Færsluflokkur: Evrópumál
Fimmtudagur, 9. júní 2016
Ánægjan með ESB mælist í lágmarki
Svo hljóðar fyrirsögn á visi.is í dag. Þar segir ennfremur:
Minnst ánægja með Evrópusambandið mælist meðal íbúa Grikklands, Frakklands og Spánar, samkvæmt nýrri skoðanakönnun frá bandaríska Pew-rannsóknarfyrirtækinu.
Íbúar í tíu af 28 aðildarríkjum Evrópusambandsins voru spurðir út í afstöðu sína til sambandsins. Greinilegt er að ánægjan með sambandið hefur dvínað mjög á síðustu misserum.
Einungis 27 prósent Grikkja, 38 prósent Frakka og 44 prósent Breta segjast hafa jákvætt viðhorf til ESB.
Eftir tvær vikur ganga Bretar til kosninga um útgöngu úr Evrópusambandinu. Skoðanakannanir sýna að mjótt verður á mununum. Stundum hafa þeir mælst í meirihluta sem vilja yfirgefa ESB, en stundum hinir sem vilja að Bretland verði áfram í ESB.
David Cameron forsætisráðherra lofaði því fyrir þingkosningar á síðasta ári að ná samningum við Evrópusambandið sem styrki stöðu Bretlands og efna síðan til atkvæðagreiðslu um útgöngu.
Sjálfur hefur hann barist fyrir því að Bretland verði áfram í ESB á þessum nýju forsendum, sem hann samdi um fyrr á árinu. Andstæðingar aðildar koma ekki síst úr hans eigin flokki, Íhaldsflokknum, og hefur sú innanflokksandstaða ekkert dvínað þótt Cameron stæri sig af að hafa náð fram flestu því sem hann gerði kröfur um í samningi sínum við ESB.
Almennt eru íbúar annarra aðildarríkja þeirrar skoðunar að útganga Bretlands yrði slæm fyrir Evrópusambandið. Af þeim níu þjóðum, sem spurðar voru líst Svíum verst á útgöngu Bretlands. 89 prósent Svía telja það verða slæmt fyrir ESB.
Hins vegar er mest ánægjan með útgöngu Bretlands í Frakklandi, þar sem 32 prósent aðspurðra segja að hún yrði ESB til góðs.
Almennt eru kjósendur hægri flokka haldnir meiri efasemdum um ESB en kjósendur vinstri flokka, samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar.
Á Grikklandi, Ítalíu, í Frakklandi og á Spáni er mest andstaða við það hvernig ESB hefur tekið á efnahagsmálum, enda hafa efnahagsörðugleikarnir orðið mestir í þessum löndum.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. júní 2016
Meirihluti Breta vill úr ESB
Stuðningur við úrsögn Breta úr Evrópusambandinu mælist nú meiri en stuðningur við áframhaldandi veru.
Meðaltal rannsóknarmiðstöðvarinnar WhatUKThinks, sem byggir á þremur könnunum sem gerðar voru um helgina, mælir 51 prósenta stuðning við úrsögn á móti 49 prósenta stuðningi við áframahaldandi veru.
Rúmlega tvær vikur eru í að Bretar gangi til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður á milli valkostanna tveggja.
Þetta kemur fram í meðfylgjandi frétt í mbl.is
![]() |
Meirihluti vill úr Evrópusambandinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt 7.6.2016 kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. júní 2016
Stórmerkileg frétt
Það er í raun stórmerkilegt að meira en helmingur Breta skuli alls ekki sætta sig við að vera í Evrópusambandinu. Það er enn merkilega að álíka stóri hluti fleiri aðildarþjóða skuli ekki sætta sig við veruna í ESB.
Það er líka mjög merkilegt að Norðmenn skuli hafa hafnað því í tvígang að gerast aðili að ESB og að Grænlendingum skuli hafa tekist að forða sér úr ESB.
Það er kannski ekki jafn merkilegt að hvorki Bretar, Svíar né Danir vilji sjá þann ólukkans gjaldmiðil, evruna, sem á stóran þátt efnahagsvandræðunum sem nú ráða ríkjum víðast hvar á svæðinu. Reyndar er stór hluti Evrópu mjög óánægður með evrusamstarfið.
Þetta er í raun alveg stórmerkilegt. Þeim mun furðulegra er það að til skuli vera þeir hópar sem reyna að þröngva Íslandi inn í ESB og í evrusamvinnuna með því að heimta að samningarnir við ESB verði kláraðir. Skyldu einhverjir forsetaframbjóðendur vera þeirrar skoðunar, þ.e. að klára eigi samningana við ESB, og halda þannig áfram þeirri aðlögun að ESB sem Samfylkingin hvatti helst til.
Er þetta lið ekki búið að fatta hvers vegna Samfylkingin er að hverfa?
![]() |
Vaxandi vilji til að yfirgefa ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 31. maí 2016
Fundur með utanríkisráðherra annað kvöld
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra verður gestur á opnum stjórnarfundi Heimssýnar sem verður haldinn annað kvöld, miðvikudagskvöldið 1. júní klukkan 20:00 í húsakynnum samtakanna við Ármúla 6 í Reykjavík. Allir félagar í Heimssýn eru velkomnir.
Rætt verður m.a. um samskipti Íslands og Evrópusambandsins, tollasamninginn við ESB, viðskiptabann Rússa, ESB umsóknina ofl.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 30. maí 2016
Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra á fundi Heimssýnar
Mánudagur, 30. maí 2016
Forsetaframbjóðendur á flótta
Það er athyglisvert við suma forsetaframbjóðendur, já reyndar við heilu flokkana sem nú vilja komast inn á hið pólitíska svið, að þeir eru á harðahlaupum undan fyrri afstöðu og ummælum um ESB. Það þykir víst ekki kosningavænt nú að vera jákvæður gagnvart aðild Íslands að ESB.
![]() |
Forseti ætti ekki að velja eftirmann sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27. maí 2016
Bréf til félaga í Heimssýn
Ágæti félagi
Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, þakkar stuðning þinn og baráttu fyrir málstað hreyfingarinnar og fagnar þeim árangri að Evrópusambandsumsóknin hafi verið stöðvuð. Barátta Heimssýnar og félaga á drjúgan hlut í að skila þeim árangri.
Starfsemin að undanförnu
Framkvæmdastjórnin ásamt varastjórn kemur reglulega saman tvisvar í mánuði og heldur stærri opna fundi um einstök málefni nokkrum sinnum á vetri. Jafnframt er sjónarmiðum Heimssýnar reglulega komið á framfæri á vefjunum www.heimssyn.is, www.heimssyn.blog.is eða með greinarskrifum, viðtölum við fjölmiðla, auglýsingum og fundum.
Heimssýn rekur skrifstofu í Ármúla 4, Reykjavík þar sem jafnframt er fundaraðstaða.
Meðal þeirra sem komið hafa á opna fundi Heimssýnar í vetur eru Tómas Ingi Olrich, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, Hörður Kristinsson, ritstjóri Bændablaðsins, Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar og Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna. Auk þess hafa einstakir stjórnarmenn Heimssýnar greint frá tilteknum málum á sérsviðum þeirra sem lúta að áherslum Heimssýnar.
Baráttan heldur áfram
Þótt umsóknin um aðild að Evrópusambandinu hafi verið stöðvuð hafa ýmis stjórnmálasamtök, hagsmunaðilar og forystumenn þeirra haldið fast við þá skoðun sína að halda beri umsókninni áfram, eða að framhald umsóknarinnar verði lögð í þjóðaratkvæðagreiðslu. Heimssýn hefur lagt áherslu á að Alþingi afturkalli umsóknina um aðild að Evrópusambandinu frá 2009 formlega og afdráttarlaust. Umsókn um aðild að Evrópusambandinu frá 2009 var komin í þrot og ekki hægt að halda henni áfram, nema falla frá fyrirvörum Alþingis sem settir voru í þingsályktunartillögunni, m.a. í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum.
Verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild Íslands að Evrópusambandinu ber að gera það áður en ný umsókn er send. Þar verði spurt: Vilt þú að Ísland gangi í Evrópusambandið eða ekki?
Inngönguskilyrði Evrópusambandsins liggja öll fyrir. Aðildarsamningum við ESB lýkur ekki fyrr en lög og reglugerðir Evrópusambandsins hafa verið innleiddar eða tímasett hefur verið hvenær það skuli gert. Ríkisstjórn Íslands verður síðan að skrifa undir samninginn og mæla með samþykkt hans, áður en hann fer til afgreiðslu Alþingis eða í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ekkert til sem heitir að kíkja í pakkann
Sambandið er enginn matseðill sem hægt er að velja af, sagði t.d. forseti framkvæmdastjórnar ESB við Breta. Mikilvægt er að gæta sín á þeim sem bera kápuna lausa á báðum öxlum og tala tunguliprir um að ljúka samningum. Staðreyndin er sú að aðildarsamningi við ESB er ekki hægt að ljúka af ESB hálfu fyrr en lög og reglugerðir Evrópusambandsins hafa verið innleiddar í íslensk lög eða tímasett hefur verið hvenær það skuli gert. Ríkisstjórn Íslands verður síðan að skrifa undir samninginn og mæla með samþykkt hans áður en hann fer til afgreiðslu Alþingis eða í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þess vegna er svo hættulegt þegar heilir stjórnmálaflokkar og stór hagsmunasamtök hafa það á stefnuskrá sinni að ljúka samningum um inngöngu í ESB. Það verður ekki gert nema að fella fyrst úr gildi fyrirvara Alþingis, t.d. í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum og samþykkja framsal á fiskveiðiauðlindinni til ESB.
Barátta Heimssýnar fyrir sjálfstæðu og áháðu Íslandi sem standi utan Evrópusambandsins mun því halda áfram. Framundan eru kosningar bæði til forseta lýðveldisins og síðan einnig til Alþingis. Brýnt er að samtökin Heimssýn og einstakir félagar hennar haldi uppi sem öflugastri kynningu og baráttu fyrir málstað hreyfingarinnar og sjálfstæði þjóðarinnar.
Komum baráttumálunum á framfæri
Mikilvægt er að koma baráttumálum Heimssýnar og áherslum að í kosningabaráttunni og halda fast að málum bæði við forsetaframbjóðendur og svo ekki síður að stjórnmálaflokkum og einstökum frambjóðendum þeirra í næstu alþingiskosningum. Það hyggst Heimssýn gera með fundum, spurningum til frambjóðenda og flokka, útgáfustarfi, auglýsingum og öðrum þeim leiðum sem tiltækar eru.
Stefnt er að því að gefa út kynningarblað með haustinu sem dreift verði á heimili landsins og í fyrirtæki. Þar verði baráttumál Heimssýnar rakin og rökstudd,
Við þökkum stuðninginn
Öll þessi starfsemi krefst fjármagns, en Heimssýn reiðir sig á framlög félagsmanna og styrki einstaklinga og fyrirtækja.
Gíróseðlar hafa nú verið sendir til félagsmanna í heimabanka þeirra, þar sem óskað er eftir stuðningi. Allir eru velkomninr að vera félagar i Heimssýn, óháð greiðslum til samtakanna. Er þess vænst að félagsmenn bregðist fljótt og vel við og leggi sitt af mörkum.
Þeir sem ekki fá gíróseðil eða aðrir sem vilja styrkja félagið með hærri upphæðum er bent á bankareikning Heimssýnar : kt. 680602-5810, bankareikningur 101-26-5810.
Tölvupóstfang Heimssýnar er heimssyn@heimssyn.is, sími 551 9800 og 859-9107. Heimilisfang er Ármúla 4-6 Reykjavík
Virðingarfyllst og með baráttukveðjum,
fyrir hönd Heimssýnar,
Jón Bjarnsson formaður
Heimssýn samtök sjálfsstæðissinna í Evrópumálum - Nei við ESB.
Ármúla 4-6, 108 Reykjavík - Sími 551-9800 eða 859-9107 - Email heimssyn@heimssyn.is - Vefur www.heimssyn.is
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25. maí 2016
Viðreisn á flótta í ESB-málinu
Það er ljóst af þessari frétt að Viðreisn telur það ekki til vinsælda fallið að setja ESB-mál á oddinn. Í staðinn leggur flokkurinn áherslu á vestræna samvinnu. Í dag leggja flestir aðrir flokkar áherslu að víðtækari alþjóðlega samvinnu.
![]() |
Benedikt formaður Viðreisnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 24. maí 2016
Evrópa í uppnámi - Viðreisn fortíðarstjörf
Helmingur Breta vill yfirgefa ESB. Jaðarpólitík ræður ríkjum í Austurríki. Hvarvetna í Evrópu skiptast þjóðir í tvo, nokkurn veginn jafnstóra hópa í afstöðunni til ESB. Æ fleiri láta í ljós andúð á þeirri vegferð sem ESB er. Á sama tíma segir talsmaður væntanlegrar Viðreisnar að Íslendingar hafi áhuga á því að flytjast búferlum inn í brennandi hús!
![]() |
Grikkir samþykktu skattahækkanir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24. maí 2016
Alþingi framselur fjármálaeftirlitsvald til Brussel
Ekki verður annað séð en að tveir helst fræðimenn hér á landi á sviði stjórnskipunar telji að Alþingi áformi að framselja til Brussel vald með óeðlilegum hætti. Í álitsgerð fræðimannanna, Bjargar Thorarensen prófessors og Stefáns Más Stefánssonar prófessors við tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana er varðar evrópskar reglur um fjármálaeftirlit segir m.a.:
Með innleiðingu gerðanna yrði stigið skrefi lengra að því er varðar framsal framkvæmdarvalds og dómsvalds en áður hefur verið fallist á að rúmist innan 2. gr. stjórnarskrárinnar. Slíkt framsal samrýmist ekki fyrri viðmiðum um afmarkað framsal á ríkisvaldi á takmörkuðu sviði gagnvart einkaaðilum. Jafnframt yrði framsalið íþyngjandi fyrir fjármálafyrirtæki á Íslandi. Í ljósi þessa teljum við að framsalið rúmist ekki innan venjuhelgaðrar reglu um að almenna löggjafanum sé heimilt að framselja ríkisvald í takmörkuðum mæli og á tilteknum forsendum til alþjóðastofnana.
Þá var talið að vald hinna evrópsku eftirlitsstofnana væri hvorki vel afmarkað né á þröngu sviði, enda tæki það í raun til hvers kyns starfsemi fjármálafyrirtækja.
Í samantekt álitsgerðarinnar sagði loks eftirfarandi:
Innleiðing ákvæða reglugerða ESB nr. 1093, 1094 og 1095/2010, um heimildir evrópskra eftirlitsstofnana á fjármálamarkaði til að taka bindandi ákvarðanir gagnvart íslenskum eftirlitsstofnunum og bindandi ákvarðanir sem hafa bein og íþyngjandi réttaráhrif gagnvart íslenskum fjármálafyrirtækjum, er háð annmörkum með tilliti til íslensku stjórnarskrárinnar. Í þeim felst yfirþjóðlegt vald eftirlitsstofnana þar sem þátttökuréttur Íslands er ekki tryggður og ekki um gagnkvæmni að ræða varðandi réttindi og skyldur aðildarríkjanna eða aðila innan þeirra. Með innleiðingu gerðanna yrði stigið skrefi lengra í framsali framkvæmdarvalds og dómsvalds en áður hefur verið fallist á að rúmist innan 2. gr. stjórnarskrárinnar, enda samrýmist hugsanleg innleiðing reglugerðanna ekki fyrri viðmiðum um afmarkað framsal á ríkisvaldi á takmörkuðu sviði. Í ljósi þessa teljum við að framsalið rúmist ekki innan venjuhelgaðrar reglu um að almenna löggjafanum sé heimilt að framselja ríkisvald í takmörkuðum mæli til alþjóðastofnana.
Nýjustu færslur
- Sprengdur fyrir hið evrópska föðurland
- Bakdyralykillin notaður að öryggis og varnarsamstarfi við ESB
- Góðan daginn forsætisráðherra - áttu aldrei viðtalsbil, bara ...
- "Af stað út í heim litli kútur..." og nú með skriðdreka
- Alþingi veikt í nafni "réttaröryggis"
- Munu innfluttu skuldaviðmiðin hans Daða Más þrengja að íslens...
- Lykilmaðurinn Daði Már
- Þorgerður ræður þó lofthelginni ennþá
- Undan pilsfaldi forsætisráðherra
- Dagur gengur um með hauspoka
- Þorgerður leggur þjóðaratkvæðagreiðslumálið til hliðar af h...
- Tiltekt, verðmætasköpun, einföldun og einangraður utanríkisrá...
- Besta fyrirkomulagið
- Umboðið dularfulla
- Alltaf agnarögn hjá Hirti
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.9.): 13
- Sl. sólarhring: 399
- Sl. viku: 2321
- Frá upphafi: 1261471
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 2173
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar