Leita í fréttum mbl.is

Spennandi helgi framundan

Það verður forvitnilegt að sjá hvort það verður fall á þessu manndómsprófi um helgina. 

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2293404/


Í köngulóarvef

Það verður ekki annað sagt en að Arnar Þór Jónsson sé harla beinskeyttur í þessu innihaldsríka og hvetjandi viðtali á Útvarpi sögu.  

Hann ræðir m.a. bókun 35 og kemst svo að orði:

"Núna, hins vegar, er staðan sú, ef þetta fer í gegn, er litið framhjá skýrum íslenskum lagaákvæðum ef þau mæla fyrir um annað en EES-reglur gera...að opna glufu, eins og verið er að gera núna getur falið í sér einhvers konar opinn tékka...og þá sitjum við föst í einhverjum köngulóarvef sem við getum ekki losnað úr."

Viðtalið í heild sinni er hér:

https://utvarpsaga.is/framsal-a-akvordunum-i-heilbrigdismalum-til-who-er-valdaran/


Að deyja ekki ráðalaus

Eftir Brexit má segja að líkurnar á því að hægt væri að koma Noregi og Íslandi í Evrópusambandið væru komnar nálægt núlli.  Hvaða ráð eiga þá gömlu nýlenduveldin og fylgiríki þeira?  Jú, stunda skapandi túlkun á EES og koma Noregi og Íslandi inn í ótal mörgum örsmáum bútum. Það verður seint sagt að þetta fólk deyi ráðalaust. 

https://www.facebook.com/groups/heimssyn

 


Honum fatast ekki flugið

Umræða um fánýti fullveldis og mikilvægi framsals valds til vandalausra í útlöndum á það til að renna út í sand vangaveltna um styrki, gengi gjaldmiðla og þokukenndan orðaflaum um alþjóðlegt samstarf. Jafnan er fljótgert að kveða svoleiðis tal í kútinn, en alltaf er hætta á að umræðan fari að snúast um verðið á snákaolíu og að hún virki ekki.  Arnar Þór Jónsson hefur lag á að halda hæð í umræðu og hann er óhræddur við að ígrunda grundvallaratriði í samfélaginu og stjórnskipun þess.         

Í ágætum pistli á Moggabloggi 17. ágúst sl. fjallar Arnar Þór um þessi mál og segir meðal annars:

Þegar lagareglur streyma í síauknum mæli utanfrá, frá ESB og SÞ, þá tekur stjórnarfarið að líkjast harðstjórn. Þegar fólk á ekki lengur hlutdeild í lögunum sem það á að búa við verða lögin ekki lengur sameign okkar heldur fyrirskipanir annarra. Undir slíku kúgunarvaldi dofnar smám saman tilfinning almennings fyrir því að þau séu bundin af lögum. Slíkt ástand leyðir til upplausnar, stjórnleysis og ofbeldis, þar sem hnefarétturinn ræður, en lögin eyðast. 

Í þessum orðum felast mikil sannindi, sem og í pistlinum öllum sem er hér:

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2293156/


Um mikilvægi dreifingar skónúmera

Á dögum umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu heyrðist stundum að Ísland væri svo líkt löndunum á meginlandi Evrópu að það væri í góðu lagi að þau fengju að stjórna Íslandi. Ekki fylgdi af hverju gömlu nýlenduveldin væru betur til þess fallin en lýðræðislega kjörin stjórnvöld á Íslandi, enda mjög erfitt að útskýra það.

En er Ísland eins og hver annar hreppur í Þýskalandi? 

Líklegt að á báðum stöðum sé dreifing skónúmera svipuð, margir á báðum stöðum hlusti á Beethoven og finnist Einstein og Rembrandt hafa verið býsna lunknir náungar.  Í báðum löndum sjúga menn í sig hveitilengjur með sósu, sparka bolta eða syngja hástöfum og finnst það ágætt.   Þau líkindi skipta bara engu máli í því samhengi sem hér um ræðir.   Það eru ólíkindin sem leiða til þess að heppilegt er að Íslendingar stjórni sér sjálfir, en að þeim sé ekki stjórnað af umboðsmönnum gömlu evrópsku nýlenduveldanna.

Atvinnulíf á Íslandi er mjög ólíkt iðnvæddum héruðum Evrópu og gjaldeyrisöflun er með öðrum hætti en annars staðar í álfunni.  Stærð og lega Íslands, sem og veðurfar, þéttbýli og síðast en ekki síst mannfjöldi, gera að verkum að samgöngur, samskipti og fleira í gangverki samfélagsins er með öðrum hætti en annars staðar í Evrópu.  Þá er menningarlegur munur töluverður.  Á Íslandi er nefnilega töluð örtunga sem á í vök að verjast.  Og hvað sem mönnum kann að finnast um yfirstandandi stríð í A-Evrópu er það staðreynd að stórfelld iðnvædd manndráp í pólitísku skyni eru óþekkt á Íslandi en inngróinn þáttur í menningu flestra annarra ríkja í Evrópu.

Lög og reglur Evrópusambandsins taka mið af aðstæðum og hagsmunum á meginlandi Evrópu, ekki á Íslandi og skiptir þá auðvitað engu máli hvort Ísland er innanborðs eða ekki.


Andspyrnan

Eins og komið hefur fram á þessum vettvangi hefur furðu mikil og óskýrð stöðnun ríkt í efnahagsmálum í Svíþjóð síðustu áratugi.  Svíar gerðust þegnar í Evrópusambandinu fyrir um 30 árum síðan og bundu margir miklar vonir við að það mundi leiða af sér blóm í haga og yfirfulla maga.  Þeir voru reyndar ekki færri sem sáu tækifæri til að kenna öðrum Evrópubúum hvernig best væri að fara að, því það vissu Svíar vel. 

Svíar hafa vel í sig og á, en sá blómagarður, sem sumir gerðu sér vonir um, er ekki enn sprunginn út.  Gróska er þó í félagsmálum, því félagið Nej till EU dafnar. Það gefur út tímaritið Kritiska EU-fakta þar sem fjallað er um vandamálin við Evrópusambandið og aðildina að því.

Í hjálögðu hefti af Kritiska EU-fakta er fjallað um ýmis mál.  Meðal annars er sagt frá því að svokallað bankasamband Evrópusambandsins hlaði undir stóra banka og sagt er að það auðveldi bönkum að ganga í opinbera sjóði. Þá er sagt frá því að í undirbúningi sé að veita yfirvöldum í Evrópusambandinu mjög víðtækar heimildir til að afla upplýsinga um einstaklinga og eins að fyrirhuguð séu lög sem veiti yfirvöldum tæki til að hafa víðtæka stjórn á flæði upplýsinga.  Þá er sagt frá fiskveiðum Evrópumanna á Indlandshafi og átökum þeirra við heimamenn.

Óhætt er að mæla með tímaritinu Kritiska EU-fakta sem er ókeypis á netinu, þótt greinarnar skilji iðulega eftir fleiri spurningar en svör, eins og gefur að skilja þegar um stutt yfirlit er að ræða.

 

https://nejtilleu.se/wp-content/uploads/2023/06/KEF-170_.pdf

 


Leiktjöld Evrópusambandsins

Ein af biblíum Evrópusambandsins ber nafnið Kaupmannahafnarviðmiðin og er þar meðal annars fjallað um réttarríkið, mannréttindi, lýðræði og réttindi minnihlutahópa. 

Bent hefur verið á að nokkuð hafi vantað upp á réttindi minnihlutahópa í sumum af þeim ríkjum sem gengið hafa í Evrópusambandið á síðari árum.  Kannski fannst yfirvöldum viðkomandi landa það bara leiðindalið sem reglurnar ættu ekki að taka til.  Það er að minnsta kosti þannig með sumar fréttastofur, en eins og lesendum þessarar bloggsíðu er kunnugt eru sumar rússneskar fréttastofur bannaðar í Evrópusambandinu.  Það bann gengur gegn meintum hornsteini bandalagsins sem er lýðæði. 

Evrópusambandið uppfyllir með öðrum orðum ekki skilyrðin sem þarf að uppfylla til að ganga í Evrópusambandið. 

 


Þegar umhverfisskattur virkar öfugt við það sem honum er ætlað

Svokallaðir mengunarskattar eru m.a. ætlaðir til að breyta neyslumynstri til að draga úr mengun.  Kolefnisskattar eru af þeirri gerð, þó svo deilt sé um hvort rétt sé að kalla koltvísýring mengun. Skattarnir virka misvel, ekki síst eftir því hverjir valkostirnir eru á hverjum stað.  Fleira getur ruglað dæmið, til dæmis ef nýtt neyslumynstur leiðir til meiri mengunar í fjarlægu landi eða á öðru sviði sem ekki er í bókhaldinu.

Stundum virkar mengunarskattur í gagnstæða átt við það sem honum er ætlað.  Lítum til dæmis á ferðalag frá Mílanó til Seattle.  Ekki er kostur á beinu flugi, svo það verður að millilenda.  Stysta leið liggur yfir suðvestanvert Ísland, svo millilending í Keflavík er ákjósanleg.  Leiðin milli Mílanó og Keflavíkur verður skattlögð í botn, svo hún kemur varla til greina.  Farþeginn velur því til dæmis að fljúga um Nýju Jórvík, sem er miklu lengri leið, en líklega ódýrari vegna skattfrelsis.  

Niðurstaðan verður að skatturinn leiðir til meiri mengunar. 

Nokkur íslensk fyrirtæki missa líka spón úr aski sínum, en það er annað mál.   

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.7.): 230
  • Sl. sólarhring: 268
  • Sl. viku: 1349
  • Frá upphafi: 1233701

Annað

  • Innlit í dag: 196
  • Innlit sl. viku: 1143
  • Gestir í dag: 184
  • IP-tölur í dag: 183

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband