Leita í fréttum mbl.is

Ofveiði í ESB til ársins 2034 með sama áframhaldi

Umhverfishópurinn Oceana, sem beitir sér gagnvart framkvæmdastjórninni í Brussel, hefur reiknað út fyrir EUobserver að með sama áframhaldi verði það ekki fyrr en árið 2034 sem fiskistofnar í landheldi ESB verða sjálfbærir. Það er 14 árum seinna en lagaleg krafa er um slíkt í ESB löndunum.

Heimssýnarvefurinn fjallaði nýlega um þessi efni

Sjá einnig stuttan pistil hér um fiskveiðistefnu ESB

 


Ísland stöðvar arðrán ESB í Vestur-Sahara

ESB gerði á sínum tíma samning við Marokkó um fiskveiði á svæði sem tilheyrir Vestur-Sahara, en Marokkó hernam Vestur-Sahara fyrir um 40 árum. Þar með studdi ESB yfirgang Marokko gegn þjóð Vestur-Sahara. Í fréttum er nú greint frá því að framlag Íslands hafi skipt sköpum í dómi Evrópudómstólsins sem varðar varning sem framleiddur er á hinu hernumda svæði.

Af Evrópusambandslöndum hafa það einkum verið Frakkar sem hafa stutt yfirgang og arðrán Marokkó í Vestur-Sahara. Ekki er alveg ljóst á fréttum hvort dómurinn nái til fiskveiðiafurða sem eiga rætur að rekja til fiskistofna við Vestur-Sahara. 

Það er hins vegar fagnaðarefni að verið sé að stíga einhver skref til að draga úr þeim yfirgangi og því arðráni sem ESB hefur stuðlað að í Vestur-Sahara og við vesturströnd Afríku. Það er jafnframt ánægjulegt að framlag utanríkisráðherra og ríkisstjórnar Íslands skuli hafa haft þar nokkur áhrif eins og fram kemur í grein Stefáns Pálssonar sagnfræðings í grein hans sem Fréttablaðið birtir ídag - en Bylgjan fjallaði einnig um málið í hádegisfréttum.

Heimssýnarvefurinn hefur áður fjallað um þetta efni. Sjá hér og hér. Sjá einnig Nei við ESB. Sjá ennfremur pistil á Fullveldisvaktinni hér.

Í hádegisfréttunum minnti Stefán Pálsson á að ESB hefði lagt áherslu á að hernumdu svæðin í Vestur-Sahara væri hluti af Marokkó. Þessu væru aldeilis ekki allir sammála og að afstaða Íslands og áhrif þess sýndi að Íslandi gæti haft rödd þegar kæmi að friðarmálum og í stuðningi við sjálfsákvörðunarrétt þjóða. 

Það ætti jafnframt öllum að vera ljóst að Ísland hefði ekki haft þessi afrifaríku áhrif á framgang þessa máls ef það væri ekki fullvalda og sjálfstætt ríki utan ESB.

 


Hagfræðingur segir loks hug sinn til ESB

Mervyn King, fyrrverandi seðlabankastjóri í Bretlandi segir nú loks hug sinn til Evrópusambandsins þegar fyrir liggur að Bretar eru að yfir gefa það. Hann segir að ESB sé misheppnað, sérstaklega í efnahagslegum skilningi. Þar hlýtur hann sérstaklega að eiga við framkvæmd evrusamstarfsins.

Umrædd ummæli viðhafði King í viðtali við BBC. Viðskiptablaðið birtir frétt um málið.


Skipulögð ofveiði í ESB-ríkjunum

Sjávarútvegsráðherrar ESB-ríkja ákváðu í vikunni að hunsa ráðleggingar sérfræðinga varðandi veiðar á 34 fiskitegundum, sem eru rúmlega fjórðungur þeirra tegunda sem framkvæmdastjórn ESB fjallar um. Talið er að ofveiði eigi sér stað í 64% fiskitegunda í landhelgi ESB-landa. 

Sjá nánar hér.


ESB er skattaskjól

Tvö kjarnaríki ESB, þ.e. Holland og Lúxemborg, eru meðal helstu skattaskjóla í heiminum. Írland og Kýpur eru þar einnig ofarlega á lista. Juncker, núverandi formaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, var lengi forsætisráðherra í Lúxemborg. Það segir sitt um stjórnarhætti helsta forystumanns ESB. Skattaskjólið í Lúxemborg hefði ekki getað viðhaldist án vitundar og velvilja hans.

Mbl.is greinir svo frá:

Fjög­ur ríki í Evr­ópu­sam­band­inu eru á meðal fimmtán helstu skatta­skjóla sem fyr­ir­tæki nýta sér sam­kvæmt nýrri skýrslu mann­rétt­inda­sam­tak­anna Oxfam sem beita sér gegn fá­tækt í heim­in­um. Skýrsl­an var birt í dag en rík­in eru Hol­land, Lúx­em­borg, Kýp­ur og Írland.

Fram kem­ur á frétta­vefn­um Eu­obser­ver.com að rík­in stuðli að því að stór­fyr­ir­tæki geti komið sér und­an skatt­greiðslum í mikl­um mæli þrátt fyr­ir til­raun­ir Evr­ópu­sam­bands­ins til þess að koma í veg fyr­ir slíkt. Bermúda er í efsta sæti list­ans. Hol­land er í þriðja sæti, Írland í sjötta sæti, Lúx­em­borg í sjö­unda sæti og Kýp­ur í tí­unda sæti.

1. Bermúda
2. Caym­an-eyj­ar
3. Hol­land
4. Sviss
5. Singa­púr
6. Írland
7. Lúx­emburg
8. Curaçao
9. Hong Kong
10. Kýp­ur
11. Bahama-eyj­ar
12. Jers­ey
13. Barbados
14. Má­ritíus
15. Bresku jóm­frúareyj­ar


mbl.is Fjögur skattaskjól innan ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankar á Ítalíu valda áhyggjum fyrir evrusvæðið

Eins og þessi frétt ber með sér valda fleiri bankar en sá elsti í heimi áhyggjum á evrusvæðinu.

Mbl.is segir:

Stærsti banki Ítal­íu, UniCred­it, ætl­ar að fækka störf­um um 14 þúsund og auka eigið fé bank­ans um millj­arða evra en ótt­ast er að yf­ir­vof­andi sé bæði banka- og stjórn­málakreppa í land­inu.

Bank­inn, sem er einn þeirra banka sem kem­ur einna verst út úr álags­próf­um evr­ópskra banka, staðfest­ir í til­kynn­ingu að reynt verði að út­vega 13 millj­arða evra frá fjár­fest­um til þess að koma rekstri bank­ans í betra horf.

UniCred­it  von­ast til þess að hægt verði að koma í veg fyr­ir að bank­inn þurfi að leita á náðir rík­is­ins.

Alls verður störf­um hjá UniCred­it fækkað um 14 þúsund fyr­ir árs­lok 2019 og er það hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu rekstr­ar. Talið er að þetta geti sparað 1,1 millj­ón evra í starfs­manna­kostnað. Eins verður reynt að draga úr kostnaði sem nem­ur 600 millj­ón­um evra þannig að ár­leg­ur sparnaður verði 1,7 millj­arðar evra. 

Til­kynn­ing UniCred­it kem­ur á sama tíma og mik­ill skjálfti rík­ir í fjár­mála­lífi Ítal­íu vegna af­sagn­ar Matteo Renzi, for­sæt­is­ráðherra lands­ins í kjöl­far niður­stöðu þjóðar­at­kvæðagreiðslu.

Ekki er staðan betri hjá elsta banka heims, Monte dei Paschi di Siena (BMPS), sem leit­ar nú eft­ir stuðningi einka­geir­ans svo hægt verði að bjarga bank­an­um frá falli.


mbl.is Óttast bankakreppu á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB vill banna áramótagleðina!

DV greinir frá því að nú sé síðasti séns fyrir skotglaða Íslendinga að skjóta upp kraftmiklum flugeldum. ESB hafi bannað þá frá og með næstu áramótum. EF það eru ekki bognir bananar sem reglugerðir ESB fyrirskipa, þá eru það kraflausar ryksugur eða sturtuhausar með dropateljara.

Hvað kemur næst?

Frétt DV er hér.


Vilja aðild að ESB þótt það þjóni ekki hagsmunum Íslands

Píratar og fylgiflokkar þeirra vilja í raun aðild að ESB jafnvel þótt það þjóni ekki hagsmunum Íslands. Krafa um aðildarviðræður er krafa um aðlögun að ESB - eins og allir vita. Þegar samningum er náð á viðræðuríkið að vera búið að uppfylla öll skilyrði ESB. Jón Baldur Lorange bendir á hversu furðuleg þessi aðferðafræði Pírata og fylgiflokka þeirra er. Hann segir í bloggi sínu:

 

Aðferðafræði Pírata og fylgiflokka þeirra við myndun ríkisstjórnar vekur athygli. Flokkarnir vilja ekki hefja formlegar viðræður fyrr en allir fimm flokkarnir hafa komist að niðurstöðu um að þeir vilji starfa saman og hafa komist að niðurstöðu um málamiðlanir í stærstu málunum. Þá fyrst á að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður.

Í sjálfu sér má skrifa upp á þessa aðferðafræði. En hafandi í huga að þetta er allt sömu stjórnmálaflokkarnir sem hafa talað fyrir því að hefja formlegar viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu áður en þeir hafa komist að niðurstöðu um hvort það þjóni hagsmunum Íslands að gerast aðili eða ekki, og áður en komist er að niðurstöðu um hvort stærstu hagsmunamál Íslands í þeim viðræðum, svo sem í sjávarútvegsmálum, þá vantar eitthvað upp á samkvæmnina í þessu. Þar er í fínu lagi að sækja um aðild og hefja formlegar viðræður og aðlögun að Evrópusambandinu - en að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður þessara flokka, það er má alls ekki fyrr en sést til lands í viðræðunum.

Eitthvað finnst mér, jú, vanta upp á samkvæmnina í þessum vinnubrögðum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 1825
  • Frá upphafi: 1240910

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1662
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband