Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, ágúst 2022

Villimannafélagiđ

A Ukrainian soldier seen on the frontline in Ukraine’s eastern Donbas region of Donetsk on 15 August.

Á meginlandi Evrópu drepa menn nú hverjir ađra af kappi.  Ţađ er ekki í fyrsta sinn og ástćđa er til ađ óttast ađ ţađ verđi ekki heldur í ţađ síđasta.  Stundum er látiđ eins og ađ baki standi tveir eđa örfáir brjálćđingar sem ráđi öllu.  Auđvitađ er ţađ ekki ţannig.  Fjöldi evrópskra ríkisstjórna dćlir viđstöđulaust olíu á eldinn og margt bendir til ţess ađ ţađ sé međ dyggum stuđningi almennings í viđkomandi löndum.   

Ekki verđur of oft rifjađ upp ađ farsćlast er fyrir Íslendinga ađ gćta ţess ađ binda trúss sitt ekki viđ svona samfélög.


Viđ erum í stríđi

heimssyn-borrell

 "Viđ erum á fullu í stríđi" (Estamos in plena guerra) segir utanríkisráđherra Evrópusambandsins, Jósep Borrell. 

Ţađ er ágćtt ađ halda ţessum orđum til haga. 

Menn geta svo velt fyrir sér hver hlutur Íslendinga yrđi í framtíđarstyrjöldum Evrópusambandins ef ţeir álpuđust ţar inn. 

 

Ummćlin eru í viđtali í El País, sem er lokađ, en ágrip er m.a. hér: 

https://laptrinhx.com/news/europeans-must-be-willing-to-pay-to-support-ukraine-top-eu-diplomat-8boAePG/

 

 


Viđtal á Útvarpi sögu

 

Ástćđa er til ađ vekja athygli á ţessu viđtali á Útvarpi sögu.  Fariđ er yfir

ýmis mál sem lúta ađ Evrópusambandinu. 

 

https://www.utvarpsaga.is/ritskodun-evropusambandsins-mikid-ahyggjuefni/


Andlát lýđrćđis

Arnar_THor_Mbl_BW-188x300

Sífellt skýrara verđur ađ lýđrćđiđ á í vök ađ verjast.  Lög koma á fćribandi frá erlendu ríkjasambandi og furđu fáir verđa til ţess ađ segja hiđ augljósa; ađ eitthvađ mikiđ sé ađ. 

Arnar Ţór Jónsson er í hópi hinna fáu sem benda á ađ keisarinn sé á góđri leiđ međ ađ verđa allsber. Úr penna hans renna iđulega sannindi sem kunna ađ ţykja óţćgileg, en ţeim mun mikilvćgara er ađ ţeim sé haldiđ á lofti.  Hann segir m.a. í nýrri grein í Morgunblađinu:

Ţegar ţátttaka í stjórnmálum var ekki lengur ţjónustuhlutverk, heldur starfsferill, náđu ţeir lengst sem spurđu engra spurninga, voru reiđubúnir ađ kynda undir óvild manna í garđ samborgara sinna, veigruđu sér ekki viđ ađ hóta ţeim sem sýndist skorta undirgefni og hikuđu ekki viđ ađ framfylgja fyrirskipunum međ valdbeitingu. Frammi fyrir ţessu rann smám saman upp fyrir kjósendum ađ stjórnmálin höfđu umbreyst í leiklestur og stjórnmálamennirnir í brúđur.

 

og Arnar Ţór spyr:

 

Hafa Íslendingar ţrek til ţess, eđa kjósa menn enn ađ dvelja sofandi á draumţingum og hlusta hálfsofandi á léleg handrit leiklesin á öllum sviđum einkalífs og ţjóđlífs?

 

https://fullveldisfelagid.is/er-lydraedid-dautt/


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Des. 2024
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.12.): 341
  • Sl. sólarhring: 368
  • Sl. viku: 2080
  • Frá upphafi: 1177253

Annađ

  • Innlit í dag: 301
  • Innlit sl. viku: 1878
  • Gestir í dag: 287
  • IP-tölur í dag: 285

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband