Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2016
Föstudagur, 26. febrúar 2016
Göran Persson spáir hruni evrunnar
Einn helsti þungaviktarmaður jafnaðarmanna og Norðurlanda í evrópskri pólitík síðustu áratugina, forsætisráðherrann fyrrverandi í Svíþjóð, Göran Persson, segir í viðtali við sænska fjármáladagblaðið Dagens Industri í gær að stærsta ógnin sem ESB standi frammi fyrir sé hvorki úrsögn Breta né flóttamannavandinn heldur ný fjármálakreppa sem gæti kippt fótunum undan evrunni.
Göran Persson lék aðalhlutverkið í sænskum stjórnmálum frá 1994 til 2006 þegar hann fyrst sem fjármálaráðherra átti stóran þátt í því að Svíar gerðust aðilar að ESB og síðan sem forsætisráðherra frá 1996 til 2006.
Persson segir að lágvaxtastefna Seðlabanka evrunnar og fleiri seðlabanka sé helsta ástæðan fyrir þeirri ógn sem sé að byggjast upp gegn fjármálakerfinu. Hann segir að fjármálabólur séu að blása út sem geti sprungið fyrr en varir með látum. Persson óttast að eitt af stóru evrulöndunum muni lenda í erfiðleikum vegna fjármálakreppunnar og slíka erfiðleika muni fjármálakerfið á evrusvæðinu og í ESB ekki ráða við.
Persson segir í viðtalinu að fari Bretar úr ESB gæti það auðveldað frekari samruna þeirra ríkja sem eftir verða. Hins vegar gæti þjóðaratkvæðagreiðslan í Bretlandi í júní um aðild að ESB orðið kveikjan að þeirri nýju fjármálakreppu sem hann óttast að skelli á. En jafnvel þótt atkvæðagreiðslan í Bretlandi verði ekki kveikjan að þeirri kreppu þá verði undirliggjandi fjármálavandi evrunnar tifandi tímasprengja sem geti sprungið hvenær sem er.
Naumur meirihluti Svía samþykkti aðild að ESB árið 1994 eða 52%. Árið 2004 höfnuðu 56% Svía því að taka upp evruna og samkvæmt síðustu könnunum hafa tæplega 80% Svía verið á móti því að taka upp evruna.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 23. febrúar 2016
Hollendingar vilja líka kjósa um úrsögn úr ESB
Meirihluti Hollendinga vill kjósa um veru Hollands í Evrópusambandinu. Jafnframt sýnir könnun að álíka margir vilja að Holland yfirgefi sambandið og þeir sem vilja vera þar áfram.
Morgunblaðið greinir frá þessu og vitnar í hollenska fjölmiðla.
Hollendingar vilja kjósa um ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 22. febrúar 2016
Boris Johnson berst gegn aðild að ESB
Einn helsti þungaviktarmaður í breska Íhaldsflokknum, Boris Johnson, sem verið hefur borgarstjóri í Lundúnum, hefur ákveðið að berjast fyrir því Bretar segi sig úr ESB. Hann segir að samningur sá sem Cameron forsætisráðherra náði í Brussel sé ekki fullnægjandi. Johnson segir að samningurinn breyti engu um þá fullveldisskerðingu sem Bretar hafi orðið fyrir með aðild að ESB og felst m.a. í því að vald til lagasetningar hafi flust til Brussel.
Viðbrögð sumra aðildarsinna eru að segja að Boris sé að hætta frama sínum innan ESB-kerfisins!
ESB klýfur Íhaldsflokkinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 23.2.2016 kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 20. febrúar 2016
Fimm ráðherrar í Bretlandi vilja úr ESB og Boris Johnson óviss
Baráttan um veru Breta í Evrópusambandinu er nú að fara á fullt eftir að Cameron forsætisráðherra tikynnti í gær að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla 23. júní um samkomulag það sem hann náði við leiðtoga ESB varðandi stöðu Breta í ESB. Meirihluti ráðherra í Íhaldsmannastjórninni styður Cameron í því að mæla með áframhaldandi aðild á grunni samkomulagsins en fimm ráðherrar hafa tilkynnt að þeir styðji ekki samkomulagið og vilji að Bretar yfirgefi sambandið. Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, er enn óviss um hvernig hann mun bregðast við samkomulaginu en hann hefur haft talsverðar efasemdir um veru Bretlands í ESB.
Samkomulagið hefur ekki verið endanlega samþykkt innan ESB.
Myndin er af Boris Johnson sem enn liggur undir feldi.
Fimmtudagur, 18. febrúar 2016
ESB-flokkar á Íslandi eru í rúst segir Egill Helga
Hin evrópusinnaða miðja í íslenskum stjórnmálum er í rúst. Samfylkingin er með innan við tíu prósenta fylgi og fer sennilega lækkandi. Formaður flokksins er búinn að gefa upp boltann með innanflokksdeilur, varaformaðurinn er að hætta, vinsælasti þingmaðurinn íhugar forsetaframboð.
Björt framtíð er komin svo lágt í fylginu að varla er hægt að blása aftur lífi í flokkinn það breytir engu þótt nánast óumdeildur indælismaður hafi verið gerður að formanni.
Viðreisn, sem átti að taka evrópufylgið frá Sjálfstæðisflokknum, á varla mikla möguleika meðan er margháttuð krísa innan ESB og almennt áhugaleysi á aðild við núverandi aðstæður.
Svo segir Egill Helgason á Eyjunni.
Þriðjudagur, 16. febrúar 2016
Halldór Grönvold, ASÍ, sendir EES-fyrirtækjunum tóninn
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, sendi EES-verktakafyrirtækjunum heldur betur tóninn í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann sagði að talsvert væri um að þessi fyrirtæki sem kæmu hingað til starfa í gegnum ESB- og EES-reglur brytu ótt og títt samninga á starfsmönnum, borguðu þeim oft laun undir lágmarkslaunum og sendu starfsmenn svo úr landi ef þeir veiktust eða slösuðust í stað þess að láta starfsmennina njóta þess sem íslenskt heilbrigðiskerfi hefur upp á að bjóða.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Halldór Grönvöld hér.
Sjá einnig hér.
Laugardagur, 13. febrúar 2016
Svíar, Bretar og Hollendingar neita að samþykkja bókhald ESB
Svíar, Bretar og Hollendingar hafa neitað að skrifa undir ársreikninga ESB. Endurskoðendur treysta sér ekki til að ganga frá reikningunum án þess að taka fram að þeir geri fyrirvara um að þeir séu löglegir og réttir. Skoðun á reikningunum sýnir að 4,4% af öllum færslum í bókhaldi ESB eru rangar. Svindlið er mest í kringum ýmsa styrki og framlög.
Magdalena Andersson, fjármálaráðherra Svíþjóðar, reynir nú að fá fleiri lönd til að mótmæla fúski og svindli með fjármuni ESB, en til þessa hafa einungis Svíar, Bretar og Hollendingar mótmælt þessu að einhverju marki.
Síðustu tvo áratugi hafa endurskoðendur gert fyrirvara við bókhaldið og síðustu fimm ár hafa ríkisstjórnir Svíþjóðar, Bretlands og Hollands neitað að skrifa upp á reikningana.
Önnur lönd virðast sætta sig við fúskið og svindlið.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 11. febrúar 2016
Árni Páll segir umsóknina að ESB hafa verið mistök
Þegar menn standa á miklum tímamótum sjá þeir oft hlutina í skýrara og betra ljósi. Nú þegar Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, stendur með Samfylkinguna og sjálfan sig á brún pólitísks hengiflugs viðurkennur hann að aðildarumsóknin að ESB sem Samfylkingin stóð fyrir sumarið 2009 hafi verið feigðarflan. Hann segir:
Aðildarumsóknin Við byggðum aðildarumsókn að ESB á flóknu baktjaldasamkomulagi, sem aldrei hélt, í stað þess að fá skýrt umboð frá þjóðinni til að fara í aðildarviðræður, sem hefði bundið alla flokka við umsóknarferlið.
Þetta kemur fram á Eyjan.is
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 10. febrúar 2016
Forsætisráðherra óttast að ESB hrynji
Hvort sem einhverjum líkar það eða ekki verður árið 2016 árið sem Evrópusambandið annað hvort nær að koma böndum á flóttamannavandann eða hrynur, ritaði Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, í dag í aðsendri grein í tékkneska viðskiptablaðinu Hospodarske noviny.
Mbl.is greinir frá þessu.
Telur að ESB gæti hrunið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. febrúar 2016
Leiðrétting loks í höfn í ESB-málum
Samkvæmt þessari frétt Morgunblaðsins er leiðrétting loksins í höfn í ESB-málum. Það virðist vera búið að eyða áhrifunum af þeirri ólánsferð sem Samfylkingin og Vinstri græn hófu án þess að spyrja þjóðina sumarið 2009.
Gott ef það er á hreinu.
Það er hins vegar athyglisvert, eins og sumir benda á, að ýmsir þingmenn virðast ekki enn vera búnir að gera sér grein fyrir muninum á aðlögunarviðræðum og samningaviðræðum.
Þráðurinn er rofinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Nýjustu færslur
- Húsnæðiskostnaður lægri á Íslandi en víða í Evrópu
- Skondin mótsögn
- Heimssýn á Samstöðinni
- Til almennrar dreifingar!
- Krónan er ekki vandi
- Ísland náð sér fyrr eftir COVID en ESB
- Að munstra sig á sökkvandi skip
- Alltaf sama platið - hin skelegga Birna
- Leyndarhjúpur evrópska seðlabankans
- Efnahagslífið á evrusvæðinu nánast botnfrosið
- Viðvarandi langtímaatvinnuleysi víða í Evrópu, en minnst á Ís...
- Jaðarríkin í Evrópu líða fyrir evruna
- Evrunni hafnað þar sem hún gæti grafið undan lífeyriskerfinu
- Fjármálaeftirlitið óánægt með íþyngjandi regluverk ESB
- Er blásýra góð við þorsta?
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 157
- Sl. sólarhring: 325
- Sl. viku: 2566
- Frá upphafi: 1165940
Annað
- Innlit í dag: 131
- Innlit sl. viku: 2222
- Gestir í dag: 127
- IP-tölur í dag: 127
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar