Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015
Sunnudagur, 31. maí 2015
Ekki verður sótt um aftur meðan þjóðin vill ekki inn, Árni!
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, segir að ný ríkisstjórn geti sett umsóknarferlið að ESB af stað aftur. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, er þeirrar skoðunar að málið hafi verið sett á byrjunarreit. Allir viti bornir menn hljóta að sjá eftir það sem á undan er gengið að það er engin skynsemi í því að hefja aðildarviðræður að nýju á meðan ekki liggur skýr vilji til þess hjá þjóðinni að gerast aðili að sambandinu.
Eftir 20 ára víðtækar þjóðfélagslegar umræður á Íslandi þar sem Evrópustofa hefur lagt sitt lóð á vogarskálar upplýstrar umræðu í krafti áróðurs fyrir um milljarð króna er það niðurstaða íslensku þjóðarinnar að hún vill ekki ganga í Evrópusambandið.
Samt þykist Árni Páll Árnason ætla að halda áfram með umsóknarferlið ef hann kemst til valda. Skortir ekki eitthvað á raunveruleikatengingu hjá krataforingjanum í þessu efni?
Það gengur ekki lengur í þessum efnum að haga sér eins og krakki sem heimtar að fá að kíkja í pakkann - þótt hann viti í raun að innan í umbúðunum er ókræsilegur biti sem hann ætlar sér að fúlsa við.
Tími óskynsamlegra heimtufrekjustjórnmála af því tagi er liðinn.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Laugardagur, 30. maí 2015
Ísland af lista yfir umsóknarríki að ESB
Það eru gleðitíðindi að Ísland skuli vera tekið af lista yfir umsóknarríki að ESB. Umsóknarferlið hefur verið stöðvað og stjórnvöld hafa engin áform um að hefja það að nýju. Stór meirihluti þjóðarinnar hefur ekki áhuga á að Ísland verði hluti af ESB. Þetta er því eðlileg niðurstaða og Ísland hlýtur þá smám saman að detta út af öllum listum og vefsíðum ESB sem umsóknarríki.
En baráttan heldur áfram. Aðildarsinnar segjast ætla að virkja umsóknarferlið um leið og þeir komast í ríkisstjórn. Þess vegna gildir að við höldum vöku okkar og fræðum landsmenn um það hvernig fyrirbæri Evrópusambandið er í raun og veru ásamt því að greina frá því hvert það er að stefna.
Margoft hefur verið sýnt fram á að það hentar ekki íslensku efnahagslífi að hafa sama gjaldmiðil og helstu ríki Evrópu.
Margoft hefur verið sýnt fram á lýðræðishallann í Evrópusambandinu þar sem ákvarðanir eru teknar af litlum hópi fólks fjarri þeim sem ákvarðanirnar varða. Oft eru það ákvarðanir sem henta á sumum svæðum en ekki hér á landi.
Margoft hefur verið sýnt fram á að sjávarútvegsstefna ESB hentar ekki Íslendingum og að ef við undirgengjumst slíka stefnu yrðu yfirráðin yfir auðlindinni formlega færð til Brussel.
Fleira mætti tína til. Íslendingar verða að halda vöku sinni og láta ekki síbyljuna frá ESB og ESB-sinnum hér á landi slá sig út af laginu. Við megum hvorki bregðast okkur sjálfum, afkomendum okkar né þeim sem barist hafa fyrir sjálfsákvörðunarrétti íslensku þjóðarinnar á fyrri tíð.
Ísland af lista yfir umsóknarríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 28. maí 2015
Illa haldin af samrunaþráhyggju!
Philip Hammond, utanríkisráðherra Breta segir að Bretland muni yfirgefa ESB fái Bretar ekki í gegn verulegar breytingar á sáttmála ESB. Ráðherrann segir að forystumenn innan ESB séu illa haldnir af þráhyggju um síaukinn samruna í ESB.
Þessi ummæli lét ráðherrann falla í upphafi ferðar Cameron, forsætisráðherra Bretlands, til höfuðborga stærstu ESB-landanna. Sjálfsagt vill hann með því reyna að undirbúa jarðveginn fyrir væntanlegar viðræður Breta við Þjóðverja og Frakka sem ráða mestu í ESB.
En spurningin er bara hvort einhver alvara sé á bak við þessi ummæli eða hvort þetta sé aðeins einn leikur í því tafli að fá bresku þjóðina til að samþykkja einhverjar veigalitlar breytingar sem líklegast er að Bretar fái út úr þessari tilraun sinni til að mæta kröfum kjósenda um að gerðar verði umbætur á Evrópusambandinu.
Þjóðaratkvæði um ESB fyrir árslok 2017 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 27. maí 2015
Jóhanna María krefst svara um hvenær Evrópustofu verði lokað
Jóhanna María Sigmundsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks og varaformaður Heimssýnar, krefur utanríkisráðherra svara um það hvenær Evrópustofu, sem stækkunardeild ESB fjármagnar og rekur hér á landi, verður formlega lokað og starfsemi hennar lögð niður.
Hefur Jóhanna lagt fram skriflega fyrirspurn á Alþingi þess efnis.
Mbl.is greinir fá þessu og enn fremur Eyjan.is.
Stækkunardeild Evrópusambandsins setti á fót þessa áróðursstofu í kjölfar aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu. Markmið hennar var m.a. sagt vera "vettvangur virkrar umræðu um aðildarumsókn Íslands að ESB, þróunsambandsins og framtíð".
Núverandi samningur um rekstur Evrópustofu rennur út í lok ágúst á þessu ári, en stækkunardeild Evrópusambandsins hefur engin áform um að bjóða út reksturinn á nýjan leik, eins og mbl.is greindi frá í byrjun maímánaðar. Um hálfur milljarður króna hefur farið í rekstur Evrópustofu.
Evrópustofa tók til starfa í upphafi árs 2011 í tengslum við umsókn Íslands um inngöngu í Evrópusambandið. Rekstur hennar var boðinn út og var í kjölfarið samið við íslenska almannatengslafyrirtækið Athygli og þýska almannatengslafyrirtækið Media Consulta. Athygli sagði sig frá verkefninu á síðasta ári og var í kjölfarið öllum starfsmönnum Evrópustofu sagt upp störfum. Media Consulta hefur síðan séð alfarið um reksturinn.
Samningurinn um rekstur Evrópustofu var til tveggja ára með fjárframlagi upp á allt að 1,4 milljónir evra eða rúmlega 200 milljónir króna. Samkvæmt samningnum var heimilt að framlengja hann til tveggja ára. Það er fram á þetta ár. Verði ákveðið að halda rekstri Evrópustofu áfram þarf því að bjóða verkefnið út á nýjan leik.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 27. maí 2015
Utanríkisráðherra Finna hefur horn í síðu ESB
Nýr utanríkisráðherra Finnlands er mjög gagnrýninn á ýmislegt í starfi ESB. Nýi ráðherrann, Timo Soini, kemur úr röðum flokksins Sannra Finna, en flokkur hans hefur verið afar andsnúinn Evrópusambandinu eins og fram kemur í frétt mbl.is.
Helsta markmið nýrrar ríkisstjórnar í Finnlandi verður að koma hjólum atvinnulífsins af stað á nýjan leik. Hagvöxtur hefur lengi verið nálægt núllinu í Finnlandi, ekki síst fyrir áhrif evrusamstarfsins. Finnar hafa farið halloka í samkeppni við framleiðsluvörur frá Þýskalandi og víðar þar sem Finnum hefur ekki tekist að hafa eins góðan hemil á verðbólgu og t.d. Þjóðverjar.
Sannur Finni utanríkisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 26. maí 2015
Fréttabréf Heimssýnar vorið 2015 komið út
Út er komið fréttabréf Heimssýnar fyrir vorið 2015 og hefur það verið birt á vef Heimssýnar. Í fréttabréfinu er farið yfir það helsta sem verið hefur á döfinni. Þar er meðal annars minnt á ályktun Heimssýnar frá í vetur þar sem ítrekuð er nauðsyn þess að umsókn Íslands um aðild að ESB verði dregin formlega til baka.
Af öðrum atriðum í fréttabréfi Heimssýnar vorið 2015 má nefna:
- Skoðanakönnun Heimssýnar í febrúar sýndi að 60 prósent landsmanna eru andvíg inngöngu í ESB.
- Stjórnarmenn úr Heimssýn áttu fund með forseta Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni, mánudaginn 27. apríl þar sem rætt var um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og þróun umsóknarferlisins.
- Heimssýn og samtökin Nei við ESB hafa safnað saman myndbandsupptökum á viðtölum við ýmsa sem eru á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið og birt á YouTube.
- Stjórn og framkvæmdastjórn Heimssýnar eru kynntar.
- Kynnt er ný skrifstofa Heimssýnar og fundaraðstaða í húsnæði Bændasamtaka Íslands við Hagatorg í Reykjavík.
- Minnt er á að hægt er að styrkja Heimssýn með því að leggja inn á reikningsnúmer 101-26-5810. Kennitala 680602-5810
Sjá hér Fréttabréf Heimssýnar vorið 2015.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. maí 2015
Kjósendur í Póllandi og á Spáni hafna leiðum ESB
Í nýafstöðnum forsetakosningum í Póllandi og sveitar- og héraðsstjórnakosningum á Spáni studdu kjósendur í auknum mæli þá frambjóðendur og flokka sem hafna þeim leiðum sem ESB vill fara.
Í forsetakosningunum í Póllandi sigraði hægrimaðurinn Andrzej Duda en hann er svarinn andstæðingur þess að Pólverjar taki upp evru. Á Spáni sóttu vinstriöfl í sig veðrið, m.a. undir forystu eða studd af Podemos, sem vill breyta sáttmála ESB og taka heim til Spánar aftur völd sem flutt hafa verið til Brussel.
Á sama tíma berast fregnir af því að andstaðan við við evruna er bjargföst í Svíþjóð, Tékklandi og víðar. Tveir þriðju hlutar sænskra kjósenda vilja t.d. ekki sjá evruna.
Kosið á Spáni í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 19. maí 2015
Bretar fjarlægjast ESB
Nú vill Cameron forsætisráðhera Breta flýta kosningum um aðild Breta að ESB. Líklega eykur það líkurnar á því að Bretar muni yfirgefa sambandið. Alltént verður að teljast ólíklegra að það náist að semja á styttri tíma en áður var ætlað um nýjan aðildarsamning fyrir Bretland.
Það verður spennandi að sjá hverju fram vindur í Bretlandi næstu mánuðina í þessum efnum. Kannski yfirgefa Bretar ESB um líkt leyti og Grikkir yfirgefa evruna. Hver veit?
Þjóðaratkvæði um ESB 2016? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 18. maí 2015
Breskir jafnaðarmenn vilja kjósa um ESB sem fyrst
Andy Burnham, sem talinn er eiga góða möguleika á því að verða næsti leiðtogi breskra jafnaðarmanna, vill að kosningar um aðild Breta að ESB fari fram sem fyrst til að draga ekki á langinn óvissu um afstöðu Breta. Því vill Andy að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um málið strax á næsta ári.
Talið er víst að mikið fylgi sem breski Íhaldsflokkurinn fékk í þingkosningunum um daginn, fjórar milljónir atvkæða, sé ein af ástæðunum fyrir því að Burnham vilji flýta kosningunum.
Með þessu eru jafnaðarmenn í Bretlandi að viðurkenna að koma verður til móts við þær miklu óánægjuraddir sem eru um aðild Breta að ESB, jafnvel þótt flestir forystumenn jafnaðarmanna vilji að Bretland verði áfram hluti af ESB.
Íhaldsmenn hafa heitið því að ná fram nýjum samningum við ESB sem þeir vilja að kosið verði um árið 2017.
Andy Burnham telur að Bretar muni aðeins samþykkja áframhaldandi veru í ESB ef veruleg breyting verði gerð á reglum um búferlaflutninga til Bretlands.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 17. maí 2015
Lífeyrissjóðakerfið á evrusvæðinu í vanda vegna vaxta(r)leysis
Vextir eru nánast í núlli á evrusvæðinu og fyrir vikið er ávöxtun eigna lífeyrissjóða nánast engin. Fyrir vikið verða útgreiðslur úr sjóðunum talsvert minni í framtíðinni og standa ekki undir væntingum lífeyrisþega. Það er umhugsunarefni að þrátt fyrir að peningar kosti nánast ekki neitt (vextir eru verð á peningum) á evrusvæðinu þá tekst engan veginn að koma fjárfestingu og atvinnulífi í gang. Vöxtur er sáralítill og sums staðar neikvæður og atvinnuleysi verulegt á stórum svæðum.
Mbl. greinir svo frá:
Lágir vextir valda erfiðleikum
Sögulega lágir stýrivextir á evrusvæðinu veldur stjórnendum fyrirtækja höfuðverk en fyrirtækin neyðast til þess að setja milljarða evra til hliðar svo þau geti mætt lífeyrisskuldbindingum starfsmanna.
Lágir stýrivextir Seðlabanka Evrópu og ítrekaðar skuldabréfaútgáfur valda því að ávöxtun á skuldabréfamarkaði hefur lækkað umtalsvert.
Þetta þykja ekki góðar fréttir fyrir fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á aukin lífeyrisréttindi ofan á eftirlaun frá hinu opinbera.
Líkt og bankar og tryggingarfélög þá reyna sjóðir fyrirtækja að fjárfesta í skuldabréfum eða treysta á vexti á fjárfestinum sínum til þess að hámarka fjárfestingu sína. En vegna þess hve lágir vextir eru á evru-svæðinu þá má leiða líkum af því að það geti reynst fyrirtækjum erfitt að standa við skuldbindingar sínar á komandi árum.
Það er einkum í Þýskalandi sem fyrirtæki hafa komið upp slíkum sjóðum en um 17,8 milljónir Þjóðverja hafa skrifað undir slíkt samkomulag við vinnuveitendur sína.
Lágir vextir valda erfiðleikum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Nýjustu færslur
- Húsnæðiskostnaður lægri á Íslandi en víða í Evrópu
- Skondin mótsögn
- Heimssýn á Samstöðinni
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
- Er blásýra góð við þorsta?
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 154
- Sl. sólarhring: 331
- Sl. viku: 2563
- Frá upphafi: 1165937
Annað
- Innlit í dag: 128
- Innlit sl. viku: 2219
- Gestir í dag: 124
- IP-tölur í dag: 124
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar