Bloggfærslur mánaðarins, maí 2017
Mánudagur, 29. maí 2017
Hriplekar stjórnarskrifstofur ESB
Það er ekki nóg með að forystumenn ESB séu grautfúlir yfir þeirri ákvörðun Breta að segja sig úr ESB eins og meðfylgjandi frétt ber með sér.
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, virðist ekki geta rætt óformlega við neinn án þess að slúðra um samtalið ef honum svo hentar eins og þessi frétt ber með sér. Donald Tusk, forseti Evrópuráðsins, er orðinn ákaflega þreyttur á þessari hegðun Junckers. Tusk segir af þessu tilefni að líklega sé mikil þörf á pípulagningarmönnum á skrifstofur ESB til að teppa lekann.
Rudd svarar ummælum Merkel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 25. maí 2017
Neita að innleiða tilskipun frá ESB
Oft hefur verið rætt um að tilskipanir frá ESB henti ekki öllum ríkjum vegna ólíkra aðstæðna í ríkjunum. Nú hafa Norðmenn neitað að innleiða tilskipun um þyrluflug eins og meðfylgjandi frétt frá mbl.is ber með sér.
Neita að innleiða tilskipun ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 24. maí 2017
Fréttamaður RUV spurði Benedikt ekkert út í það
Spjótin standa nú á Benedikt á evrubolnum sem málar skrattann á vegginn þegar ástandið í efnahagsmálum hefur sjaldan verið betra. Í Markaði Fréttablaðsins í dag undrast ritstjórinn framgöngu fréttamanns RUV sem virtist bara kátur yfir klæðnaði ráðherrans en spurði ekki mikilvægra spurninga.
Í dálknum Skotsilfur í blaðinu stendur eftirfarandi:
Á evrubolnum
Benedikt Jóhannesson, sem taldi tímabært að skrifa minningargrein um krónuna í mars 2009, vakti athygli fyrir klæðnað sinn í viðtali um helgina á RÚV. Þar lýsti hann yfir áhyggjum af mikilli styrkingu krónunnar, klæddur í evrubol, en fjármálaráðherra hefur löngum verið talsmaður þess að Ísland taki upp evru. Nokkrum dögum áður hafði Seðlabankinn sagt að gengishækkunin hefði spilað lykilhlutverk í aðlögun þjóðarbúsins. Á sama tíma eru mörg evruríki föst í fjötrum hárra skulda, mikils atvinnuleysis og lítils hagvaxtar, ekki síst vegna þess að evran endurspeglar ekki efnahagsaðstæður í þessum ríkjum. Fréttamaður RÚV spurði Benedikt ekkert út í það.
Leturbreyting Heimssýnar.
Var allt í þvotti hjá ráðherra? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 25.5.2017 kl. 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 23. maí 2017
ESB herðir kverkatakið á Grikkjum
AGS telur að lengra verði ekki gengið að grísku þjóðinni. ESB vill hins vegar kreista síðustu blóðdropana úr Grikkjum. Viðskiptablaðið segir svo frá:
Ekkert samkomulag náðist milli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fjármálaráðherra evruríkjanna um skuldaafléttingu gagnvart Grikklandi eftir 8 tíma fundarhöld í Brussel í nótt. AGS gerir þær kröfur að evruríkin skuldbindi sig að veita Grikkjum frekari skuldaafléttingu.
Deilan á milli AGS og evruríkjanna er síðasta hindrunin sem stendur í vegi fyrir björgunaraðgerðum AGS í Grikklandi. Björgunaraðgerðin er Grikkjum nauðsynleg þar sem að skuldir upp á 7 milljarða evra munu falla í gjalddaga í júlí næstkomandi.
Miklar vonir voru bundnar við samningaviðræðurnar eftir að gríska þingið samþykkti síðastliðinn fimmtudag frekari niðurskurðaraðgerðir í ríkisrekstrinum.
Poul Thomsen framkvæmdastjóri AGS í Evrópu sagði eftir fundinn að aðgerðir grískra stjórnvalda hefðu verið nákvæmlega það sem sjóðurinn var að leita eftir en til þess að björgunaraðgerðirnar myndu eiga sér stað þyrftu skuldbindingar frá lánadrottnum Grikkja að fylgja í kjölfarið.
Þriðjudagur, 23. maí 2017
ESB skreppur saman
Þessi frétt á Eyjunni sem á rót í Frankfurter Allgemeine Zeitung bendir til þess að í ljósi hinna miklu erfiðleika sem dunið hafa á ESB og evrulöndunum hafi nú forkólfar ESB sannfærst um að betra hefði verið að fara hægar af stað og með færri ríkjum. Nú vilja forkólfarnir taka skref aftur á bak, þétta raðirnar í kringum þau ríki sem þegar hafa evruna og gera þau að innsta kjarna í ESB.
Það er alveg merkilegt hvað stofnanakúltúrinn í ESB hefur valdið mikilli skoðanakúgun. Það hefur þurft langtíma-atvinnuleysi tugmilljóna vinnufærra einstaklinga, ungra sem eldri, til þess að hinir samansúrruðu neyðist til að sveigja hugsanir sínar inn á nýjar brautir. Spurningin er bara hvort hugmyndir af þessu tagi komist á áætlun og í framkvæmd.
Hugmyndirnar benda alltént til þess að forkólfar ESB hafi ekki trú á því að staðið hafi verið rétt að málum undanfarinn áratug.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 22. maí 2017
Benedikt með boðorðin á bringunni
Fjármála- og efnahagsráðherra er í viðtali við RUV uppáklæddur eins og fótgönguliði útsendur af ESB, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Hann lýsir yfir áhyggjum sínum af sterkri krónu. Á sama tíma segir forsætisráðherra, íklæddur venjulegum jakkafötum, að hækkun krónunnar sýni styrk íslensks efnahagslífs. Hún sé ákveðinn öryggisventill.
Meginástæðan fyrir hækkun á gengi krónunnar er gífurlegt aðstreymi erlends fjár með kaupglöðum erlendum túristum. Það er búið að loka fyrir spákaupmennsku á grunni vaxtamunarviðskipta. Gengishækkunin nú gegnir lykilhlutverki í aðlögun þjóðarbúskaparins að þeim búhnykk sem hraður vöxtur ferðaþjónustunnar veldur.
Krónan, og frjálst gengi hennar, er sá öryggisventill og stuðpúði sem við þurfum á að halda í núverandi ástandi. Hefði gengi krónunnar ekki hækkað má búast við að innflæði fjár hefði verið og yrði enn meira með túristum, að eftirspurnarþrýstingur innanlands, sem nú er veitt að hluta út fyrir landsteinanna, hefði vaxið og yxi enn meira og verðbólguþrýstingur þar með. Það hefði verið óbærilegt við þessar aðstæður að vera með evru.
Það er því alveg rétt sem forsætisráðherra sagði í kvöldfréttum Útvarpsins rétt í þessu að hækkandi gengi krónunnar sýndi styrk íslensks efnahagslífs um leið og hún leiðréttir ákveðnar misfellur.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 16. maí 2017
ESB er Hótel Kalifornía ... í huga forystu ESB
Evrópusambandið er eins og Hótel Kalifornia - þið vitið - í lagi bandarísku hljómsveitarinnar Eagles um hótelið sem aldrei er hægt að yfirgefa. Reyndar segir Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta, að ESB sé aðeins Hótel Kalifornía í hugum forkólfa ESB. Það sé bæði hægt að tékka sig út úr ESB og yfirgefa það - eins og Bretar séu að gera núna með Brexit.
Sjá textann í lagi Eagles hér - umrædd textalína er neðst.
Hér er hægt að hlusta á sjálft lagið á Youtube.
ESB eins og Hótel Kalifornía | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 15. maí 2017
Fleiri og fleiri Bretar sannfærðir um Brexit
Meðfylgjandi frétt ber með sér að þeim Bretum fer fjölgandi sem telja að rétt sé að Bretlandi yfirgefi ESB, en alls eru 68% Breta þeirrar skoðunar. Á sama tíma veit Verkamannaflokkurinn ekki í hvorn fótinn hann á að stíga.
Sjá nánar í Morgunblaðinu og Daily Telegraph.
Mikill meirihluti hlynntur Brexit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 10. maí 2017
Vaxandi andstaða við EES-samninginn í Noregi
Fréttir frá Noregi bera það með sér að Norðmenn séu í vaxandi mæli farnir að efast um ágæti EES-samningsins. Nýleg skoðanakönnun gefur til kynna að ríflega fjórir af hverjum tíu Norðmönnum vilji annað hvort segja upp aðild Noregs að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eða endursemja um hann. Rúmur þriðjungur vilji hins vegar halda í samninginn eins og hann er í dag eða 35%.
Þetta kemur fram í viðfestri frétt mbl.is.
Þar kemur enn fremur þetta fram:
Frétt mbl.is: Vilja þjóðaratkvæði um EES-samninginn
Fram kemur í frétt norska dagblaðsins Nationen að af þeim sem vilja annað hvort segja samningnum upp eða endursemja um hann séu 15% í fyrri hópnum en 27% í hinum. Fram kemur að íbúar í þéttbýli séu jákvæðari fyrir því að halda í EES-samninginn en þeir sem búa í dreifbýli. Tæplega tveir þriðju hlutar stuðningsmanna Miðflokksins og Framfaraflokksins vilja annað hvort segja samningnum upp eða endursemja um hann.
Frétt mbl.is: Hafnar inngöngu í ESB
Samkvæmt niðurstöðum annarrar skoðanakönnunar í Noregi á dögunum sýndi 23% hlynnt EES-samningnum en 35% á því að segja skipta honum út fyrir hefðbundinn fríverslunarsaming. Í sömu könnun vildu 47% þjóðaratkvæði um EES-samninginn en 20% voru því andvíg. Töluverð umræða er í Noregi um framtíð samningsins.
Skiptar skoðanir um EES | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 9. maí 2017
Stjórnarflokkur í Noregi gegn ESB-aðild og vill endurskoðun á EES-samningi
Það er svo sem í samræmi við þróun mála þessa dagana að einn af stjórnarflokkunum í Noregi leggst nú eindregið gegn aðild landsins að ESB og vill jafnframt að hafin verði endurskoðun á framkvæmd EES-samningsins.
Sjá nánar í mbl.is.
Hafnar inngöngu í ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- Rýrt umboð, eina ferðina enn
- Það er augljóst
- 10 milljarðar eru lika peningar
- Alvöru spilling
- Alvöru sparnaður
- Framsækið verðmætamat hinna réttsýnu
- Að hlusta á þjóðina
- Ósvarað
- Aðalfundur
- Rykbindiefni
- Leiðindasuð
- Breyttur skilningur Samfylkingar á ESB-viðræðum
- Asni klyfjaður gulli
- Gullmolar á nýju ári
- Nýtt ár
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.1.): 149
- Sl. sólarhring: 244
- Sl. viku: 2084
- Frá upphafi: 1184491
Annað
- Innlit í dag: 135
- Innlit sl. viku: 1798
- Gestir í dag: 131
- IP-tölur í dag: 126
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar