horfa međ sjónum trúarinnar til ađ virđast ţetta sennilegt.

Fyrir okkur sem ekki höfum slík ćđri skilningarvit virđist samningurinn um Evrópska efnahagssvćđiđ (EES) fullgóđur og jafnvel of mikiđ af ţví góđa. Sú jarđbundna ţjóđ Englendingar virđist á svipuđu máli ţví kannanir sem ţar voru gerđar í vor benda til ađ um tveir ţriđju hlutar landsmanna vildu frekar eitthvađ í dúr viđ EES heldur en fulla sambandsađild. Frá ţessu segir í frétt The Telegraph ţar sem stendur:

"Könnun The Global Vision/ICM leiddi í ljós ađ ţegar breskir kjósendur voru spurđir um hvernig samband viđ Evrópu ţeir álitu best kusu 41% samband sem byggđist ađeins á viđskiptum og samvinnu. 27% vildu ađ Bretar yrđu áfram fullir ađilar ađ Evrópusambandinu og 26% vildu draga sig algerlega út úr ţví.

64% sögđust mundu kjósa samband sem ađeins snerist um viđskipti ef bođiđ vćri upp á ţann kost í kosningum.

(The Global Vision/ICM survey found that when British voters were asked about their ideal relationship with Europe, 41 per cent chose one based simply on trade and co-operation. Some 27 per cent wanted Britain to stay a full EU member while 26 per cent wanted to withdraw altogether.

If the “trade-only” option were offered in a referendum, 64 per cent said they would vote in favour.)"

Atli Harđarson,
heimspekingur

(Birtist áđur á bloggsíđu höfundar)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 12
  • Sl. sólarhring: 105
  • Sl. viku: 2124
  • Frá upphafi: 1112166

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1919
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband