Leita í fréttum mbl.is

Evrulöndin taka á sig miklar þrengingar

Það að Litháen sé að taka upp evru leiðir hugann að þeim fórnum sem Lettar urðu að færa áður en þeir tóku upp evru. Grípa varð til mikilla sparnaðarráðstafana. Opinbert byggingaeftirlit var lagt niður í því skyni og telja ýmsir að það hafi m.a. átt sinn þátt í því að þak á matvörumarkaði hrundi með þeim afleiðingum að 54 létust.
 
Lágmarks eftirlan í Lettlandi eru ríflega tíu þúsund krónur á mánuði og meðaltekjur á mánuði vel undir 75 þúsund krónum. Lettar, sem telja varla meira en tvær milljónir þurfa hins vegar að greiða sem svarar tugum milljarða króna í björgunarsjóð banka í Evrópu og ábyrgjast til viðbótar sem svarar 500 milljörðum króna.
 
Evra var tekin upp í Lettlandi án þess að þjóðin væri spurð álits. Allar skoðanakannanir bentu til þess að meirihluti þjóðarinnar væri á móti upptöku evrunnar.
 
Þegar er hafin umræða um það í Lettlandi að ríkið segi sig úr ríkjasambandinu.
 
 
 
 

 


mbl.is Litháen stefnir á evru 2015
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er bara misskilningur með ESB og friðinn

Það er goðsögn að ESB hafi tryggt friðinn í Evrópu. Það er mat tíu virtra breskra fræðimanna. ESB hefur ekki hindrað átök á Balkanskaga. Þar þurfti Nató til. Auk þess hefur efnahagsstefna ESB stuðlað að félagslegum ófriði á stórum hluta evrusvæðisins. 
 
Þetta kemur fram á mbl.is.  Þar segir ennfremur:
 
 

„Um leið og við fögnum þeirri staðreynd að Evrópuríki viðurkenni í dag mikilvægi friðsamlegra samskipta þá er það sögulega ónákvæmt og misvísandi að tengja það eingöngu við Evrópusamrunann. Sérhver sagnfræðileg greining á Evrópu eftirstríðsáranna verður að taka mið af gríðarlega mikilvægum þætti Atlantshafsbandalagsins (NATO), kalda stríðsins og Bandaríkjanna í að varðveita friðinn.“

Þetta segir í aðsendri grein vefsíðubreska dagblaðsins Guardian í gær sem tíu fræðimenn á sviði sagnfræði, meðal annars við háskólana í Cambridge og Oxford, undirrita. Greinin er viðbrögð við grein eftir Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands, í sama blaði síðastliðinn mánudag þar sem ráðherrann gerði meðal annars að umfjöllunarefni sínu vaxandi gagnrýni á Evrópusambandið (ESB) og hélt því fram að sambandið og forverar þess hefðu tryggt friðsamleg samskipti á milli Evrópuríkja.

Fræðimennirnir benda ennfremur á að ESB hafi mistekist hrapalega að koma í veg fyrir stríðsátök á Balkanskaganum sem og samfélagsleg átök í ríkjum við Miðjarðarhafið sem efnahagsstefna sambandsins hefði stuðlað að. Ekki væri rétt að afskrifa alla gagnrýni á ESB með því að tengja hana við á þjóðernishyggju. „Ógagnsæi og skortur á lýðræðislegri ábyrgð einkenna sem fyrr stofnanir ESB. Í stað þess að beina reiði sinni að þeim sem kvarta undan skorti á lýðræði innan sambandsins ættu leiðtogar þess að viðurkenna þörfina fyrir umbætur sem forgangsverkefni.“

Fræðimennirnir sem undirrita greinina eru David Abulafia prófessor við Cambridge University, dr. David Starkey, Andrew Roberts, Nigel Saul prófessor við University of London, dr. Brian Young hjá Oxford University, dr. Robert Crowcroft hjá University of Edinburgh, dr. Hannes Kleineke, Robert Tombs prófessor við Cambridge University, dr. Richard Rex hjá Cambridge University og Jeremy Black hjá University of Exeter. 

mbl.is ESB ekki eitt um að tryggja friðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiríkur Bergmann segir að skuldir hefðu orðið meiri ef við hefðum verið í ESB

EirikurBergmann

Það var mjög athyglisvert að heyra doktor Eirík Bergmann stjórnmálafræðing halda því fram í Kastljósi Ríkisútvarpsins í kvöld að ef Íslendingar hefðu verið í ESB fyrir hrunið hefðu opinberar skuldir verið langtum meiri en þær eru núna.

Það var jafnframt fróðlegt að heyra fullyrðingu Helga Seljan fréttamanns að hið evrópska regluverk hafi gert bankaútrásina og bankavöxtinn mögulegan, en þetta evrópska kerfi hafi ekkert komið okkur að haldi þegar í óefni var komið.

Það er gott að heyra að tveir svo málsmetandi menn skulu taka undir með því sem lengi hefur verið haldið fram hér á þessum vef:

1. Ein af forsendum þess að útrás bankanna var möguleg og um leið hinn mikli vöxtur bankakerfisins sem óx íslensku hagkerfi yfir höfuð voru hinar samevrópsku reglur sem gerðu það að verkum að þegar banki hafði fengið starfsleyfi hér á landi fékk hann í raun leyfi til að hefja starfsemi í öðrum löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Það voru hins vegar engar nægilegar varnir eða nægt eftirlit yfir landamæri, hvað þá sameiginleg ábyrgð þeirra ríkja þar sem þessir bankar störfuðu. Því var hið evrópska regluverk eitraður kokteill fyrir Íslendinga.

2. Ef við hefðum verið í ESB fyrir hrunið hefðu stjórnvöld stærstu ESB-ríkjanna þvingað íslenska ríkissjóðinn til þess taka á sig ábyrgðir, ekki bara Icesave, heldur miklu stærri hluta af skuldum bankakerfisins. Það hefði leitt til þess að íslenska ríkið hefði orðið ógjaldfært og Íslendingar hefðu verið í jafn vondum ef ekki verri málum en Grikkir.

 Það er mjög athyglisvert að heyra Eirík Bergmann viðurkenna þetta eftir margra ára rannsóknir. Reyndar vissu sumir íslenskir embættismenn og sumir stjórnmálamenn þetta þegar árið 2008. Þess vegna var farin sú leið sem farin var með neyðarlögunum margfrægu.

Það er hins vegar gott til þess að vita að þessar staðreyndir skuli smám saman síast inn í vitund fræðimanna og fjölmiðlamanna.

Batnandi mönnum er best að lifa. 


Sigurður Ingi Jóhannsson harmar hótanir ESB um ólöglegar viðskiptaþvinganir

SigurðurIngi
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, harmar hótanir ESB um ólöglegar viðskiptaþvinganir. Hann segir að Íslendingar hafi viljað leysa deiluna um makrílveiðar á vísindalegum grunni og að veiðar verði sjálfbærar. Ísland hafi lagt sitt af mörkum og sýnt samningsvilja.
 
Fjallað er um málið á mbl.is. Þar segir: 
  
 

„Ég verð ég að lýsa yfir vonbrigðum mínum með það að hótanir um viðskiptaaðgerðir séu á ný í umræðunni. Slíkar aðgerðir væru ólögmætar og það ýtir ekki undir jákvæðan framgang viðræðna að draga þær inní umræðuna,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, atvinnuvegaráðherra, um  ummæli Mariu Damanakis sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins. Í netútgáfu Spiegel í gærkvöldi hótaði hún  Íslendingum og Færeyingum refsiaðgerðum gengu þeir ekki til samninga fyrir vikulok.

Sigurður Ingi segist ekki telja rétt að tjá sig um gang eða beint inntak þeirra viðræðna sem nú standa yfir á meðan þær fara fram, en viðræðufundur stendur nú yfir í Bergen í Noregi.

„Til þess að samningar náist verða öll strandríkin að vera tilbúin til þess að gefa eitthvað eftir. Færeyingar þurfa nú að taka sig saman í andlitinu og nálgast viðræðurnar lausnamiðað og Noregur að huga að orðspori sínu sem fiskveiðiþjóð sem stýrir veiðum með sjálfbærum hætti og hefur vísindaráðgjöf að leiðarljósi. Það er einstakt tækifæri til að leysa deiluna nú sem við höfum lagt okkar ítrasta af mörkum til að nýta og ég kalla eftir því að hin ríkin geri það sama.

Þau ár sem deilan hefur staðið yfir hefur málstaður Íslands staðfastlega verið sá að málið skuli leysa á vísindalegum grunni og stuðlað skuli að sjálfbærum veiðum. Styðjast þarf við nýjustu upplýsingar um göngumynstur stofnsins, fæðustöðvar hans og horfa til þeirra breytinga sem hafa orðið í hafi. Málið ber að nálgast í gegnum samningaviðræður, ekki hótanir um ólöglegar viðskiptaþvinganir.

Slitni upp úr viðræðum nú orsakast það ekki af skorti á samningsvilja okkar. Ísland hefur lagt sitt af mörkum til þess að nálgast niðurstöðu. Samningamenn okkar reyna nú til þrautar að leiða að samkomulagi í Björgvin en ég get því miður ekki sagt að það sé augljóst að það takist,“  segir Sigurður Ingi Jóhannsson. 

Vaxandi yfirgangur ESB í makríldeilunni

Frétt Spiegel sýnir að lítið lát er á yfirgangi ESB í makríldeilunni. Þvert á móti. Enn hótar ESB Íslendingum og Færeyingum refsiaðgerðum undirriti þeir ekki það sem ESB vill. ESB hótar að beita því afli sem felst í stærðarmun ríkjasambandsins og þjóðanna í Norðurhöfum. ESB sýnir sitt rétta andlit - en talsmaður þess virðist samt hlaupinn í felur.
 
Mbl. greinir frá þessu. Frétt mbl.is er svohljóðandi: 
 
 

Færeyingum og Íslendingum hefur verið gert rausnarlegt tilboð um lausn makríldeilunnar af hálfu Evrópusambandsins og taki þeir því ekki fyrir lok þessarar viku mun sambandið hefja samninga við Norðmenn án aðkomu þjóðanna tveggja. Taki Færeyingar og Íslendingar ekki tilboðinu kunna þjóðirnar ennfremur að standa frammi fyrir refsiaðgerðum.

Þetta segir Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, í samtali við fréttavef þýska blaðsins Spiegel í dag. Viðræður hófust í Bergen í Noregi í morgun um lausn deilunnar. „Möguleikinn á refsiaðgerðum er enn til staðar,“ segir hún. Hins vegar vonist hún eftir að samningar náist á síðustu stundu. Viðræður við Íslendinga og Færeyinga að undanförnu gefi vonir um að það takist.

Evrópusambandið hefur boðið Íslendingum og Færeyingum 11,9% hlutdeild í árlegum makrílkvóta en þjóðirnar hafa til þessa farið fram á 15-16% hlutdeild. Norðmenn telja hins vegar 11,9% vera of hátt hlutfall og hafa lagst gegn því. Sama er að segja um stjórnvöld á Írlandi en þau eru hins vegar ekki beinir aðilar að viðræðunum heldur semja fulltrúar Evrópusambandsins fyrir hönd þeirra. 

mbl.is Hótar refsiaðgerðum vegna markrílsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. janúar 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 888
  • Frá upphafi: 1232323

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 791
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband